23.02.1959
Neðri deild: 80. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1119 í B-deild Alþingistíðinda. (945)
51. mál, skipun prestakalla
Frsm. (Páll Þorsteinsson):
Herra forseti. Hv. þm. A-Húnv. varð við þeim tilmælum að taka aftur til 3. umr. brtt., sem hann hafði flutt á þskj. 249. Á milli umræðna leitaði menntmn. umsagnar biskups um það efnisatriði, sem brtt. fjallar um, og nefndinni hefur borizt umsögn frá biskupi um þetta efni og er hún svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:
„Hv. menntamálanefnd neðri deildar Alþingis hefur beiðzt umsagnar minnar um brtt. við frv. til l. um breyt. á l. nr. 31 4. febr. 1952, um skipun prestakalla.
Ég var einn í nefnd þeirri, er undirbjó löggjöf þessa fyrir Alþingi, og lagði ég þar til, að Auðkúluprestakall fengi að haldast með prestssetri á Auðkúlu, svo sem verið hefur á liðnum öldum frá upphafi kristninnar á Íslandi. Þessi till. mín náði ekki fram að ganga.
Á flutningi prestssetursins frá Æsustöðum að Auðkúlu eru annmarkar. Mundi nokkur hluti safnaðarins mjög andvígur honum. Enn fremur stendur fyrir dyrum stækkun og endurbót prestsseturshússins að Æsustöðum og er hún miðuð við það, að prestur sitji á komandi tímum á Æsustöðum“.
Með tilliti til þessarar umsagnar biskups og enn fremur með tilliti til þess, að þeirri venju hefur verið fylgt í löggjöf um skipun prestakalla, að þegar gert er ráð fyrir að flytja prestssetur frá einum stað til annars, þá séu þau ákvæði í heimildarformi kirkjustjórninni til handa, leggur menntmn. til, að meginmáli tillögunnar á þskj. 249 verði breytt þannig, að þetta ákvæði verði í heimildarformi og flytur menntmn. brtt. um þetta á þskj. 265.
Nefndin hefur rætt þessa breytingu við hv. þm. A-Húnv. og hefur ástæðu til að ætla, að fullt samkomulag sé um þessa meðferð málsins.