16.02.1959
Efri deild: 70. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1034 í B-deild Alþingistíðinda. (840)
106. mál, lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Það er tvennt, sem gerði, að ég kvaddi mér hljóðs. Fyrst, að það var misskilningur hjá frsm. viðvíkjandi því, þegar ég hætti á Hólum og fór til Búnaðarfélagsins. Þá voru sett alveg sérstök lög, sem eru nr. 15 frá 1928 og byrja svona: „Ákvæði laga nr. 51 27. júní 1921, um lífeyrissjóð embættismanna og ekkna þeirra, skulu einnig gilda um þá fasta starfsmenn Búnaðarfélags Íslands, sem tryggja vilja sér lífeyri samkvæmt lögum þessum.“ Þetta var sett til þess, að ég gæti haldið áfram að tryggja mig og það voru ekki aðrir en embættismenn þá, sem gátu tryggt sig, eftir lögunum. Þetta var bara leiðrétting og sýnir það, að stjórn sjóðsins er nú ekki vel heima í öllu því, sem gerzt hefur, eftir því sem frsm. hafði eftir henni, að það ættu allir að geta tryggt sig svona nú o. s. frv.
En það, sem ég ætlaði sérstaklega að benda á, það er þetta: Ég skil ekki enn með breytingunni, sem nefndin flytur fram, hvernig á að reikna eftirlaun mannanna, sem byrja aftur að starfa í lægra launuðu starfi eða flytjast úr hærra launuðu starfi í lægra launað starf. Ég skil það ekki. Það á að greiða eftirlaun, eins og hann hefði verið í hærra launaða starfinu, sem hann er farinn úr. Nú skulum við hugsa okkur það, að einhver maður hefði verið í starfi og haft einhver árslaun, 48 þús. kr. á ári, 4 þús. kr. á mánuði, og hætt starfi fyrir svona 10 árum, — eða við skulum láta hann hafa 6 þús. kr. á mánuði og hafa um 72.000 kr. á ári, hætta fyrir svona 10 árum, hafa tekið við einhverju starfi, sem er launað lægra í launalögum, en búið er að hækka hvað eftir annað síðan, svo að það er núna hærra að peningatölu með uppbótum og öllu saman heldur en það, sem hann hafði áður. Svo hættir hann. Hann hefur borgað í sjóðinn eftir því fyrra, og þá mælir einhver grein í lögunum svo fyrir, að hann skuli hafa vissa prósentu af launum sínum síðustu 10 árin í eftirlaun. Nú er hann kominn í lægra starf, en gengi peninganna hefur gert það að verkum með breyttum launum, að það er borgað hærra en hitt var, þegar hann þjónaði því. Hann gæti þá fengið lægri eftirlaun við það að flytjast í hærra starfið, ef það á að reiknast eftir síðustu 10 árunum, sem hann var í því. Ég skil ekki enn, hvernig þetta er hugsað, að samrýma það tvennt, að það á að borga í eftirlaun viss prósent af launum mannsins síðustu 10 árin, og þá hefur ef til vill verið greitt lægra fyrir síðustu 10 árin í fyrri stöðunni en 10 árin í þeirri síðari. Á þá að reikna þau eftir 10 árunum síðustu áður en hann hætti, meðan hann var í hærra starfinu? Eða á að reikna þau eftir þessu, eftir að hann er kominn í þetta lægra launaða starf, þó að launin í því séu kannske hærri núna, en þau voru á sínum tíma, meðan hann var í því, sem var hærra launað? Ég skil ekki, hvernig þetta er hugsað og langar til að fá frekari skýringu á því. Ég minntist á þetta líka við 1. umr., og það hefur ekki heyrzt um þetta eitt orð enn þá, hvernig það á að reikna. Það stendur bara: það má reikna eftirlaun hans af því starfinu, sem hærra var launað og það á að reikna það meðaltal af síðustu 10 ára launum, — en hvaða árum þá?