12.02.1959
Neðri deild: 75. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1118 í B-deild Alþingistíðinda. (940)
51. mál, skipun prestakalla
Skúli Guðmundsson:
Herra forseti. Hv. þm. A-Húnv. flytur hér brtt., sem hann nú hefur gert grein fyrir, en í ræðu hans kom ekkert fram um það, hver mundi vera vilji íbúa prestakallsins þessu viðkomandi. Mér hefði fundizt æskilegt, að það kæmi eitthvað fram um það, hvað íbúar prestakallsins vilja í þessu efni, hvort þeir vilja, t. d. íbúar Bergsstaða- og Holtastaðasókna, að prestssetrið verði fært, eins og lagt er til í þessari brtt. Mér finnst það vera nokkurt atriði í málinu og gott, að slíkt lægi fyrir um vilja manna þar í prestakallinu, áður en við greiðum atkv. um þessa till.