24.11.1958
Neðri deild: 27. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 44 í B-deild Alþingistíðinda. (61)

3. mál, tollskrá o. fl.

Frsm. (Skúli Guðmundsson):

Herra forseti. Frv., sem hér liggur fyrir, um bráðabirgðabreyt. á l. um tollskrá o.fl., felur í sér bæði hækkun á tollum og einnig heimild til þess að fella niður aðflutningsgjöld af vissum vörutegundum. Frv. um þetta efni hafa verið samþ. á mörgum þingum á liðnum árum, fyrir eitt ár í senn og það frv., sem hér liggur fyrir, er nákvæmlega shlj. lögum, sem sett voru á síðasta þingi og gilda fyrir árið 1958.

Fjhn. er sammála um að mæla með því, að frv. verði samþ.