09.05.1959
Efri deild: 115. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 890 í B-deild Alþingistíðinda. (606)

122. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Hermann Jónasson:

Herra forseti. Það er nú auðséð, að þeir, sem borið hafa fram þetta frv., eru búnir að missa áhuga fyrir málinu, og það er sennilega ástæðan fyrir frestuninni, eftir að það hefur tekið þessum breytingum eða kannske yfirvofandi breytingum öllu heldur. Það, sem mér sýnist vera rétt í þessu máli, er það, að í sjálfu sér er eðlilegt að fallast á frestanir, þegar beðið er um það af þeim, sem bera fram mál. En þó er það nú svo, að þeir, sem hafa áhuga fyrir málinu í því formi, sem það e. t. v. verður eftir þessa atkvgr., hafa einnig sinn rétt, engu síður, en hinir, sem hafa borið málið fram, svo þó að sá, sem hefur borið málið fram, sé búinn að tapa áhuga fyrir því, þá verður að taka tillit til þess réttar, sem þeir hafa í málinu, sem búast við að geta breytt því. Og sá, sem hefur ekki lengur áhuga fyrir málinu, á ekki að geta stöðvað mál með því að biðja stöðugt um frest.

Ég læt mitt atkv. velta á því í þessu máli, hvort forseti getur fullvissað d. um það, að málið fái afgreiðslu hér á Alþingi. Það er það, sem skiptir máli í þessu sambandi. Ef þessi frestur verður til þess, að málið fái e. t. v. ekki afgreiðslu og forseti treystir sér ekki til þess að lýsa því yflr, að málið muni fá afgreiðslu hér á Alþingi þrátt fyrir frestunina, þá greiði ég atkv. með því að fresta því ekki. Ef hann lýsir því yfir, að hann sé viss um, að það verði tekin afstaða til málsins endanlega hér á Alþingi, þó að því verði frestað, þá greiði ég atkv. með frestuninni. Og þetta geri ég með tilliti til þess, sem ég álít að sé eðlilegt og rétt, að vilji þingsins fái að koma fram í þessu máli, en sé ekki komið í veg fyrir það með frestun.