09.05.1959
Efri deild: 115. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 889 í B-deild Alþingistíðinda. (601)
122. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Frsm. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Efnislega vil ég segja það um málið, að mér finnst furðulegt að ætla að knýja málið í gegn hér nú, meðan hæstv. fjmrh., sem málið heyrir undir, er fjarvistum vegna veikinda. En þó að meiri hluti deildarinnar hafi samþ. að taka málið fyrir, þá skilst mér, að það sé alveg á valdi hæstv. forseta að fresta umr. og halda henni áfram á mánudag og ég vil eindregið mælast til þess við hæstv. forseta, að þó að hann hafi samkv. ákvörðun meiri hl. d. tekið málið nú fyrir, þá ljúki hann ekki umr., og tel, að það sé í hans hönd að fresta henni til næsta fundar.