10.11.1958
Neðri deild: 18. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 31 í B-deild Alþingistíðinda. (8)

40. mál, þingsköp Alþingis

Ólafur Thors:

Herra forseti. Það er nú eins og fyrri daginn, að það er heldur leitt verk að deila með rökum við þennan hæstv. ráðh. Ég sagði, að til góðs eða ills hefðu kommúnistarnir haft forustuna í þessum málum — og að mínu viti til ills. Ég sagði að gefnu tilefni frá honum, að það, sem ég gæti í dag um þetta sagt án þess að skaða málstað þjóðarinnar, væri það, að hann hefði ekki þorað að færa út grunnlínurnar, enda þótt sú stefna nyti miklu meira fylgis á Genfarráðstefnunni, en 12 mílurnar. Ég sagðist mundu geta gagnrýnt fleira í hans stjórn á þessum málum, þótt ég teldi ekki þjóðinni til farsældar að gera það opinberlega nú. Svar hans var ekkert annað en þessi venjulegi haldlausi marglittu-ósannindavefur, þar sem erfitt er að festa hendurnar á því, en hvergi er hald í neinu, sem hann segir. Helzt var það þó það, að Sjálfstfl. hefði ekki viljað aðhyllast útfærslu grunnlínanna, — alls ekki. En ég hef nú hér í fundarbók flokksins afrit, sem raunar hefur einnig birzt á prenti, af þeirri yfirlýsingu, sem ég í viðurvist borgarstjóra Reykjavíkur las upp fyrir hæstv. forsrh. og hæstv. utanrrh, á skrifstofu utanrrh. hinn 20. eða 21. maí s.l., kl. 4 e.h., sem stefnuyfirlýsingu Sjálfstfl. í þessum málum, og þar segir m.a., með leyfi hæstv. forseta:

Forsrh. hefur tilkynnt Sjálfstfl., að Framsfl. hafi ákveðið að hafna algerlega viðræðum við NATO-ríkin, áður en fiskveiðimörkin verði færð út og hafi samþykkt, að fiskveiðimörkin skuli vera 12 mílur frá landi, en að óbreyttum grunnlínum“ o.s.frv. Svo kemur: „Sjálfstfl. getur ekki fallizt á þessa ákvörðun Framsfl., sumpart vegna efniságreinings og sumpart vegna ágreinings um málsmeðferðina.“ Og loks segir: „Sjálfstfl. treystir því, ef málstaðurinn sé skýrður fyrir samstarfsþjóðum okkar, að eftir þær útskýringar og rökræður muni ekki aðeins útfærslan í 12 mílur, heldur og nauðsynleg rétting á grunnlínum fagna meiri skilningi og samúð, en nú og geta komið fyrr til framkvæmda.“

Þetta er tilkynning frá Sjálfstfl., lesin upp af formanni flokksins — og í fjarveru formanns þingflokksins í viðurvist borgarstjórans í Reykjavík — fyrir hæstv. forsrh. og hæstv. utanrrh. Það er stefnuyfirlýsing flokksins, hún er lesin og tilkynnt þeim ráðherranum, sem okkur bar fyrst og fremst að snúa okkur til í þessum efnum, einum eða tveimur dögum áður en ríkisstj. tekur sína ákvörðun. M.ö.o., þessi hæstv. ráðh. veit það, að eitt af því, sem gerir, að Sjálfstfl. vill ekki fallast á þeirra stefnu í málinu, er það, að stjórnin vildi ekki færa út grunnlínurnar. Svo kemur hann hér og segir, að Sjálfstfl. hafi verið á móti því að færa út grunnlínurnar. Ég veit ekki, hvað ætlazt er til að sagt sé um svona ráðherra eins og þennan, en ég vil bara minna hann á, að honum væri bezt að tala um þetta varlega, því að hann á eftir að standa skil á þeim stóru svæðum, sem hann gaf eftir, þegar hann var að bolast við að færa út í því skyni að koma ófriði á stað. Þá vildi hann ekki grunnlínurnar, sem kannske skipta Íslendinga ekki minna máli, en 12 mílurnar og þurfti þó hvort tveggja til og hefði samt ekki nægt.