15.01.1959
Efri deild: 49. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1026 í B-deild Alþingistíðinda. (815)
35. mál, dýralæknar
Sigurvin Einarsson:
Herra forseti. Ég á brtt. við þetta frv., en nú hefur hv. landbn. fallizt á að taka hana að mestu leyti óbreytta upp í sínar brtt., og er þá fullnægt því, sem ég fór fram á með brtt., auk þess er þetta gert í fullu samráði við mig, þar sem ég átti sæti í nefndinni. Ég sé ekki, að ég þurfi að taka brtt. aftur, því að hún fellur af sjálfu sér, ef till. nefndarinnar verða samþykktar. (Forseti: Hún verður borin upp fyrr.) Þá tek ég till. aftur, því að hún er komin upp í brtt. n.