15.01.1959
Neðri deild: 56. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1072 í B-deild Alþingistíðinda. (871)
45. mál, búnaðarmálasjóður
Ingólfur Jónsson:
Herra forseti. Það er ekki þörf á því fyrir mig að tala langt mál hér eftir þennan lestur hv. þm. Borgf. En það var sérstaklega eitt atriði, sem kom mér til að biðja um orðið aftur, þegar hann talaði um það, að ég hefði ekkert umboð hér til þess að tala í nafni bænda um þetta mál. Það má vera, að hv. þm. Borgf. efist um það, að ég hafi kunnugleika af högum bændastéttarinnar í heild. Það má vel vera, að hann efist um það, að ég tali við bændur í mínu kjördæmi og víða annars staðar um landið. En hafi hann efazt um það, þá vil ég upplýsa það, að ég hef hitt tugi og hundruð bænda, ekki aðeins í mínu kjördæmi, heldur víða um land, og þetta mál ásamt öðrum málum, sem landbúnaðinn varða, hefur þá komizt á dagskrá. Ég verð líka að segja hv. þm. Borgf. það, að bændur hafa kosið mig á Alþingi, og um leið og ég er skyldugur að fara eftir sannfæringu minni í hverju máli, þá er einnig ætlazt til þess, að ég sé hér á hæstv. Alþingi tilbúinn til varnar gegn hvers konar árásum á bændastétt landsins.
Ég lýsti því hér áðan, að bændur furðaði það, að svo góðir og gegnir menn sem sumir flm. þessa frv. eru skuli hafa flutt þetta mál hér inn í Alþingi, sem leiðir eingöngu til þess að taka hluta af kaupi bændastéttarinnar til þess að byggja hér í Reykjavík, ekki fyrir þeirra starfsemi, heldur miklu fremur til þess að leigja öðrum, eins og hv. þm. Borgf. viðurkenndi hér áðan. Hann sagði beinlínis, að það væri ekki nema lítill hluti af þessu húsi, sem bændastéttin kæmi til með að nota sjálf í náinni framtíð. (Gripið fram í.) Hann var að tala um það, að eftir 50 ár yrði þetta ekki of stórt. Ég vona það, að framvindan í íslenzkum landbúnaði verði svo ör, þrátt fyrir þá svartsýni, sem sækir margan heim nú, að það þurfi ekki 50 ár til þess jafnvel, að þessi höll verði fullnotuð af landbúnaðinum. En ég spyr: Er það sjálfsagt fyrir þá bændur, sem núna strita fyrir brauði sínu, að byggja hús, sem bændastéttin ætlar sér að nota eftir 50 ár? Verður ekki að ætlazt til þess, að hver kynslóð leggi fram sinn skerf til þeirrar uppbyggingar, sem nauðsynleg er atvinnulífinu hverju sinni? Og ég segi það: Hver segir um, hvernig heppilegast er að byggja eftir 50 ár? Eigum við ekki að láta framtíðina um það og þá, sem stjórna búnaðarmálunum eftir 50 ár, hvernig þeir telja heppilegast að byggja yfir sig?
Ég talaði um það hér áðan, að margir bændur væru svartsýnir nú vegna þeirra aðgerða, sem í frammi voru hafðar, sérstaklega á síðasta ári, í sambandi við skattpíningu og verðlagningu á ýmsum þeim vörum, sem þeir nauðsynlega verða að nota í sambandi við búreksturinn, og hafi hv. þm. Borgf. ekki orðið var við kvíða hjá bændum út af þessu, þá verð ég að segja, að hann talar ekki eins oft við bændur og ég hafði búizt við, — eða veit ekki hv. þm. Borgf., að ef þannig væri haldið áfram eins og á síðasta ári með að hækka nauðsynjavörur og rekstrarvörur, þá hefði öllum atvinnurekstri hér í landi, landbúnaði og öðrum atvinnurekstri, verið gert ómögulegt að starfa? Ef t. d. 400 millj. kr. hefðu verið lagðar á um þessi áramót, eins og til stóð, í nýjum sköttum, það hefði verið lagt á nauðsynjavöruna, hvernig hefði þá verið hugsanlegt fyrir bændur að halda áfram sínum búrekstri? Það hefði verið sagt, að þeir hefðu átt rétt á hækkun á framleiðsluvörunni í samræmi við það. En að hvaða gagni kemur bóndanum, þótt hann megi hækka útsöluverðið á vörunni, ef alltaf fer stöðugt hækkandi hundraðshluti í kostnað vegna verðbólgunnar og kostnaðarins við það að dreifa vörunni? Ef vel hefði verið að bændastéttinni búið, þá má vel vera, að það hefði ekki tekið því að vera að tala um þennan skatt, sem hér er rætt um. En mælirinn verður of fullur, þegar stöðugt er vegið í sama knérunn, þegar stöðugt er verið að taka utan af því, sem framleitt er, t. d. eins og kartöflunum, sem ég nefndi áðan, og þegar stöðugt fer meira og meira í kostnað við það að dreifa vörunni vegna dýrtíðar og verðbólgu.
Hv. þm. Borgf. talaði um, að það væri alveg hliðstætt útflutningsgjald á sjávarafurðum og búnaðarmálasjóðsgjaldið, það væri hvort tveggja lagt á með lögum. Það er rétt. En aðalatriðið í þessu máli er það, hverjir borga þetta gjald. Hafa sjómenn og verkamenn, sem vinna að sjávaraflanum, borgað þetta gjald? Það hafa þeir ekki gert. Þetta gjald er ekki lagt á þá, það er lagt á útfluttar sjávarafurðir. En ég varpaði því hér fram áðan í spurnarformi og hv. þm. Borgf. hliðraði sér hjá að svara því, — ég varpaði því fram í spurnarformi: Borga útgerðarmenn þetta gjald úr eigin vasa? Er ekki tekin hliðsjón af þessu gjaldi, þegar um það er rætt, hversu styrkur til útgerðarinnar skal vera hár? Og einmitt vegna þess, að það hlýtur að vera tekin hliðsjón af þessu gjaldi, þegar ákveðinn er styrkur úr útflutningssjóði, þá borga útgerðarmenn þetta gjald ekki úr sínum vasa, og sjómenn hafa ekki borgað það úr sínum vasa og ekki heldur verkamenn, sem að aflanum hafa unnið. En það gjald, sem á að leggja á landbúnaðarvöruna, er tekið af bændunum, það verkar sem kauplækkun hjá þeim. Þess vegna er þetta ósambærilegt. Þess vegna er ég hissa á því, að jafnskýr maður og hv. þm. Borgf. skuli bera þetta fram. Hvers vegna ekki að játa hreinskilnislega, að það er tekið hér af kaupi bændanna, sem er ekki hliðstætt því, sem hefur verið gert við sjómenn? Hvers vegna ekki viðurkenna það? (PO: Þetta er alveg hliðstætt.) Það er ekki viðurkennt, vegna þess að mönnum er ætlað að trúa öðru, en sannleikanum í þessu máli og það sæmir ekki jafnvirðulegum manni og hv. þm. Borgf. að vera hér með blekkingar. Hann á að segja hreinskilnislega eins og er: Vegna þess að við, sem stjórnum búnaðarsamtökunum, eigum sæti á búnaðarþingi, á stéttarsambandsfundinum, vegna þess að við viljum byggja þrefalt stærra hús í Rvík, en bændasamtökin þurfa að nota, þá þurfum við að innkalla þetta gjald, sem er hluti af launum bændanna. — Þótt búnaðarþing hafi samþykkt þetta, þótt aðalfundur Stéttarsambandsins hafi samþykkt skattinn, að vísu ekki einróma, þá höfðu þeir ekki umboð til þess. Það hefur komið í ljós, að samþykktir úr mörgum héruðum hafa verið sendar til Alþingis, til Búnaðarfélagsins, til stjórnar Stéttarsambandsins, samþykktir, sem hafa skorað á þessa aðila að falla frá því að leggja þennan skatt á bændur og það hefur komið úr þeim héruðum, sem búnaðarþingsfulltrúinn og fulltrúi á stéttarsambandsþingi greiddu atkvæði með því, og þar með hefur það sannazt, að bændurnir hafa verið í andstöðu við fulltrúa sína, bæði á búnaðarþingi og á aðalfundi Stéttarsambandsins.
Þegar þetta er aðgætt, er ekkert undarlegt, þótt flm. þessa frv. hafi ekki viljað fallast á tillögu mína að bera þetta undir bændur, sem var auðvelt, að senda frv. til umsagnar í hreppabúnaðarfélögin og láta atkvgr. fara fram um það þar, hvort bændur væru reiðubúnir að taka á sig þessa kvöð. Ef flm. þessa frv. hefðu trúað því, að meiri hluti bænda fylgdi frv., hefðu þeir orðið við tillögu minni. En af því að þeir vissu, að meiri hluti bændanna var á móti málinu, var nauðsynlegt að þeirra áliti að knýja það fram hér í gegnum deildina, án þess að bændur væru spurðir um það og það er einsdæmi í íslenzkri löggjöf að bera slíkt á borð eins og þetta, sem hér er um að ræða, án þess að gefa bændunum kost á því að segja álit sitt um það. Ég geri ráð fyrir því, að flm. frv. eigi eftir að finna, að bændur þakka fyrir slíkar aðfarir á viðeigandi hátt. Ég sé, að þeir, sem hafa verið í forsvari fyrir málið, hafa tekið þann kostinn að hverfa hér út úr hv. deild, og skal ég þess vegna láta máli mínu lokið, þar sem ég geri ráð fyrir því, að aðrir, sem hér eru inni, hafi skapað sér skoðun um þetta mál og þeir ljái ekki atkvæði sitt með því að níðast á bændastéttinni, greiða atkvæði með álögum á stéttina, án þess að bændur í heild hafi verið spurðir að því, hvort þeir vilji við það una.