02.02.1959
Neðri deild: 69. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1091 í B-deild Alþingistíðinda. (891)

45. mál, búnaðarmálasjóður

Magnús Jónsson:

Herra forseti. Ég skal nú ekki fara að taka hér upp í sambandi við þetta mál almennar umr. um verðlagsmál landbúnaðarvara né heldur umr. almennt um efnahagsmálaráðstafanir fyrri eða síðari ríkisstj., heldur langaði mig til þess að segja aðeins örfá orð um málið sjálft, eins og það liggur fyrir, meira til þess að skýra afstöðu mína til málsins.

Þegar frv. þetta var hér til 2. umr., greiddi ég ekki atkv. um rökst. dagskrána, sem þá lá fyrir, þess efnis, að frv. væri vísað frá með skírskotun til þess, að almenn atkvgr. um efni þess hefði ekki farið fram innan búnaðarfélaganna eða búnaðarsambandanna víðs vegar um allt land. En að öðru leyti tók ég ekki afstöðu til málsins þá efnislega.

Ég skal taka það fram, að það er að minni hyggju mjög mikið álitamál, hvort fært sé að leggja þær kvaðir á bændastéttina, sem hér er gert ráð fyrir í sambandi við þessa húsbyggingu. En það út af fyrir sig getur þó ekki ráðið afstöðu manna hér til þessa máls, vegna þess að atvikin að öðru leyti eru þess eðlis, að það verður að líta á þetta frá nokkuð öðrum sjónarhóli einnig. Það má auðvitað segja sem svo, að það gjald, sem nú er greitt í búnaðarmálasjóð og rennur til umræddrar húsbyggingar, sé nægilegt til þess að þoka þessari byggingu áfram. Það hafa verið deilur um það, hvort rétt væri að byggja það stórhýsi, sem hér um ræðir. Og það er engum efa bundið, að meðal bænda hefur verið mikill ágreiningur um þetta og margir verið því mjög andsnúnir að rétt væri að fara út í þessa framkvæmd. Hins vegar stöndum við andspænis því í dag, að það er byrjað á þessu húsi, og það er ekki um annað að ræða en reisa það, og þá er aðeins spurningin hin, hvort það sé skynsamlegt að draga þá framkvæmd helmingi lengur, en auðið væri, ef eitthvað meira fé væri til þess lagt. Og ég hygg, að það liggi nokkuð ljóst fyrir, að ef það á annað borð þyki fært að verja meira fé til byggingarinnar, þá sé það öll skynsemi, sem með því mæli að reyna að koma húsinu sem fyrst upp og fara að hafa arð af því. Það er, að mínu áliti, fyrst og fremst skylda samtaka landbúnaðarins og þá sér í lagi Stéttarsambands bænda, sem fer með kjaramál bændastéttarinnar, að meta það í þessu efni, hvað bændastéttinni sé farsælast. Og enda þótt ég sé ekki reiðubúinn til þess að lýsa því yfir, að ég telji í öllum tilfellum, að það hljóti ætíð að vera rétt, sem þau virðulegu samtök gera, þá hygg ég samt, að það sé nokkuð erfitt um vik í afstöðu til þessa málstað byggja á öðru, en þeirri samþykkt, sem þar liggur fyrir. Hefði þar verið um að ræða samþykkt, þar sem hefði verið lítill munur atkv., finnst mér, að það hefði ekki getað verið afgerandi um það, að menn hefðu átt að ljá fylgi sitt við þá ósk, sem hér er fram borin af hálfu þessara samtaka og búnaðarþings. En þar sem hins vegar svo yfirgnæfandi meiri hluti fulltrúa á þessari stéttarsamkundu og einnig á búnaðarþingi hefur óskað eftir því, að Alþingi veitti brautargengi sitt til þessarar ráðstöfunar, þá verð ég að lýsa því sem minni skoðun, að ég tel illgerlegt að neita að ljá máls á því að veita það samþykki til þess, sem hér er farið fram á. Það er yfirleitt venja, þegar um er að ræða óskir frá stéttarsamtökunum í ýmsum efnum, bæði frá útvegi, iðnaði og annars staðar frá, að það er byggt á því, sem heildarsamtök þessara aðila leggja til, því að í flestum tilfellum er mjög erfitt um vik og nærri ógerlegt að efna til allsherjar atkvæðagreiðslu um það, hvað gera skuli í þeim tilteknu efnum.

Ég er því þeirrar skoðunar, að eins og þetta mál liggur fyrir hér, sé ekki fært að neita að verða við þeim tilmælum, sem þessir fulltrúar bændastéttarinnar bera fram og sé hér óhæfilega að bændastéttinni gengið með álögur, þá hljóti að vera á ábyrgð þessara samtaka að meta það, því að þau hljóta bezt að vita um það sjálf.

Með hliðsjón af þessum atvikum málsins mun afstaða mín markast hér við lok afgreiðslu þess í þessari hv. d. En ég vil jafnframt lýsa því yfir, að ef það sýnir sig, að slík ákvörðun hafi almenna andúð bændastéttarinnar, þannig að það komi síðar fram, enda þótt þessi samþykkt hafi hér verið gerð og lögfest, miðuð við þetta tiltekna árabil, þá tel ég það ekki útiloka, að þessi heimild yrði úr gildi numin fyrir þann tíma. En eins og sakirnar standa í dag með hliðsjón af því mikla meirihluta fylgi, sem þessi ákvörðun hefur innan þessara samtaka landbúnaðarins, þá sé ég ekki, að það sé frambærilegt að neita að fallast á afgreiðslu málsins í því formi eins og það liggur hér fyrir, en þessi stéttarsamtök verði að svara til saka fyrir bændastéttina um þessa ráðstöfun, ef það þykir sakarefni, þó að þetta mál verði lögfest hér.