28.01.1959
Efri deild: 56. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1015 í B-deild Alþingistíðinda. (771)

91. mál, bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði

Björn Jónsson:

Herra forseti. Þegar fjhn. tók beiðni fjmrh. um framlengingu á heimild til greiðslna úr ríkissjóði fyrir á fundi sínum í gær, hljóðaði sú beiðni upp á það, að greiðsluheimildin yrði framlengd til 1. marz n. k. Mér er ekki ljóst, að síðan þessi beiðni var sett fram, hafi ástæður á nokkurn hátt breytzt og ekkert hefur komið fram um það, hvers vegna þessi skyndilega breyting er nú á orðin, að ríkisstj. telur, að afgreiðsla fjárl. kunni að dragast til 1. apríl.

Ég hef þær upplýsingar frá meðlimum fjvn., að n. eigi ekki eftir meira starf, en sem svarar viku til hálfs mánaðar, og tel því þessa brtt. með öllu ástæðulausa.

Ég hef þess vegna ekki staðið að þessari brtt. fjhn. og mun greiða atkv. á móti henni.