30.01.1959
Neðri deild: 67. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1017 í B-deild Alþingistíðinda. (781)

91. mál, bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði

Frsm. (Pétur Pétursson):

Herra forseti. Þetta frv. er komið frá Ed. Fjhn. hefur rætt málið á fundi sínum og nefndin mælir með því, að frv. verði samþykkt. Einn nefndarm., hv. 3. þm. Reykv. (EOl), hefur lagt fram brtt. á þskj. 209, og annar nm., hv. þm. V-Húnv. (SkG), hefur einnig skrifað undir með fyrirvara.