02.02.1959
Neðri deild: 69. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1083 í B-deild Alþingistíðinda. (885)
45. mál, búnaðarmálasjóður
Ásgeir Bjarnason:
Herra forseti. Hv. 1. þm. Rang. (IngJ) skaut sér algerlega undan markinu. Hann fór að ræða allt annað mál, en hér er til umræðu og þetta m. a. sýnir það bezt, hve hans aðstaða er veik. Hann veit það sjálfur, að hann hefur sjálfur vangert sinn hlut við landbúnaðinn núna fyrir nokkrum dögum, eins og einn maður frekast getur. Ég ætla ekki að fara að ræða núna frv. til l. um útflutningssjóð, en það mál verður á dagskrá hérna innan nokkurra daga, og þá skal ég ræða það, bæði varðandi landbúnaðinn og svo annað, sem hv. 1. þm. Rang. sagði í vor s.l., og ýmislegt annað í því sambandi.
Það hefur hvarflað að mér, hver ástæðan mundi vera fyrir því, að hv. 1. þm. Rang. er svona mikið á móti þessu frv. um þetta aukagjald í búnaðarmálasjóð. Ég held, að það eigi rætur sínar að rekja til þess, að þegar Stéttarsamband bænda var upphaflega stofnað, mun hv. 1. þm. Rang. ekki hafa viljað nein bændasamtök til að fara með verðlagsmálin í landinu, heldur hið gagnstæða, hann vildi hafa stjórnskipað búnaðarmálaráð. En ég er þeirrar skoðunar, að það sé höfuðhagsmunamál bændastéttarinnar að fara sjálf með sín verðlagsmál, eins og bændastéttinni er frekast auðið og ég er líka þeirrar skoðunar, að til þess að svo megi verða, þá verði bændastéttin að hafa það gott húsaskjól fyrir þá, sem starfa að þessum málum, að það þurfi ekki að vera neitt til fyrirstöðu að því er þá hluti varðar.
Og það er nú að sýna sig og mun eiga eftir að sýna sig frekar í framtíðinni, að það mun vera meiri þörf á því fyrir höfuðstofnanir landbúnaðarins að verja sig og sína menn og vera betur á verðinum, en kannske oft hefur verið fyrir mönnum með svipað hugarfar og hv. 1. þm. Rang. hefur, því að þegar hann heldur, að hann geti komizt upp með það að hafa af bændastéttinni jafnmikla peninga, svo að lítið beri á, þá dettur honum ekki í hug annað, en gera það. En ef hv. 1. þm. Rang. heldur, að hann geti núið öðrum um nasir, að verið sé að hafa peninga af bændastéttinni, þá gerir hann það, þótt það sé vitað mál, að það hefur verið leitað til bændastéttarinnar og henni er þetta mál um búnaðarsjóðinn ljóst fyrir mörgum árum. En svo hefur þessi hv. þm. jafnháa, ef ekki hærri upphæð af bændastéttinni og það á örskömmum tíma. Þessu er hann talsmaður fyrir. Honum datt ekki í hug annað, en viðurkenna, að það væri réttlátt að setja bændurna skör lægra en aðrar stéttir í þjóðfélaginu, þegar um verðlagsmál er að ræða, því að með því að hv. 1. þm. Rang. tók þessa afstöðu um daginn, þá er hann sjálfur búinn að skipa bændunum skör lægra, en öðrum stéttum. Og mér finnst, að hv. 1. þm. Rang. farist hvorki að núa bændastéttinni um nasir eða framsóknarmönnum innan bændastéttarinnar og þeim, sem hafa starfað í Stéttarsambandinu með verðlagsmál o. fl., að þeir hafi ekki staðið vel á verðinum, því að sjálfur stendur þessi hv. þm. ekki vel á verðinum, ef hann heldur, að hann geti gert eitthvað í laumi.