29.12.1958
Neðri deild: 48. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1012 í B-deild Alþingistíðinda. (737)
73. mál, bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði
Utanr.- og fjmrh. (Guðmundur Í. Guðmundsson):
Herra forseti. Fyrir nokkru var ljóst, að ekki mundi vinnast tími til að afgreiða fjárlög fyrir árið 1959 fyrir lok þessa árs. Vegna ákvæða stjórnarskrárinnar bar því brýna nauðsyn til að afla heimildar fyrir ríkisstj. til að inna af hendi öll venjuleg rekstrargjöld ríkisins í byrjun næsta árs, þar til fjárlög hafa verið samþykkt. Af þessum ástæðum óskaði fyrrv. hæstv. fjmrh. eftir því við fjhn. Ed., að hún bæri fram frv. til l. um að heimila bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði á árinu 1959 til 1. febr. Frv. þetta hefur nú verið afgreitt við þrjár umr. í Ed. og er komið til þessarar hv. deildar.
Leyfi ég mér að óska eftir því, að frv. verði afgreitt hér í dag, ef nokkur tök eru á, við þrjár umr., þannig að hægt sé að afgreiða það sem lög frá Alþ. nú á þessum degi.