22.12.1958
Efri deild: 42. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1008 í B-deild Alþingistíðinda. (723)
73. mál, bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði
Frs. (Bernharð Stefánsson):
Herra forseti. Þótt þess sé ekki getið í grg. þessa frv., þá er það flutt samkvæmt beiðni fjmrn. og er um það að veita ríkisstj. heimild til að greiða úr ríkissjóði til bráðabirgða yfir janúarmánuð í samræmi við ákvæði fjárl. fyrir yfirstandandi ár.
Það mun öllum ljóst nú orðið, að fjárlög verða ekki afgr. fyrir áramót og er því nauðsynlegt að fá heimild til að halda greiðslum áfram úr ríkissjóði eftir áramótin. Það eru sjálfsagt litlar líkur til, að þessi tími, sem hér er tiltekinn, til 1. febrúar nægi, en vitanlega getur þetta þing ekki ákveðið greiðsluheimild slíka lengur en til þess tíma, sem reglulegt Alþ. á að koma saman samkvæmt stjórnarskránni, ef því er ekki breytt með sérstökum l., og er ekki hægt að flytja nú frv. um a. m. k. lengri tíma, en til miðs febrúar. Þetta stendur sjálfsagt til bóta eftir áramótin.
Þar sem frv. er flutt af n. og að því er virðist sjálfsagt mál að veita þessa greiðsluheimild, þá vitanlega legg ég ekki til, að því sé neitt sérstaklega til nefndar vísað.