02.02.1959
Neðri deild: 69. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1081 í B-deild Alþingistíðinda. (884)

45. mál, búnaðarmálasjóður

Ingólfur Jónsson:

Herra forseti. Það var leitt, að hv. þm. Dal. (ÁB) sagði ekki fleira. Hann hefði átt að gera það. Og sem betur fer gefst honum tækifæri til þess hér á eftir, þegar hann er að tala um það, að ég með handauppréttingu um daginn hafi gengið á móti hagsmunum bænda, ég hafi meinað þeim að fá á sjö mánuðum jafnháa upphæð og þeim er gert að greiða með þessu frv. um búnaðarmálasjóð á 4 árum. Ég ætla að segja þessum hv. þm. Dal., að það var ekki tækifæri fyrir nokkrum dögum að bæta fyrir þær syndir, sem Framsfl. ber ábyrgð á gagnvart bændastéttinni á þessum tveimur og hálfa ári, sem hann hafði stjórnarforustu. Og ég get gert það fyrir hv. þm. Dal., vegna þess að hann hefur sýnilega ekki gert sér grein fyrir því, hvernig vinnubrögð voru í garð bændastéttarinnar, að upplýsa hann um það, og við skulum ekki taka tvö og hálft ár, við skulum aðeins taka hálft ár, árið 1958.

Hvað gerðist þá? Hvað hækkaði dýrtíðin mikið? Það er einn mælikvarði, sem er alveg augljós, og það er það, að fiskverðið í landinu mun hafa hækkað í útsölu um 55%, ekki vegna þess, að fiskurinn hafi hækkað á útlendum markaði, heldur vegna þess, að kostnaðurinn við verkunina og öflun fisksins hafði hækkað sem þessu nemur, — aðeins 55%. Og þessa dýrtíð fengu útgerðarmenn bætta með því að hækka fiskinn á sama hátt og gert var. En hver var hlutur bænda? Hann var sá, að allar nauðsynjavörur bænda voru stórum hækkaðar í verði, brýnustu nauðsynjar, — sem þeir þurftu að nota til síns rekstrar. Þeir urðu að taka á sig alla dýrtíðina alveg á sama hátt og útgerðin. Bændur urðu að borga sama kaup sem gilti við útgerðina. En hvað fengu þeir í staðinn? Þeir munu fá 9–10% í afurðahækkun á s.l. ári að tilstuðlan framsóknarmanna, á meðan fiskurinn hækkar um 55% í verði, sem er framleiðsluvara útgerðarmanna og sjávarútvegsins. Ég ætla ekkert að fullyrða um það, nema útgerðin hafi þurft að hækka fiskinn svona mikið. Ég get alveg búizt við því, að hún hafi þurft þess. En hafi það verið, þá er ekki nóg fyrir bændur að fá 9–10% hækkun, þegar þeir taka á sig alla dýrtíðina hliðstætt útgerðinni. Það má þess vegna segja, að framsóknarmenn hafi stuðlað að því á síðasta ári að snuða bændur um 20–30% með því að leggja þennan háa skatt á allar brýnustu rekstrarvörur landbúnaðarins án þess að sjá um það, að bændum væri að nokkru leyti bætt í því eins og útgerðarmönnum. Og það er raunalegt, ef formaður hv. landbn. hér í Nd., þm. fyrir landbúnaðarkjördæmi, hefur ekki gert sér grein fyrir þessu. Og það er óforskammað af honum að vera að tala um það, að ég hafi níðzt á bændum með atkvgr. minni um daginn. Sannarlega mun verða gripið tækifærið og leiðréttur hlutur bændanna, þegar tími vinnst til. En það var ekki endilega augnablikið, þegar verið var að samþykkja lög um allsherjarlækkun á kaupgjaldi og niðurfærslu, að hækka við bændur. Og menn skulu taka eftir því, að það var ekki fyrr, en farið var að ræða þetta frv., sem hv. framsóknarmenn orðuðu það að fá greidda þá kröfu, 2% af verði landbúnaðarvara, sem ekki var gjaldfallin fyrr, en á næsta hausti. Það var ekki fyrr en þá. Af hverju beittu framsóknarmenn aldrei áhrifum sínum, á meðan þeir fóru með landbúnaðarmálin, til þess að bændur mættu leiðrétta afurðaverðið oftar, en einu sinni á ári eða aðeins á haustin? Af hverju reyndu þeir aldrei að fá þessu breytt? Af hverju þurftu þeir að fara úr ríkisstj., til þess að hlutur bænda væri leiðréttur að þessu leyti? En eins og kunnugt er, þá er það nú komið í lög, að bændur mega leiðrétta verðlagið, hafi vísitalan hækkað um 2 stig eða meira. Framsóknarmenn hafa reynt að gera mikið úr því, að það skuli vera bundið við 2 stig. En menn úr framleiðsluráði hafa sagt mér, að þeir óskuðu ekki eftir því að færa verðið til eða breyta því við hvert vísitölustig, það gæti orðið til þess, að það þyrfti að breyta verðinu við hver mánaðamót. Það getur líka orðið til þess, að ef vísitalan lækkaði um 1 stig, þá yrði að lækka vöruna, og framleiðsluráðið óskar ekki eftir því, að breyting á landbúnaðarverðinu gerist við minni tilfærslu á vísitölunni, en þetta.

Þá er það einnig komið í lög, sem ekki hefur verið áður, að ef grunnkaup hækkar, þá geti bændur hækkað afurðaverðið. Það hefur ekki verið samþykkt að krefjast þess, að 2%, sem gjaldfalla á næsta hausti, væru greidd strax, einfaldlega vegna þess, að frv. miðaði að því að lækka verðlag og kaupgjald, og bændur bíða til haustsins með þessi 2%, enda þótt þeir hafi vissulega haft þörf fyrir hækkunina strax og það miklu meira, aðeins vegna þess að með dýrtíðarlögunum frá s. l. vori voru rekstrarvörur landbúnaðarins skattlagðar miskunnarlaust, án þess að það væri tryggt, að þeir fengju bætur á móti. Þetta er það, sem bændur vita, þetta er það, sem menn átta sig á og þreifa á, og það er þess vegna, sem bændur þakka framsóknarmönnum ekki fyrir frammistöðuna í landbúnaðarmálunum, á meðan þeir voru í stjórn. Það er ekki von á góðu, að framsóknarmenn vinni fyrir landbúnaðinn, ef skilningur flestra eða allra þeirra er eitthvað svipaður því, sem lýsti sér hjá hv. þm. Dal. hér áðan.