27.04.1959
Efri deild: 108. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 879 í B-deild Alþingistíðinda. (578)

122. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Þetta frv. var lagt fyrir þessa deild og var fjallað um það af fjhn. hennar. Í Nd. hefur þessu frv. verið gerbreytt, tekin þar upp þýðingarmikil nýmæli eða viðbætur við frv. Ég tel sjálfsagt og í rauninni ekki annað gerlegt, en að fjhn. þessarar d. fái málið, eins og það liggur fyrir, til meðferðar, legg til, að þessari umr. sé frestað og málinu vísað til fjhn. Hvort þessari umr. yrði frestað, eftir að flm. brtt. hafa gert grein fyrir sínum tillögum, eða síðar, á það legg ég enga áherzlu.