31.10.1958
Efri deild: 13. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 46 í B-deild Alþingistíðinda. (74)

10. mál, skemmtanaskattur með viðauka

Frsm. (Björn Jónsson):

Herra forseti. Hér liggja fyrir nokkrar upplýsingar um stöðu félagsheimilasjóðs, sem óskað hefur verið eftir að yrðu gefnar hér í d. í sambandi við afgreiðslu þessa máls.

Skv. upplýsingum fræðslumálaskrifstofunnar var staða félagsheimilasjóðs um síðustu áramót að loknum úthlutunum þá vegna skemmtanaskattshluta sjóðsins fyrir árið 1957 sú, að ógreidd áætluð þátttaka í byggingarkostnaði þeirra félagsheimila, sem þá voru í smíðum eða ekki að fullu gert upp fyrir, nam 4.3 millj. Kostnaður við smíði félagsheimila á þessu ári er áætlaður 9 millj. kr. og áætluð þátttaka sjóðsins í þeim kostnaði 3.6 millj. kr. Áætluð fjárþörf sjóðsins, til þess að hann geti gert upp að fullu áætlaða þátttöku í byggingarkostnaði félagsheimila þeirra, sem að framan er minnzt á, þ.e.a.s. þeirra, sem óuppgert var fyrir í árslok 1957 og þeirra, sem byggð hafa verið á þessu ári, næmi því í desember n.k. 8 millj. kr. En nettóupphæð innheimts skemmtanaskatts árið 1957 nam 5 millj. 799 þús. kr., og þetta er sú upphæð, sem kom til skipta. Þá áætlar fræðslumálaskrifstofan, að nettóupphæð skemmtanaskatts á þessu ári nemi 5.8 millj. og hluti félagsheimilasjóðs yrði þá 2.9 millj. Þegar þeirri upphæð hefur verið úthlutað, næmi ógreidd áætluð þátttaka í byggingarkostnaði þeim, sem fyrr er frá greint, 5.1 millj. kr. eða þar um bil. Hagur sjóðsins hefði því gagnvart þeim, sem reisa félagsheimili, versnað um 800 þús. kr. á árinu.

Þá upplýsir fræðslumálaskrifstofan, að sú lagabreyting, sem gerð var á lögum um félagsheimili í maí 1957, hafi fram að þessu engin áhrif haft á hag sjóðsins, þar sem engin verkalýðsfélög eða búnaðarfélög sérstaklega hafa æskt styrkja úr sjóðnum fram að þessu, hins vegar sé vitað, að undirbúningur sé hafinn um byggingu félagsheimila verkalýðsfélaga í þrem kaupstöðum.