09.05.1959
Efri deild: 115. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 891 í B-deild Alþingistíðinda. (607)

122. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Forseti (BSt):

Ég veit ekkert um það, að áhugi hæstv. ráðh. í þessu máli sé horfinn. Hitt veit ég, að ég hef fengið þau boð, að hann væri veikur og þess vegna hefur hann beðið að taka málið af dagskrá undanfarið. Ég get ekki ábyrgzt, hver verða úrslit málsins í Alþingi, í hv. Nd., en hinu skal ég lofa, hvort sem ráðh, verður veikur eða ekki veikur á mánudaginn, að taka þá málið fyrir. (Gripið fram í: Það seinkar að visu málinu.) Það seinkar málinu. En ég tel víst, að það verði fundur í Nd. á þriðjudag, það hlýtur að verða. Það fara fleiri mál hér til Nd. Og það skal verða 1. mál á dagskrá á mánudag. (Gripið fram í: En tryggir það afgreiðslu málsins á þingi?) Ég get ekki sagt um það, hvað Nd. gerir. Hvernig á ég að ábyrgjast, hvað Nd. gerir? Ég veit heldur ekkert, hvernig atkv. falla hér í hv. d., fyrir fram. Ég er í fjhn. og hef áður mælt með þessu máli og mun greiða atkv. með því. Hvað hinir gera, get ég ekki ábyrgzt neitt um. En málið skal verða tekið fyrir sem fyrsta mál á fundi deildarinnar á mánudag, ef menn geta látið sér það nægja og það þarf ekki nema eina umr. í Nd., og ætti því að vera nógur tími til að afgreiða málið. (Gripið fram í: Það kynni nú að þurfa í sameinað þing.) Það verður áreiðanlega fundur í sameinuðu þingi, áður en þingi er lokið, eftir þriðjudag, eftir mánudag. Úr því að d. samþykkti að taka málið fyrir og það er þegar búið að taka málið fyrir, þá ber ég það upp, að því skuli frestað til fundar á mánudag.