28.01.1959
Efri deild: 55. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1014 í B-deild Alþingistíðinda. (766)
91. mál, bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði
Frsm. (Bernharð Stefánsson):
Herra forseti. Ég verð að byrja með því að biðja þá hv. 4. þm. Reykv. (EggÞ) og hv. 6. þm. Reykv. (GTh), ef hann mætti mál mitt heyra, afsökunar á því, að meiri hl. fjhn. ákvað að flytja þetta mál á fundi, sem ekki vannst tími né tækifæri til að boða þessa tvo hv. nm. á. Afsökun mín og hinna tveggja fjhn.-mannanna, sem á fundinum sátu, er í fyrsta lagi sú, að hæstv. fjmrh. fékk mér þetta frv. í gær með tilmælum um, að ég beitti mér fyrir því, að fjhn. flytti það og lagði hann áherzlu á, að því yrði flýtt sem mest, sem líka efni frv. og eðli málsins sýnir að þarf að gera. Og í öðru lagi er það, að ég lít á flutning fjhn. á þessu máli sem hreint formsatriði, og þess vegna vonast ég eftir því, að þessir tveir hv. fjhn.-menn afsaki þessa aðferð, sem höfð var.
Efni þessa frv. er það eitt að framlengja heimild þá, sem ríkisstj. var veitt í lögum nr. 73 f. á. um bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði á yfirstandandi ári, til 1. marz þ. á. En þessi lög, síðustu lögin, sem Alþingi afgr. fyrir áramót, sem hér er farið fram á að framlengja, voru um það að heimila ríkisstj. til 1. febr. öll venjuleg rekstrargjöld ríkisins og önnur gjöld, er talizt geta til venjulegra fastra greiðslna þess. Nú er 1. febr. senn kominn og alveg fyrirsjáanlegt, að fjárlög verða ekki afgr. fyrir þann dag.
Þegar þetta mál, lögin, sem nú eru í gildi um þetta efni, var hér til umr. í hv. d., benti ég á, að það væri mjög vafasamt, að þessi tími, sem þar var tiltekinn, 1. febr., væri nægilega langur og hefur það rætzt. Nú virðist mér, að það sé mjög vafasamt, hvort sá tími, sem í frv., sem fyrir liggur, er tiltekinn, að heimildin gildi til 1. marz, sé nægilegur. Ég er ekki í fjvn. að vísu og veit ekki vel, hvað þar gerist, en nær er mér að halda, að það líði þó a. m. k. einhverjir dagar, þar til nál. kemur frá hv. fjvn., og við vitum, að alltaf tekur meðferð fjárlaganna, eftir að þau koma úr n., nokkurn tíma í þinginu. Á hinn bóginn sé ég ekki ástæðu til og n., eða sá hluti hennar, sem flytur þetta frv., að vera að bjóða hæstv. ríkisstj. lengri frest, en hún sjálf fer fram á. Hæstv. fjmrh. er ekki hér viðstaddur í d., en hér er annar hæstv. ráðh., og ég vildi segja það sem mína skoðun, að ég skil ekki í öðru, en fjhn. mundi fallast á það, að ef ríkisstj. óskaði þess að framlengja þennan frest, þá hygg ég, að það mundi vera auðvelt að fá það samþ. hér í hv. d., t. d. þó að það væri til 1. apríl, sem ekki gæti gert neinn skaða, því þó að fjárlögin yrðu afgr. fyrr, þá falla þessi lög af sjálfu sér úr gildi og fjárl. taka við. Ég bendi aðeins á þetta. En ég geri ekki ráð fyrir, að fjhn. beri neinar till. fram um þetta, án þess að ósk komi fram um það frá hæstv. ríkisstj.