27.04.1959
Efri deild: 108. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 881 í B-deild Alþingistíðinda. (580)

122. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Karl Kristjánsson:

Herra forseti. Ég hef hér lagt fram till. skriflega um, að 1. gr. frv., sem til umræðu er, verði felld niður. En 1. gr. felur í sér breyt. á lagaákvæðum, sem sett voru í fyrra um félagaskatt og til þess að sanna hv. deild, að breytt. þessi er í raun og veru mikil, vil ég — með leyfi hæstv. forseta — lesa hér upp fyrstu málsliðina tvo í l., eins og þau eru, og síðan fyrsta málslið brtt. Lagaákvæðin frá því í fyrra, sú gr., sem þau eru í, hefst á þessa leið: „Sameignarfélög og samlög, sem hafa það að meginmarkmiði að annast vinnslu eða sölu á framleiðsluvörum félagsmanna, eru skattskyld. Einnig önnur sameignarfélög með ótakmarkaðri persónulegri ábyrgð félagsmanna.“ Þó má, eins og tekið er síðar fram, skipta tekjum og eignum þessara félaga á félagana eða félagsmennina, sameigendurna, með þeim fyrirvara sem gr. kveður á um og er samhljóða því, sem er í brtt.

Breytingin, sem felst í frv., sem við erum nú að ræða, er á þessa leið: „Sameignarfélög og samlög eru skattskyld, enda séu þau skrásett firmu og hafi tilkynnt til firmaskrár, að þau óski að vera skattlögð sem félög.“ Numið er burt úr l., ef þetta yrði tekið upp sem lög, að sameignarfélög og samlög, sem hafa það að meginmarkmiði að annast vinnslu eða sölu á framleiðsluvörum félagsmanna, njóti fyrst og fremst þeirra hlunninda, sem hér um ræðir, og enn fremur er það numið burt, að önnur félög komi til greina eingöngu, séu þau með ótakmarkaðri persónulegri ábyrgð félagsmanna. Þetta er numið í burtu, ef frv. verður að lögum óbreytt.

Þessi 1. gr. frv. er sett inn í það af hv. Nd., og þeir, sem þar gerðu till. um viðbót þessa, vildu með henni tryggja það, að þau félagsform, sem kölluð hafa verið sameignarfélög og samlög, þyrftu undantekningarlaust, hvernig sem þau eru upp byggð og að hverju sem þau starfa, alls ekki að greiða tekju- og eignarskatt, ef þau óskuðu heldur, að tekjum þeirra og eignum væri árlega við skattlagningu skipt milli sameigenda í þessum félögum í samræmi við hlutdeild þeirra eða viðskiptaveltu í félaginu og þær skattlagðar hjá þeim. Samkv. ákvæðum l. frá síðasta Alþ. um félagaskatt mun skattstofan í Reykjavík hafa lagt skatta á slík félög nú, en einhverra hluta vegna munu þau lítt eða ekki hafa komið til skatta til ríkis áður. Frsm. till. í hv. Nd. mun hafa haldið því fram, að samhliða þessari skattlagningu á sameignarfélög og samlög leggist skatturinn eins og áður á meðlimi félaganna og væri því um tvísköttun sömu tekna og eigna að ræða, taldi slíka tvísköttun óhæfu, eins og vonlegt er. Það dæmi, sem tekið var, mun fyrst og fremst hafa verið Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna. Ég hef reynt að afla mér nokkurra upplýsinga um þetta mál og skapa mér skoðun á því.

Löggjöf er til bæði um hlutafélög og samvinnufélög. Hins vegar eru engin lög til um félagsform, sem nefnd hafa verið sameignarfélög og samlög. Þau eru því ekki löglega afmörkuð félagsform eða hugtök. Þau geta því verið með ýmsu móti. Þeim er ekki markaður bás að landslögum. Þess vegna eru ákvæði 1. gr. þessa frv. um það, sem er ekki fullkomlega vitað hvað er. Að vísu vitum við, hvað Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna er og við vitum um uppbyggingu hennar. En undir óskilgreind hugtökin sameignarfélög og samlög geta heyrt og eru látin heyra margs konar félög og verði, eins og 1. gr. frv. gerir ráð fyrir, svo sem þau orð sýndu, sem ég las upp áðan úr greininni, heimilað skattfrelsi öllum slíkum félögum, sem hafa bæði ótakmarkaða og takmarkaða ábyrgð og geta verið hvort sem er opin öllum eða lokaður félagsskapur o. s. frv., þá er opnuð gátt fyrir félagsmyndanir, sem komast hjá skattskyldu og hlutafélög og samvinnufélög látin búa við harðari kjör í þessum efnum en þau.

Það fyrsta, sem á að gera, að mér virðist, er að setja löggjöf um sameignarfélög og samlög og síðan miða skattskylduna við eðli félagsskaparins samkv. skilgreiningu þeirrar löggjafar.

En nú spyr máske einhver: Hvernig á að fara með þá álagningu skatts, sem nú hefur átt sér stað? Ekki verður sú löggjöf, sem þú talar um, sett á þessu þingi.

Álagningin, sem átt hefur sér stað, er sem nokkurs konar prófmál. Það hefur skattstjórinn sagt mér. Sölumiðstöðin kærði til yfirskattanefndar Reykjavíkur og yfirskattanefndin er búin að úrskurða, að skatturinn sé ranglega lagður á fyrirtækið, úrskurða, að tekjur og eignir þess ættu, svo sem venja hefur verið, að skiptast til skattlagningar á sameigendur þess. Úrskurðinum hefur verið áfrýjað til ríkisskattanefndar, en hún hefur að ég held — ekki enn fellt sinn úrskurð og nú veit maður ekki, hvort ríkisskattanefndin kemst að sömu niðurstöðu og yfirskattanefndin og ekki heldur, hvort dómstóll mundi komast að sömu niðurstöðum, ef málið yrði látið ganga til dóms. En verði endanleg niðurstaða sú, að skattlagningin sé röng, fellur skattgreiðslan að sjálfsögðu niður. Verði hins vegar niðurstaðan, að hún sé rétt, Sölumiðstöðin sem slík eigi að greiða skattinn, þá segir skattstjóri, að umreiknaður verði skattur sameigendanna og leiðréttur, tvísköttun komi alls ekki til greina endanlega.

Samkvæmt framansögðu tel ég því hiklaust, að 1. gr. í frv, eigi að falla niður. Ég tel, að hún sé ótímabær, meðan líkur benda til, að þeir aðilar, sem kært hafa, fái úrskurð um, að gildandi lög heimili þeim það, sem gr. vill heimila þeim. Auk þess er gr. ekki nægilega afmörkuð að efni. Ákvæði hennar opna allt of víðar dyr. Sameignarfélög og samlög þurfa að vera skilgreind hugtök, áður en þau eru notuð til viðmiðunar á þennan viðtæka hátt. Þá gæti slíkt haft víðtækar afleiðingar og leitt til fjarstæðu í skattamálum félaga að miða við þau, eins og gert í 1. gr. Þess vegna hef ég flutt till. um að fella 1. gr. niður. Hins vegar er ég fús til að eiga hlut að því að flytja till. um, að ríkisstj. verði falið að láta semja frv. til l. um sameignarfélög og samlög, sem þessi gr. minnir vitanlega á að vantar.

Að svo stöddu sé ég ekki ástæðu til þess að gera frekari grein fyrir brtt.