27.04.1959
Efri deild: 108. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 878 í B-deild Alþingistíðinda. (571)

122. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Jóhann Jósefsson:

Herra forseti. Ég áttaði mig varla á því, við hvaða mál var verið að lesa upp brtt., en kvaddi mér hljóðs vegna þess, að ég geng út frá því, að það sé við eina málið, sem er á dagskránni, sem er tekjuskattur og eignarskattur.

Þessar brtt., sem mér virtist hæstv. forseti minnast á, liggja nú ekki fyrir, svo að hægt sé að átta sig á þeim og með því að hér er um mjög þýðingarmikið mál að ræða frá mínu sjónarmiði og margra annarra, þá vildi ég mælast til þess við hæstv. forseta, að málinu verði frestað í dag og maður fengi ráðrúm til þess að átta sig á þeim brtt., sem fram eru bornar.