04.11.1958
Efri deild: 14. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 48 í B-deild Alþingistíðinda. (93)

2. mál, innheimta ýmis gjöld með viðauka

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Þetta mál er komið hingað frá hv. Nd., en það fjallar um að framlengja nokkra viðauka á ríkissjóðstekjur, sem innheimtir hafa verið undanfarin ár og ekki gert þar ráð fyrir neinni breytingu, aðeins að framlengja fyrir árið 1959.

Ég vil leyfa mér að óska, að málinu verði vísað til hv. fjhn. að lokinni þessari umr.