12.05.1959
Neðri deild: 125. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 901 í B-deild Alþingistíðinda. (619)
122. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Jón Pálmason:
Herra forseti. Ég skal nú ekki ræða neitt hér efnishlið þessa máls, en get tekið undir það, sem tveir síðustu ræðumenn hafa sagt um þessa till., í flestum atriðum. En eins og menn vita, þá er þetta eitt af viðkvæmustu málum, sem hér eru til afgreiðslu og það hefur tekið töluvert miklum breytingum í hv. Ed. Ég vildi þess vegna leggja til, að málinu yrði vísað til hv. fjhn., og þó að hún hefði ekki nema svona hálftíma eða klukkutíma til umráða, þá er hún svo kunnug þessu máli, að ég held, að það sé eðlilegra, að því sé vísað til hennar, áður en gengið er til atkv. um það í heild sinni.