30.04.1959
Neðri deild: 120. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 964 í B-deild Alþingistíðinda. (655)

90. mál, útflutningssjóður o. fl.

Frsm. meiri hl. (Pétur Pétursson):

Herra forseti. Fjhn. hefur haft þetta frv. til l. um breyt. á lögum um útflutningssjóð o. fl., sem er stjfrv., til athugunar um alllangan tíma. Ástæðan til þessa dráttar er fyrst og fremst sú, að n. þótti ekki tiltækilegt að afgreiða málið, fyrr en séð yrði, hver fjárhagsafkoma sjóðsins gæti orðið eftir þeim áætlunum, sem gerðar yrðu. Þessar áætlanir liggja nú fyrir, og mun ég víkja nokkuð að þeim síðar, en okkur virðist, að ekki sé ástæða til að ætla annað en sjóðurinn muni geta staðið við sínar skuldbindingar.

Þær brtt., sem við flytjum á þskj. 459, gera ráð fyrir eftirfarandi breytingum á frv.:

Í fyrsta lagi er brtt. okkar varðandi 1. gr. frv., sem gerir aðeins ráð fyrir nánari útskýringu varðandi útreikning á skiptaverði á fiski. Er þessi útskýring sett inn í frv. til að fyrirbyggja allan hugsanlegan misskilning varðandi útreikning skiptaverðs.

Í öðru lagi er um að ræða umorðun á 2. gr. frv., en þar er nánar tiltekið, á hvern hátt reiknaðar skuli uppbætur á útfluttar landbúnaðarafurðir.

Í þriðja lagi er till. okkar varðandi 44. gr. laganna um útflutningssjóð o. fl., þ. e. a. s. 1. mgr. hennar. Þetta atriði hefur verið nokkuð rætt hér að undanförnu á hv. Alþ. í sambandi við afgreiðslu fjárlaga. Samkvæmt gildandi lögum er heimilt að innheimta 160% sérstakt gjald af bifreiðum og bifhjólum, sem flutt eru til landsins. Samkvæmt þessari till. okkar, sem flutt er að beiðni hæstv. ríkisstj., er gert ráð fyrir, að þetta sérstaka gjald verði hækkað upp í 300%, ef um innflutning bifreiða er að ræða án gjaldeyris. Ef um gjaldeyrisúthlutun er að ræða, er gert ráð fyrir, að gjaldið verði 250%. Þó hefur þótt rétt, að gjaldið væri nokkru lægra, þegar um bifreiðar fyrir atvinnubifreiðastjóra er að ræða, eða 225% í stað 250%, en dýrtíðarsjóðsgjald, 35%, hefur á undanförnum árum verið fellt niður af slíkum bifreiðum.

Eftir þeim áætlunum, sem gerðar hafa verið um innflutning bifreiða, er gert ráð fyrir, að innflutningur á gjaldeyrislausum bifreiðum verði aukinn um 250 bíla, miðað við árið 1958, og um 100 bíla, sem úthlutaður er gjaldeyrir fyrir.

Það hefur heyrzt stundum, að e. t. v. yrði ekki hægt að fá kaupendur að öllum þessum bílum, sem er þó ekki nein veruleg aukning frá s. l. ári, vegna þess, hvað þeir yrðu dýrir. Ekki hef ég trú á, að sú verði raunin. Eftirspurn eftir bifreiðum, bæði með og án gjaldeyris, hefur verið svo mikil, að með ólíkindum má telja. Á undanförnum árum hefur verið óskað eftir margfalt fleiri bifreiðum, en hægt hefur verið að fullnægja. Þetta þekki ég vel. Auk þess er vitað mál, að bílar, sem hafa komið til landsins á undanförnum árum, hafa stundum og raunar kannske oft og tíðum verið seldir á mun hærra verði, en þeir hafa kostað í innkaupi þrátt fyrir 160% gjaldið. En þetta gjald verður hækkað og innflutningurinn gerður nokkru frjálsari en verið hefur og ætti að mega gera ráð fyrir, að svokallaður svartur markaður á bifreiðum ætti e. t. v. nokkuð að minnka. Ég hef sem sagt engar áhyggjur fyrir mitt leyti af því, að bílarnir gangi ekki út.

Ég vil með nokkrum orðum gera grein fyrir því, hvernig gert er ráð fyrir að staða útflutningssjóðs verði, miðað við þær áætlanir, sem fyrir liggja.

Efnahagsmálaráðunautur ríkisstjórnarinnar, Jónas Haralz, hefur gert skýrslu um stöðu útflutningssjóðs og er kannske réttast að lesa úr henni kafla, sem er þannig, með leyfi hæstv. forseta:

„Þegar lögin um útflutningssjóð o. fl. voru sett í maímánuði 1958, var ráð fyrir því gert, að rekstur sjóðsins gæti verið hallalaus með þeim gjöldum og tekjum, sem þau lög gerðu ráð fyrir. Það var þó ljóst frá upphafi, að þetta gat því aðeins staðizt, að gjaldeyristekjur væru háar og notkun erlends lánsfjár mikil og þar af leiðandi væri hægt að halda uppi miklum innflutningi á hágjaldavörum.

Reynsla sú, sem fengizt hefur af starfsemi sjóðsins í hartnær eitt ár, staðfestir þetta í öllum aðalatriðum. Þrátt fyrir mikinn útflutning og mikla notkun erlends lánsfjár á árinu 1958, var innflutningur hágjaldavöru ekki eins mikill og áætlað hafði verið, þegar lögin um útflutningssjóð voru sett. Staða sjóðsins á árinu batnaði um hér um bil 40 millj. kr., vegna þess að síðari hluta ársins fékk sjóðurinn tekjur samkv. hinum nýju lögum, en innti gjöld lengi vel eftir hinum gömlu. Á þeim hluta ársins 1959, sem liðinn er, hefur staða sjóðsins aftur versnað verulega. Stafar þetta af því, að allmiklar greiðslur hafa á sjóðinn fallið samkv. þeim bótum, sem ákveðnar voru með l. um útflutningssjóð á s. l. ári og niðurgreiðslur hafa verið auknar, en einnig af því, að innflutningur á hágjaldavöru hefur verið lágur á fyrstu mánuðum ársins.

Ríkisstj. hefur nýlega í samráði við seðlabankann lokið samningu greiðslujafnaðar- og innflutningsáætlunar fyrir árið 1959 og hefur innflutningsskrifstofan og bankarnir nú byrjað að starfa á grundvelli þessara áætlana. Stefna þessara áætlana miðar m. a. að því að tryggja nógu mikinn innflutning hágjaldavöru á árinu 1959, til þess að áætlanir þær, sem upphaflega voru gerðar um afkomu útflutningssjóðs á s. l. vori, fái staðizt, þ. e. a. s., að sjóðurinn verði hallalaus með þeim tekjum og gjöldum, sem þá voru ákveðin.

Meðfylgjandi yfirlit sýnir áætlun um afkomu sjóðsins á árinu 1959 samkv. þeim greiðslujafnaðar- og innflutningsáætlunum, sem að framan getur og samkv. þeim forsendum, að tekjur og gjöld haldist þau sömu og ákveðin voru með l. um útflutningssjóð á s. l. ári. Er niðurstaða áætlunarinnar sú, að gjöldin eru 20 þús. kr. hærri en tekjur. Er þetta mjög lítil upphæð, miðað við veltu sjóðsins, um 1½% af heildartekjum og má því segja, að jafnvægi sé nokkurn veginn á milli tekna og gjalda sjóðsins samkv. þeim forsendum, er áætlanirnar byggjast á, enda eru þær forsendur í öllum aðalatriðum þær sömu og áætlanir um afkomu sjóðsins á yfirstandandi ári, voru byggðar á. Þessar niðurstöður sýna hins vegar ljóslega, á hve völtum fótum fjárhagur sjóðsins hefur staðið frá öndverðu. Enginn möguleiki hefur verið til þess, að tekjur mættu gjöldum, nema innflutningur hátollavöru væri mjög hár. En af þeim innflutningi getur hins vegar ekki orðið, nema hvort tveggja komi til, miklar gjaldeyristekjur og mikil notkun erlends lánsfjár. Jafnvel á þessum forsendum er ekki nema rétt svo, að tekjur geti mætt gjöldum.

Eins og kunnugt er, munu útgjöld sjóðsins aukast verulega á þessu ári vegna aukinna niðurgreiðslna og aukinnar aðstoðar við útgerðina. Áætlað er, að þessi auknu útgjöld nemi samtals 199 millj. kr. Til þess að standa straum af þessum auknu útgjöldum er gert ráð fyrir því, að útflutningssjóði verði aflað nýrra tekna af skatti af bílaleyfum, að greiðslur hans til ríkissjóðs falli niður og til sjóðsins verði veitt fé á fjárlögum.“

Þessi sundurliðun um tekjuöflun sjóðsins er svo sú, að hækkun leyfisgjalda á bílum er gert ráð fyrir að nemi 30,4 millj. kr., niðurfelling á greiðslum til ríkissjóðs 20 millj. og fjárveiting samkv. fjárl. 152,1 millj., eða samtals 202,5 millj. kr. En áætlun um útgjaldaaukningu sjóðsins á árinu 1959 er þessi: Aukin aðstoð við útflutningsatvinnuvegina: sjóvátryggingaiðgjöld báta 25 millj., bráðafúatryggingaiðgjöld báta fyrir árið 1959 7,3 millj., bráðafúatryggingaiðgjöld báta fyrir árið 1958 4 millj., sérbætur til vinnslustöðva 20,7 millj., niðurgreiðsla á beitu 1,8 millj., bætur til togara, báta og vinnslustöðva vegna kaupgreiðsluvísitölu 202 í janúar 9,8 millj., hækkun bóta á síld, sem veidd er á tímabilinu 1. jan. til 15. maí, 0,7 millj., hækkun bóta á sumar- og haustsíld umfram greiðslu trygginga fyrir bátana, áætluð 5,5 millj., hækkun bóta á útfluttar landbúnaðarafurðir 7,5 millj. Auknar niðurgreiðslur: niðurgreiðslur, er tóku gildi 1. jan. 1959, 83,3 millj., niðurgreiðslur, er tóku gildi 1. marz 1959, 25,8 millj., hækkun útgjalda vegna aukinnar neyzlu niðurgreiddra vara frá því, sem áður hafði verið áætlað, 7,6 millj. Samtals eru þetta þá 199 millj. kr., eins og ég sagði áðan.

Sá 20 millj. kr. halli, sem um er rætt í grg. Jónasar Haralz, kemur þannig ekki af því, að sjóðnum hafi ekki verið séð fyrir tekjum vegna aukinna útgjalda, eins og fram kemur af áðurnefndu yfirliti, þar eð gjaldaaukning er talin vera 199 millj., en tekjuaukning 202,5 millj. Þessi halli kemur hins vegar fram af því, að grundvöllurinn fyrir útflutningssjóði var svo veikur í fyrra, þegar lögin um hann voru sett, að miðað við þá útflutningsáætlun, sem gerð hefur verið og þær skuldbindingar, sem sjóðurinn hafði árið 1958, hefði halli á honum orðið u. þ. b. 20 millj. Á hinn bóginn bætti sjóðurinn stöðu sína um nær því 40 millj. á árinu sem leið, sem stafar auðvitað eingöngu af því, að vertíðaraflinn frá vertíð 1958 var að mestu bættur með gömlu bótunum, þegar hann var fluttur út, en sjóðurinn fór strax að fá auknar tekjur af innflutningnum, eftir að lögin tóku gildi. Það er því ekki um það að ræða, að útflutningssjóði sé gert erfiðara fyrir vegna þeirra auknu útgjalda, sem honum er nú gert að inna af hendi, hann fær tekjur fyllilega á móti þeim. Á hinn bóginn er sami grundvöllur undir sjóðnum nú og settur var með l. í fyrra og sá grundvöllur er, eins og ég sagði, það veikur, áð gera má ráð fyrir einhverjum halla. En þegar á það er litið, að hér er um mjög litla upphæð að ræða, miðað við heildartekjur sjóðsins og eins á hitt, hvernig tekjuliðirnir eru uppbyggðir, þykir okkur í meiri hl. ekki ástæða til að ætla annað, en að sjóðurinn muni geta staðið við skuldbindingar sínar og mælum því með, að frv. verði samþ. ásamt þeim brtt., sem við höfum lagt fram.