30.04.1959
Neðri deild: 120. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 967 í B-deild Alþingistíðinda. (656)
90. mál, útflutningssjóður o. fl.
Skúli Guðmundsson:
Herra forseti. Það er rétt, sem segir í nál. meiri hl. fjhn., að við endanlega afgreiðslu málsins í n. greiddi ég ekki atkv. Hins vegar liggur ekki fyrir enn nál. frá mér. En ég legg ekki fram, a. m. k. ekki að svo stöddu, neinar brtt. og mun ekki gera neina aths. út af því, þó að haldið verði áfram 2. umr. málsins, án þess að mitt álit liggi fyrir, en það mun væntanlega liggja fyrir þá á síðara stigi málsins eða þegar það er tekið til 3. umr.
Ég vil fyrst aðeins nefna þær brtt., sem meiri hl. fjhn. flytur á þskj. 459. Ég vil segja það um 1. brtt., að ég mæli með henni. Hún er við 1. gr. frv. og er aðeins til nánari skýringar. Ég mæli einnig með 2. brtt. frá meiri hl., sem er við 2. gr. frv. Í þeirri brtt. er lagt til að umorða 8. gr. l., en í henni eru ákvæði um bætur á útfluttar landbúnaðarafurðir, hvernig þær skuli reikna. Till. þessa flytur meiri hl. n. eftir tilmælum frá hæstv. ríkisstj. og ég hef með viðtali við framkvæmdastjóra framleiðsluráðs landbúnaðarins fengið að vita, að hann hefur ekkert við þetta orðalag að athuga, sem er á ákvæðunum í þessari brtt. Hins vegar stend ég ekki að 3. brtt. meiri hl. á þskj. 459, sem er um breyt. á 44. gr. l. Ég á engan þátt í þeirri till.
Frv. þetta er borið fram af hæstv. ríkisstj. til þess að fá staðfest samkomulag, sem hún gerði um síðustu áramót við útflytjendur, aðallega útvegsmenn og eigendur vinnslustöðva sjávarafurða, um hækkun á bótum til þeirra. Það er áætlað, að þessi bótahækkun til útflutningsins nemi fullum 80 millj. kr.
Það hefur verið svo hér hjá okkur lengi, að útflytjendum er með lögum skammtað verð fyrir þann erlenda gjaldeyri, sem þeir afla með útflutningi á framleiðsluvörum og þetta verð, sem greitt er fyrir gjaldeyrinn, hefur undanfarið verið allmiklu lægra, en útflytjendur þurfa að fá, til þess að þeir fái greiddan sinn framleiðslukostnað. Það liggur í augum uppi, að meðan þessi háttur er á hafður, þá verður ekki hjá því komizt að greiða útflytjendum bætur til þess að jafna hallann, sem þarna kemur fram. Hitt er annað mál, að mér hefur fundizt, bæði nú og áður, að afskipti ríkisstj. af þessum málum væru óeðlilega mikil. Mér hefði fundizt eðlilegt, að þessu væri hagað þannig, að það væri reynt að meta, hvað þyrfti að greiða miklar útflutningsuppbætur, til þess að útflutningsframleiðslan gæti staðið undir sér, en lengra væri ekki gengið í samningum ríkisstj. við framleiðendur um þessi efni.
Hins vegar hefur þetta verið þannig bæði nú og undanfarin ár, að ríkisstj. hefur haft með höndum ákaflega margbrotna samninga og við marga aðila um þessi mál. Það er svo komið, að ríkisstj. er farin að hafa afskipti af því um hver áramót, hvernig útvegsmenn og sjómenn skipta með sér því aflaverðmæti, sem berst á land og því til viðbótar, er ríkisstj. líka í samningamakki um hver áramót við útvegsmenn og eigendur vinnslustöðva sjávarafurða um það, hvernig þessir aðilar skipti á milli sín verðmæti aflans. Ríkisstj. er farin að hafa afskipti af því og vera þar samningsaðili um mörg atriði í þessu sambandi. Hún er farin að skipta sér af því, hvað vinnslustöðvarnar greiða útvegsmönnum og sjómönnum fyrir kíló af þorski, hve mikið fyrir ýsukílóið, hvað fyrir löngu og keilu o. s. frv. Við erum komnir ákaflega langt frá frjálsum viðskiptum með svona fyrirkomulagi og þegar svona langt er gengið í þessum ríkisafskiptum, þá tel ég, að komið sé út í öfgar. Þessi miklu afskipti mega teljast að ýmsu leyti hlægileg, þó að hér sé vitanlega um stórt og alvarlegt mál að ræða.
Mér fyndist það miklu eðlilegra, að þeir, sem draga aflann á land, ákveði það án afskipta ríkisstj., hvernig þeir fara að því að gera úr honum sem mest verð, hvernig þeir haga verkun aflans, hvort þeir hafa hana í sínum höndum, sem ég tel langeðlilegast og að þeir myndi þá félagsskap um aflaverkunina, eftir því sem þörf krefur, þar sem þessi viðfangsefni eru oft ekki viðráðanleg hverjum einstökum útgerðarmanni um sig. Þetta teldi ég eðlilegra, en að þeir selji fyrir ákveðið verð eigendum vinnslustöðva sinn fisk. Og jafnvel þó að slík viðskipti eigi sér stað, þá sýnist það nokkuð langt gengið, að ríkisstj. skuli um hver áramót þurfa að vera þar samningsaðili, eins og verið hefur nú um skeið. En ég skal ekki frekar ræða um einstök atriði í þessum flóknu samningum ríkisstj.
Eins og þegar hefur verið getið, er talið, að aukning útflutningsbótanna úr útflutningssjóði nemi rúmlega 80 millj, kr. í allt og er það í ýmsu formi. En núverandi ríkisstj. hefur einnig aukið stórkostlega niðurgreiðslur á vöruverði innanlands, að mestu á landbúnaðarvörum og árlegur kostnaður við niðurgreiðslurnar hefur í hennar stjórnartíð verið aukinn um nokkuð á annað hundrað millj. kr. Það er ekki nýtt að greiða niður vöruverð innanlands til þess að sporna við frekari hækkun vísitölunnar, en aldrei hefur áður verið gengið svo langt út á þá braut, sem nú er gert og ég tel hér svo langt gengið, að það sé á margan hátt varhugavert. Það er t. d. komið svo nú, að útsöluverð á landbúnaðarvörum til neytenda er orðið lægra en það verð, sem framleiðendum sjálfum er reiknað til tekna við verðlagsútreikninginn. Þetta á þó sérstaklega við um mjólkina, en að nokkru einnig um kjötið og með þessu fyrirkomulagi, með því að ganga svona langt í niðurgreiðslunum, er hlutur bændanna gerður verri en annarra og er óhjákvæmilegt að fá leiðréttingu á þessu hið fyrsta.
Í 3. gr. l. um útflutningssjóð, sem sett voru í maímánuði í fyrra, eru ákvæði um bætur á fob.-verðmæti útfluttra vara, sem útflutningssjóður greiðir. Þarna eru ákveðnir þrír bótaflokkar í lögunum. Á allan fisk og fiskafurðir, að undanteknum síldarafurðum, var ákveðið að greiða 80% útflutningsbætur, á afurðir úr sumarveiddri Norður- og Austurlandssíld 55% og á afurðir úr annarri síld, þ. e. a. s. Faxasíld og smásíld, 70%. Í þessari lagagrein segir, að allar aðrar útfluttar vörur skuli bættar samkv. einhverjum flokkanna, sem ég nú hef nefnt, og enn fremur, að ríkisstj. sé heimilt að fengnum till. stjórnar útflutningssjóðs að flytja einstakar vörur milli bótaflokka.
Samkv. upplýsingum, sem fjhn. fékk hjá ríkisstj., var nokkuð að þessu gert á næstliðnu ári, að flytja vörur á milli bótaflokka. Þannig var ákveðin 80% uppbót á Faxasíld og smásíld í stað 70% uppbótar, sem upphaflega var ákveðin í lögunum og einnig var okkur tjáð, að á verulegan hluta af sumarveiddri síld, sem lögð var á land á Austfjörðum, hafi verið greidd 70% uppbót í stað 55%.
Þegar við í fjhn. ræddum við hæstv. forsrh. um þetta mál fyrir skömmu, sagði hann okkur, að ríkisstj. hefði enn ekki gert neina samninga við síldarútvegsmenn um uppbætur á síld og síldarafurðir á komandi sumri og mér þykir líklegt, að það hafi ekki gerzt síðan, eða ég hef a. m. k. ekki af því frétt. En í aths., sem fylgja frv., er áætlað, að hækkun bóta á sumar- og haustsíld muni nema 5½ millj. kr. Þar að auki er svo gert ráð fyrir greiðslu tryggingagjalda af bátum á síldveiðum eins og á þorskveiðum. Það er talið samkv. aths. með frv., að þessi hækkun á bótum til síldarútvegsins, 5½ millj. kr., sé hlutfallslega hin sama og hækkun, sem varð á bótum til báta á þorskveiðum.
Ég tel, að hækkun útflutningsbóta til síldarútvegsins hljóti að verða meiri, en hér er áætlað. Það er kunnugt, að síldveiðarnar hafa gengið mjög erfiðlega um mörg undanfarin ár og margir þátttakendur í þeim orðið fyrir tjóni. Verðið fyrir síldina hefur ekki hækkað eins mikið að undanförnu og þurft hefði að vera til að mæta hækkun á útgerðar- og verkunarkostnaði og síldarverksmiðjur hafa verið reknar með tapi.
Þegar litið er á þetta, get ég ekki séð, að það sé sanngjarnt að hafa þann mun á útflutningsbótum á síld og aðra vöru, sem lögin ákveða, en ríkisstj. hefur heimild, eins og ég hef áður bent á, til að flytja vörur á milli bótaflokka, og því getur hún hækkað útflutningsbætur á síldina, þó að breyting verði ekki gerð á lögunum. Þetta var að nokkru gert s. l. ár, eins og ég hef þegar vikið að og ég tel, að þessa heimild verði stjórnin að nota til þess að mæta sanngjörnum óskum frá þessari atvinnugrein.
Í lögunum um útflutningssjóð eru sérstakir kaflar um tekjuöflun til sjóðsins og frá því hefur verið skýrt, að tekjur sjóðsins næstliðið ár hafi reynzt nægar til að vega á móti gjöldunum. Nú er hins vegar búið að gera ráðstafanir, sem hafa í för með sér hækkun á ársútgjöldum sjóðsins, sem nemur um 200 millj. kr. Þetta hefur verið gert með þessari miklu hækkun á niðurgreiðslum og með hækkun útflutningsbóta og mér sýnist, að gjöldin hljóti enn að hækka, þegar ákveðnar verða bætur til síldarútvegsins.
Við afgreiðslu fjárlfrv. hér á þingi í gær var ákveðið, að greiða skyldi úr ríkissjóði rúmlega 150 millj. kr. til útflutningssjóðs og ein af brtt., sem meiri hl. fjhn. flytur, er um að heimila ríkisstj. að hækka gjöld af innfluttum bifreiðum. Segir í nál. meiri hl., að gera megi ráð fyrir, að þetta hækki tekjur sjóðsins um rúmlega 30 millj. kr. Ég held, að hv. frsm. meiri hl. hafi nefnt 30,4 millj. í ræðu sinni áðan. En þrátt fyrir þetta er enn verulegur halli á áætlun um tekjur og gjöld útflutningssjóðs.
Fjárframlagið, sem ákveðið er úr ríkissjóði, er líka fengið með þeim hætti, að ég tel það mjög aðfinnsluvert og vil ég í því sambandi benda á, að greiðsluafgangi ríkissjóðs frá 1958, 25 millj. kr., hefur ríkisstj. og hennar stuðningsmenn fleygt í verðbólguna í staðinn fyrir að fallast á till. okkar framsóknarmanna um að lána þetta fé til byggingarsjóða og veðdeildar Búnaðarbankans, en öllum er kunnugt um, að það vantar mjög tilfinnanlega fé í þessa sjóði. Þetta er einnig að nokkru leyti fengið með því að lækka stórlega framlög frá ríkinu til framfaramála, til verklegra framkvæmda, eins og t. d. raforkuframkvæmdanna. Þá hefur stjórnin einnig ákveðið að auka mjög innflutning á hátollavörum í því skyni að ná í meiri tekjur handa ríkissjóði og útflutningssjóði, en búast má við því, að afleiðingin af þeim ráðstöfunum verði skortur á nauðsynlegum vörum. Enn má í þessu sambandi benda á, að tekjuáætlanir á fjárlagafrv. eru hækkaðar svo mjög, að það verður að teljast ákaflega óvarlegt og ýmis útgjöld ríkissjóðs jafnframt áætluð lægri, en þau fyrirsjáanlega verða, svo að stefnt er að greiðsluhalla hjá ríkissjóði.
Í nóvembermánuði í vetur lagði Framsfl. fram í fyrrv. ríkisstj. till. sínar um úrlausnir í efnahagsmálum á þessu ári, og var stefna flokksins þar skýrt mörkuð. Till. hans voru við það miðaðar, að kaupmáttur launa rýrnaði ekki frá því, sem hann var í október s. l. — eða í febrúar 1958, ef vænlegra þætti til samkomulags, að tryggður væri hallalaus rekstur útflutningssjóðs og ríkissjóðs og framlög til framfaramála yrðu ekki minni á þessu ári, en s. l. ár. Því miður fór svo, að það náðist ekki samkomulag um þessar till. Núverandi hæstv. ríkisstj. og stuðningsmenn hennar hafa ákveðið afgreiðslu þessara mála á þessu ári með allt öðru móti. Þeir ætla að fleyta sér nú fyrst um sinn fram yfir kosningarnar með því að eyða afgangi frá fyrra ári og með því að stofna til skulda, sem framtíðin verður að borga. Fjárlagaafgreiðsla þeirra er ákaflega glæfraleg, eins og ég þegar hef vikið að. Og það kom glöggt fram í umr. um þetta frv. í fjhn., að það er fyrirætlun þeirra að samþykkja það án þess að gera ráðstafanir til að jafna þann greiðsluhalla hjá útflutningssjóði, sem áætlanir þeirra sýna.
Þar við bætist svo það, að þessi greiðsluhalli er sjáanlega of lágt áætlaður vegna síldaruppbótanna, sem eftir er að ákveða. Ég tel, að þessi afgreiðsla á efnahagsmálunum sé allt öðruvísi, en þyrfti að vera, þar sem með þessu er stefnt opnum augum að skuldasöfnun og vaxandi verðbólgu.