02.02.1959
Neðri deild: 69. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1081 í B-deild Alþingistíðinda. (883)
45. mál, búnaðarmálasjóður
Ásgeir Bjarnason:
Herra forseti. Hv. 1. þm. Rang. (IngJ) hefur talað nokkuð oft í þessu máli. Og aðaluppistaðan í hans ræðum hefur verið sú, hvað meiri hl. landbn. og flm. þessa frv. vilji bændastéttinni illa, að þeir vilji leggja gjald eða skatt á bændurna, að mér skilst án þess að nokkur hlutur komi í staðinn fyrir þann skatt. Í hans augum er búnaðarfélagsbyggingin svo lítils virði, að hún er ekkert framlag á móti þessu ½%, sem hv. þm. hefur hér margsinnis rætt um. En þarna eru bændur að byggja yfir sínar stofnanir, Búnaðarfélagið og Stéttarsambandið, á nákvæmlega sama hátt og Fiskifélagið og ýmsar aðrar opinberar stofnanir, þannig að þeir, sem við landbúnaðinn starfa, hafi nokkurn veginn sambærileg kjör að þessu leyti. Á þennan hátt eru bændur að tryggja framtíð og rétt sinna samtaka í landinu og þar með að stuðla að eflingu landbúnaðarins, aukinni ræktun, byggingum og tækni, ásamt hagsýni í sölumálum og verðlagsmálum landbúnaðarins. Hér er um að ræða ½%, sem á að leggjast á seldar landbúnaðarafurðir á næstu 4 árum. En þetta telur hv. 1. þm. Rang. eftir.
En hvað gerði þessi sami hv. þm. fyrir nokkrum dögum? Hvað gerði hann ásamt fleirum? Ja, þá þurfti ekki hv. 1. þm. Rang. neitt umboð. Hann hafði af bændastéttinni með sinni handauppréttingu hér í þingi um breyt. á lögum um niðurfærslu verðlags o. fl. nákvæmlega hliðstæða upphæð á hálfu ári og bændastéttin á samkvæmt þessu frv. að greiða á fjórum árum. Ég held, að þessum hv. þm. farist nú ekki mikið að segja. Þessi saga segir til sín. — Hann var að tala um það áðan, að það væri verið að hafa af launum bænda. En hvað gerði þessi hv. þm. þá? Ég held, að það sé bezt fyrir hann að segja sem minnst, því að svo ber er hann orðinn gegn sínum eigin orðum sjálfur í sínum aðgerðum hér á þingi.
Ég vil aðeins benda á þetta nú, en það er hægt að benda á ýmislegt fleira og vafalaust mun ég gera það, ef frekara tækifæri gefst til.