12.02.1959
Neðri deild: 75. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1118 í B-deild Alþingistíðinda. (941)
51. mál, skipun prestakalla
Jón Pálmason:
Herra forseti. Ég skal að sjálfsögðu verða við þeim tilmælum frá hv. formanni menntmn. að taka þessa till. aftur til 3. umr., svo að n. gefist kostur á að athuga hana, og þá getur hún aflað sér þeirra upplýsinga, sem hún óskar eftir.
Varðandi það, sem hv. þm. V-Húnv. gat um, að það lægi ekki fyrir í sambandi við þetta mál, hverjar væru óskir sóknarnefndanna í viðkomandi sóknum, þá er það að vísu rétt og þegar málið var til umr. og athugunar núna fyrir tveimur árum, eins og ég gat um, eftir tilmælum séra Björns, þá kom það í ljós, eins og raunar má við búast og víða er, þegar svona stendur á, að það er ekki alls kostar samkomulag um það milli allra aðila, enda þótt hér sé mjög sterk ástæða til þess, að presturinn sé á hinu elzta og virðulegasta prestssetri, sem á þessu svæði er. Þegar margar sveitir eiga hlut að máli í sama prestakalli, vilja þær gjarnan hafa góðan gjaldanda hjá sér, svo sem er hver embættismaður, eins og nú standa sakir, svo að það er ekki alveg víst, að þeir séu allir sammála um þetta mál. Það þarf ekkert að ganga gruflandi að því, að það geti orðið um það ágreiningur. En ég lít svo á, að eins og sakir standa, þá sé langeðlilegast, úr því sem komið er, að presturinn sitji á hinu forna höfuðbóli, Auðkúlu, enda þótt fallizt sé á það samkv. þessari till. og væri fallizt á það af öllum yfirvöldum, að núv. prestur hefði leyfi til þess, á meðan hann er, að vera kyrr á Æsustöðum.
Ég skal svo ekki um þetta fjölyrða meira, en vænti þess, að hv. menntmn. taki þetta til athugunar og mæli með tillögunni.