07.04.1959
Efri deild: 96. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1159 í B-deild Alþingistíðinda. (991)
105. mál, samband íslenskra berklasjúklinga
Björn Jónsson:
Herra forseti. Meginefni þessa frv. er það að veita Sambandi ísl. berklasjúklinga áframhaldandi um 10 ára skeið sams- konar sérleyfi til fjáröflunar í formi happdrættisrekstrar og sambandið hefur haft nú að undanförnu í áratug. Þessu meginefni frv. er ég eindregið fylgjandi. Hins vegar tel ég, að breyta hefði mátt 3. gr. frv. til bóta frá því, sem nú er, en mun þó ekki flytja um það brtt., þar sem það kynni að raska þeirri samstöðu um málefni SÍBS, sem verið hefur hér á hv. Alþingi um langt skeið, og gæti því fremur spillt, en bætt, samvinnu allra flokka og allra þm. um málefni berklaöryrkja og annarra öryrkja í landinu framvegis, en á slíkri samvinnu tel ég ríka nauðsyn, ef hennar er nokkur kostur, svo margt sem ógert er og vanrækt í málefnum þeirra þúsunda landsmanna, sem búa við skerta starfsgetu vegna sjúkdóma, slysfara eða meðfæddra vanheilinda. Á hinn bóginn tel ég rétt eftir atvikum að láta hér koma fram nokkrar athugasemdir, sem snerta þetta mál, bæði beint og óbeint, og láta í ljós efasemdir mínar um það, að með þeim breytingum, sem nú eru ráðgerðar á lögum um þetta vöruhappdrætti, sé stefnt í rétta átt. Því fremur tel ég þetta rétt, sem álit mitt í þeim efnum kemur að verulegu leyti a.m.k. heim, við stefnu fjölmennra samtaka almennra öryrkja og áhugamanna, sem nú eru starfandi í landinu og ekki verða til lengdar sniðgengin af hæstv. Alþingi fremur en Samband ísl. berklasjúklinga varð lengi sniðgengið hér á sínum tíma, enda þótt það þá væri ekki orðið það stórveldi, sem það nú er orðið.
Þau málsatvik, að verið er að tryggja fjárhagsgrundvöll fyrir SÍBS næsta áratuginn og ætlunin er með löggjöf að víkka út starfssvið þess, gefa einnig tilefni til þess að leiða hugann að því, hvar við stöndum nú í viðureigninni við það mikla félagslega verkefni, sem leysa þarf í málefnum allra öryrkja í landinu, og hvaða þætti þessa verkefnis beri sérstaklega að leggja áherzlu á, á næstu tímum, bæði með tilliti til mannúðarsjónarmiða og efnahagslegra viðhorfa. Því meiri ástæða er til slíkra athugana einmitt nú í sambandi við þetta mál, sem ótvírætt er, að mikilvæg reynsla hefur fengizt í baráttunni við berklaveikina og afleiðingar hennar á undanförnum áratugum, reynsla, sem væri óheppilegt að notfæra sér ekki til hlítar til lausnar á þeim vandamálum, sem stafa af öðrum sjúkdómum eða af slysum.
Flestir erum við hér það gamlir, að við munum a.m.k. að einhverju leyti, hvernig ástandið var í berklavarnarmálum á árunum milli heimsstyrjaldanna. Hundruð og jafnvel þúsundir landsmanna hrundu niður af völdum þessa skæða sjúkdóms. Ófullnægjandi heilsugæzla, lélegur húsaskortur og fátækt réðu úrslitum um það, að mikill hluti þeirra, sem tóku berklaveiki, átti sér enga lífsvon, og sú almenna skoðun ríkti, að berklasjúklingur væri í rauninni dauðadæmdur maður. Jafnvel þeir, sem áttu því láni að fagna að útskrifast af berklahælum, áttu takmarkaða lífsvon. Fátæktin rak þá flesta til að freista þess að leita sér lífsframfæris við erfiðisvinnu á sjó eða landi, sem þeir voru ófærir um að gegna, og ný hælisvist tók við og jafnvel hver af annarri, unz yfir lauk.
Nú er mikil breyting á þessu orðin. Enginn telst nú lengur dauðadæmdur, þótt hann smitist af berklaveiki. Langsamlega flestir eiga fulla og rökstudda von um bata og um að verða hlutgengir þjóðfélagsþegnar. Margt hefur að sjálfsögðu stutt að þessari breytingu: aukin heilsugæzla, framfarir í læknavísindum, aukinn viðnámsþróttur vegna bætts efnahags og þar af leiðandi betri húsakosts, fæðis og klæða og síðast, en ekki sízt það stórfellda og aðdáanlega átak, sem félagssamtök berklaöryrkjanna sjálfra, Samband ísl. berklasjúklinga, hafa gert til þess að tryggja árangurinn af starfi heilsuhælanna og læknisvísindanna með því að brúa bilið á milli hælisvistarinnar og athafnalífsins í þjóðfélaginu.
Með starfi sínu hefur Samband ísl. berklasjúklinga ekki aðeins átt sinn mikla og ómetanlega þátt í þeim stórsigrum, sem unnizt hafa í viðureigninni við berklaveikina og afleiðingar hennar, heldur jöfnum höndum sparað þjóðfélaginu stórfelld milljónaútgjöld og aflað því raunverulegra milljónatekna, bæði beint og óbeint. Framsýnn læknir sagði um SÍBS um það leyti, sem það var stofnað, að það mundi verða eitt mesta „gróðafyrirtæki“ hér á landi. Þetta hafa reynzt orð að sönnu. Öll sú opinbera aðstoð, sem þetta samband hefur hlotið fjárhagslega, hefur án vafa skilað sér margfaldlega aftur, beint peningalega. Á þetta minni ég hér m.a. vegna þess, að ég tel, að um nákvæmlega jafngóða fjárfestingu geti verið að ræða varðandi önnur öryrkjasamtök í landinu. Þó að afrek SÍBS til björgunar á lífi og heilsu og lífshamingju, sem þó er að sjálfsögðu aðalatriði, væri ekki metið, þarf því enginn að líta með eftirsjá þá fjármuni, sem því hefur verið trúað til að fara með. Fullyrða má, að þjóðfélagið hefði ekki haft efni á því að synja sambandinu um eðlilega aðstoð á sínum tíma.
Starfsemi SÍBS hefur frá upphafi verið miðuð við þarfir berklaöryrkjanna einna, en þeir hafa verið einna fjölmennastí öryrkjahópurinn í landinu, þótt þeim, sem betur fer, fari fækkandi. Í sambandi við það vil ég þó taka það fram, að ég tel, að tölur þær, sem hv. 6. þm. Reykv. fór hér með í gær, gefi ekki alls kostar rétta mynd af þessu atriði málsins. Þessar tölur, sem hann fór með, munu út af fyrir sig vera réttar, fengnar frá Tryggingastofnun ríkisins, en við þær er það að athuga, að langsamlega nákvæmastar heimildir eru til um berklaöryrkja og miklu ýtarlegri, en um allar aðrar tegundir örorku. Stafar það m.a. af því, að fram hefur farið í landinu allsherjar berklaskoðun, og má því reikna með, að nokkurn veginn fullkomlega komi til skila öll berklatilfelli, sem um er að ræða. Það, að hann taldi, að lömunaröryrkjar væru aðeins 2%, mun vera algerlega villandi, þegar þessar tölur eru bornar saman, m.a. vegna þess, að tölurnar eru eingöngu miðaðar við styrkþega Tryggingastofnunarinnar, en lömunarsjúklingar eru einmitt margir á unga aldri, en hins vegar nálega engir berklaöryrkjar eða berklasjúklingar á aldrinum frá 4–16 ára. Og það kemur heim við það, sem Haukur Kristjánsson læknir hendir á í sínu merka erindi, sem hefur fylgt með erindi Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra til fjhn., að ýmiss konar lamanir og bæklanir muni vera langalgengasta orsökin til örorku. Menn hefðu getað fengið rangar hugmyndir með því að taka þessar tölur, sem hv. 6. þm. Reykv., frsm. fjhn., fór hér með, allt of bókstaflega, og því geri ég þessa aths.
Samband ísl. berklasjúklinga hefur frá upphafi verið hugsað sem félagsleg samtök öryrkjanna sjálfra, en ekki sem líknarstofnun. Og á þetta hefur verið lögð rík áherzla frá fyrstu tíð. Það hefur verið hugsað sem tæki til sjálfsbjargar fyrir þá sjálfa, sem að því stóðu. Það var stofnað í þeirri trú, að berklaöryrkjarnir sjálfir vissu bezt, hvar skórinn kreppti, og gætu valdið því verkefni, sem hvorki hið opinbera né neinar líknarstofnanir höfðu nægilegan áhuga, getu eða hæfni til að leysa og hafði verið vanrækt að mestu leyti frá fyrstu tíð.
Hvað sem liðið hefur trú manna á þessi samtök í upphafi, þessi samtök berklaöryrkjanna, þegar félausir og heilsuveilir áhugamenn hófu merki þess fyrir rúmum 20 árum, þá er svo mikið víst, að nú getur enginn efazt um, að rétt stefna var tekin í upphafi og að enginn aðili annar hefði náð viðlíka árangrí í því starfl, sem samtökin helguðu sér frá því fyrsta. Margvísleg reynsla hefur fengizt af starfi sambandsins, en þó er það mín skoðun, að einmitt þessi staðreynd, að það voru sjálfir öryrkjarnir, sem lyftu Grettistakinu, rísi hærra en flestar aðrar staðreyndir í sambandi við þetta mál. Og hér er ég þá kominn að kjarna þess, sem ég vildi segja um afstöðu mína.
Ég dreg það mjög í efa, að rétt sé stefnt með þeirri breyt., sem felst í 3. gr. frv., en hún þýðir m.a., að það á að breyta að nokkru leyti eðli Sambands ísl. berklasjúklinga og gera það að líknarstofnun fyrir almenna öryrkja, í stað þess að til þessa hefur það eingöngu verið félagsskapur berklasjúklinganna sjálfra, sem eingöngu miðast við þeirra eigin þarfir. Ég held, að þessi breyt. sé hæpin, bæði frá sjónarmiði berklasjúklinganna og einnig frá sjónarmiði þeirra öryrkja, sem með þessu á að hjálpa, og ber margt til þess. Í fyrsta lagi er ekki unnt að segja, að enn hilli undir fullan sigur í baráttunni við berklaveikina. Enn eru berklaöryrkjar mjög fjölmennir. Enn smitast menn af þessum þunga sjúkdómi, og enginn getur nú fullyrt um, að rénun sjúkdómsins verði stöðug héðan í frá, þótt ástæða sé til að vona, að svo verði. Og þó að starfsemi Sambands ísl. berklasjúklinga að Reykjalundi sé með hinum mestu ágætum, svo að þjóðarsómi er að á ýmsan hátt, þá er hitt þó vitað og bezt af forustumönnum samtakanna sjálfra, að fjárhagur þess hefur ekki leyft enn sem komið er, að gert væri jafnvel við berklasjúklingana og berklaöryrkjana og gert er með þeim þjóðum, sem lengst eru komnar í þessum efnum. Sé því málið skoðað frá sjónarmiði berklasjúklinganna einna, orkar það tvímælis að beina nú þegar verulegum hluta af tekjum sambandsins að öðrum verkefnum fyrir almenna öryrkja. Sú skýring er líka gefin af hálfu forráðamanna SÍBS á samþykki þeirra varðandi þessa breyt., að þar komi fyrst og fremst til þrábeiðni stjórnarvalda. „Við höfum legið undir þrábeiðni stjórnarvalda varðandi þetta mál“, hafa forustumenn sambandsins sagt í viðtölum við fjhn., og þessi þrábeiðni hefur farið fram á sama tíma og upplýst er, að milljónasjóðir eru til í vörzlu Tryggingastofnunar ríkisins, sem ætlaðir eru til þeirra sömu hluta og hér er um að ræða. Forustumenn Sambands ísl. berklasjúklinga hafa því sýnilega ekki átt frumkvæðið að þessari fyrirhuguðu breyt. á starfsemi samtaka sinna, og lái ég þeim það ekki.
Enn má því við bæta, að sýnilegir agnúar eru á því að blanda um of saman starfsemi berklaöryrkja og annarra öryrkja, t.d. þeir, að engir þurfa nákvæmari og betri aðbúnað og vinnuskilyrði, en berklaöryrkjar og oft og tíðum slík, að engin þörf er á fyrir öryrkja eða fatlað fólk af öðrum ástæðum. Það er því óhætt að segja, að ef ekki er viðhöfð ýtrasta aðgát, gæti svo farið, að hinar almennu kröfur til handa öryrkjunum yrðu ekki jafnstrangar og æskilegt væri fyrir berklaöryrkjana eina, m.a. vegna þess, að slíks væri ekki þörf fyrir aðila, sem ef til vill ynnu á sömu vinnustofu eða dveldust saman á vinnuhælum. Mætti þó ýmislegt fleira nefna í þessu sambandi.
Frá sjónarmiði hinna almennu öryrkja, annarra en fyrrverandi berklasjúklinga, horfir þetta þannig við, að þeir hafa sjálfir að undanförnu verið að byggja upp sín eigin samtök á nákvæmlega sama hátt og SÍBS hefur gert að sínu leyti og eru vel á veg komnir með það starf. Skipulag sitt og tilgang hafa þeir mótað í samræmi við þá góðu reynslu, sem fengizt hefur af sjálfsbjargarsamtökum berklasjúklinganna. Langþreyttir á vanrækslu þjóðfélagsins eru þeir nú að rísa upp gegn þeim örlögum, sem þjóðfélagið býr þeim, alveg á sama hátt og hinir framsýnu og hugrökku foringjar SÍBS gerðu fyrir tveim áratugum. En þeirra aðstaða er að því leyti betri nú, að þeir geta byggt á mikilli reynslu og auk þess á betri efnahag almennings, en þá var. Ég hygg, að í stuttu máli geti ég ekki gert því betri skil, hvert viðhorf öryrkjasamtakanna er til þessa máls, en með því að kynna fyrir hv. dm. erindi, sem samtök þeirra, Sjálfsbjargarfélögin, hafa sent fjhn. og ekki hefur verið útbýtt meðal hv. dm., en erindið er svo hljóðandi:
„Í sambandi við frv. til laga um vöruhappdrætti Sambands ísl. berklasjúklinga, sem nú liggur fyrir Alþingi, vil ég í umboði Sjálfsbjargarfélaganna, sem nú starfa í landinu, leyfa mér að vekja athygli á eftirfarandi:
Í 3. gr. l. er ákvæði um, að ágóða af happdrættinu skuli m. a. varið til að byggja og reka vinnustofur fyrir öryrkja. Ef hér er átt við fólk, sem hlotið hefur líkamleg örkuml af völdum slysa, lömunarveiki eða öðrum orsökum en berklaveiki, en þannig er greinin almennt skilin, þá er rétt að vekja athygli á því, að þetta fólk hefur á s.l. ári myndað samtök til að vinna að lausn atvinnu- og félagsvandamála sinna á sama hátt og berklasjúklingar og blint fólk hefur áður gert með ágætum árangri. Samtök þessi heita Sjálfsbjörg, félag fatlaðra. Á síðasta ári voru stofnuð 5 Sjálfsbjargarfélög: á Siglufirði, Reykjavík, Ísafirði, Akureyri og Selfossi. Þau telja nú samtals 474 meðlimi. Félögin hafa flest haldið uppi reglulegum fundarhöldum í vetur og fjölþættri félagsstarfsemi hvert á sínu félagssvæði, m. a. safnað í félagssjóði sína fé, sem nemur nú nokkuð á annað hundrað þús. kr. samtals. Í bæjunum úti um land, þar sem félögin starfa, er svo að segja allt fatlað fólk félagsbundið. Í Reykjavík fer félagsbundnu fólki einnig ört fjölgandi. Nú hafa Sjálfsbjargarfélögin ákveðið að stofna með sér landssamband og boða til stofnþings fyrstu dagana í júní n.k. Þá er elzta félagið ársgamalt.
Það er ætlun samtakanna að leysa atvinnumál fatlaðs fólks á félagslegan hátt, eftir því sem þörf krefur og aðstæður leyfa, með því að koma upp verkstæðum og vinnustofum í sambandi við félagsheimili samtakanna. Þessar vinnustöðvar verði jafnframt vinnuskóli, því að það er álit samtakanna, að fræðsla og félagsstarf sé fötluðu fólki ekki síður nauðsynlegt, en öflun tekna, því að fáir þurfa að yfirvinna jafnmargar hindranir til þess að geta orðið þátttakendur í félagslegum málum eins og fatlað fólk.
Það veldur nú almennri óánægju innan Sjálfsbjargarfélaganna, að sá skilningur er ríkjandi, að með því ákvæði, er að ofan greinir, ef að lögum verður, sé verið að fela óviðkomandi aðila atvinnumál fatlaðs fólks, en ganga fram hjá þess eigin samtökum, og skiptir þar ekki máli, hvort sú stofnun, sem þetta er falið, heitir Samband ísl. berklasjúklinga eða eitthvað annað, þar sem ekki er gert ráð fyrir, að þeir öryrkjar utan berklasjúklinga, sem vinnu þiggja á væntanlegum vinnustöðum þess, hafi nein félagsréttindi innan þeirra samtaka. Öll reynsla í málefnum öryrkja hér á landi síðustu áratugina bendir til þess að atvinnu- og félagsmál þeirra verði bezt leyst af samtökum þeirra sjálfra með nauðsynlegri aðstoð hins opinbera. Á þetta jafnt við um samtök blindra og berklasjúklinga, sem bæði hafa leitt félags- og atvinnumál meðlima sinna, svo að til fyrirmyndar er.
Fatlað fólk, sem nú er að bindast samtökum innan Sjálfsbjargarfélaganna, er langfjölmennasti hópur öryrkja í landinu, og eru líkur til þess, að því fjölgi í framtíðinni fremur en fækki vegna vaxandi slysahættu í sambandi við aukna notkun vélknúinna tækja. Það er þess vegna ekki lítils um vert, að reynt verði að finna hina beztu lausn á atvinnulegum og félagslegum vandamálum þess. Að svo stöddu er ástæðulaust að efast um, að fötluðu fólki takist að leysa viðfangsefni sín til aukinnar hagsældar og hamingju fyrir þá einstaklinga, sem tapað hafa meira eða minna af líkamsorku sinni og það ætti að vera hlutverk hins opinbera að hvetja þessi samtök til dáða, þótt ekki væri af öðrum orsökum en þeim, að það gæti orðið til þess að spara þjóðfélaginu í framtíðinni mikil útgjöld. Nú eru það mjög eindregin tilmæli fatlaðs fólks, sem bundizt hefur samtökum innan Sjálfsbjargarfélaganna, að samtök þess fái að njóta sömu réttinda og fyrirgreiðslu af hálfu þess opinbera og önnur öryrkjasamtök í landinu og að hið háa Alþingi afhendi ekki málefni þess öðrum samtökum eða stofnunum til ráðstöfunar, eins og áformað virðist vera með áðurnefndu frumvarpsákvæði, án samráðs við samtök þess. Skrá yfir meðlimatölu, styrktarfélaga, ævifélaga og sjóðseignir Sjálfsbjargarfélaganna fylgir og er rétt að minna á í því sambandi, að félögin voru öll stofnuð á s.l. ári og hafa aðeins starfað 6–8 mánuði.
Fyrir hönd Sjálfsbjargarfélaganna á Siglufirði, Akureyri, Ísafirði, Reykjavík og Selfossi.“
Og síðan koma undirskriftir.
Með tilliti til þess, sem ég nú hef sagt, og einnig með hliðsjón af erindi Sjálfsbjargarfélaganna hefði ég talið eðlilegt og æskilegt, ef rétt reynist, að SÍBS muni hafa meiri tekjur af happdrætti sínu, en nauðsynlegt er og sanngjarnt að það fái til þeirrar starfsemi, sem það hefur haft með höndum, og slíkum umframtekjum er varið til þarfa almennra öryrkja, að þá verði slík starfsemi öll undir sameiginlegri stjórn viðkomandi öryrkjafélaga, en ekki aðeins eins þeirra, eins og gert er ráð fyrir í frv. Það felst ekkert vanmat á SÍBS í þeirri afstöðu, heldur trú á það, að aðrir öryrkjar muni og geti fetað í fótspor þess og náð hliðstæðum árangri að sínu leyti. Ég tel líka, að slíkt ákvæði hefði stutt að auknu samstarfi þessara samtaka og e.t.v. að stofnun allsherjarsambands öryrkjafélaga síðar í landinu að dæmi grannþjóða okkar, en þar starfa slík landssambönd með góðum árangri.
Ef hugsað er til þess, sem hlýtur að vera lokatakmarkið hjá Sambandi ísl. berklasjúklinga og öllum, sem berjast gegn berklaveikinni, að henni verði með öllu útrýmt, á sama hátt og tekizt hefur að útrýma öðrum hættulegustu sjúkdómum, sem herjað hafa þjóðina, þá liggur það í hlutarins eðli, að félagssamtökin, Samband ísl. berklasjúklinga, verða ekki heldur lengur til, og ef farið er út á þá braut, að aðrir gerist að nokkru leyti hluttakendur í starfseminni, þá tel ég líka eðlilegt, að um leið sé stefnt að því, að þau mannvirki og þær framkvæmdir, sem Samband ísl. berklasjúklinga hefur komið á fót, komist undir stjórn þeirra, sem hjá slíku fyrirtæki ynnu, og tel ég einmitt, að reynslan af starfsemi SÍBS sanni bezt, að það sé nauðsynlegt.
Eins og ég gat um áðan, hef ég þó ekki tekið þann kost að flytja um þetta brtt. Ég hefði talið þessa breyt. æskilega, ef um hana hefði getað orðið samstaða, m.a. í fjhn.; en svo varð ekki. Ég hef líka látið þetta hjá líða vegna þess, að hv. meðnm. mínir í fjhn. hafa allir látið í ljós góðan vilja sinn til þess að styðja á einhvern hátt að því, að Sjálfsbjargarfélögunum verði veittur stuðningur hins opinbera, og vil ég ekki efast um, að það hafi verið af fullum heilindum mælt.
Ég get ekki skilizt svo við þetta mál, að ég minnist ekki á annað félag, sem mjög hefur komið við sögu þessara mála á undanförnum árum, en það er Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra. Hv. dm. hafa allir fengið í hendur mjög ýtarlegt erindi ásamt grg. frá hinum færustu sérfræðingum varðandi starfsemi þessa félags, þessa áhugamannafélags, en tilgangur þess hefur frá upphafi verið sá að starfrækja miðstöð til þjálfunar lömunarsjúklinga, að hjálpa lömuðu og fötluðu fólki til að læra iðnir og gera það fært um að sjá sér farborða og í þriðja lagi að styrkja og greiða fyrir öryrkjum. Höfuðáherzluna hefur félagið lagt á þjálfun sjúklinga og á það að stemma á að ósi varðandi börnin, sem liðið hafa af lömun, kannske frá fæðingu, þannig að þau fengju rétta meðhöndlun frá fyrstu tíð og væri þannig tryggt, að þegar þau vaxi upp, verði þau ekki eins og eitthvert úrhrak eða byrði á þjóðfélaginu.
Ég held, að þessar grg., þó að ég ætli ekki að fara langt út í það, sýni betur en flest annað, á hvaða stigi við stöndum í þessum málum. Þótt okkur hafi tekizt að ná mikilsverðum árangri varðandi berklaveikina og jafnvel farið þar fram úr ýmsum menningarþjóðum, þá stöndum við, eins og prófessor Snorri Hallgrímsson segir í sínu glögga bréfi, enn á miðaldastigi varðandi það, sem við gerum fyrir öryrkja almennt og þá sérstaklega fyrir lömunarsjúklinga. Það er bent á það sem dæmi, að engin sérdeild fyrir bæklunarsjúklinga sé til við sjúkrahús landsins. Það er bent á það, að sjúklingar þurfi að liggja mánuðum eða jafnvel árum saman í rúminu vegna þess, að nauðsynlegar umbúðir eða gervilimir, jafnvel skór, séu ekki fyrir hendi. Það er bent á það, að fyrir börn, sem fædd eru með lamastjarfa, spastískt lömuð börn, sem munu nema um 3–4% af öllum börnum, sem fæðast í landinu, hafi ekkert verið gert, bókstaflega ekkert, fyrr en Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra tók til starfa, og er þó sú aðstaða, sem þar er til þeirrar starfsemi í hjálparstöð þess, algerlega ófullnægjandi. Mér sýnist á þessum erindum og af því, sem við blasir í þessum efnum, að þjóðfélagið sé að fara nákvæmlega eins að nú gagnvart öryrkjunum, hinum lömuðu og fötluðu, og gagnvart berklasjúklingunum á sínum tíma, þangað til þeir stofnuðu sín samtök og tókst að brúa bilið milli vistarinnar á heilsuhælum og athafnalífsins í þjóðfélaginu.
Ég held, að það hljóti öllum að vera ljóst, að þessi mál þarf að taka fastari tökum, en gert hefur verið. Og það verður að sjálfsögðu ekki gert með því að stilla einu félagi á móti öðru og halda því fram, að eitt félag sé svo gott, að fyrir það verði allt að gera, það verði að greiða götu þess, en önnur geti beðið endalaust. Það hafa aldrei þótt góð heimili á Íslandi, sem áttu aðeins eitt uppáhaldsbarn, en mismunuðu hinum að öllu leyti.
Ég held, að þetta verði fyrst og fremst gert með því að stilla saman átök allra þeirra, sem vilja vinna að þessum málum: þjóðfélagsins, sem ber fyrsta skyldan, áhugamannanna um þessi efni og síðast en ekki sízt öryrkjanna sjálfra. Ég held, að það sé svo mikið ógert, að það megi enginn af þessum aðilum skerast úr leik, heldur verði þeir allir að leggjast á eitt. Í sambandi við þetta mál hefur Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra lagt það til, að skipuð yrði mþn. í þessi mál sem hefði það hlutverk að láta fara fram ýtarlega rannsókn á ástandi öryrkjamálanna í þjóðfélaginu, eins og þeir segja í erindi sínu, og koma með till. um, hvernig unnið skuli til lausnar á þeim í náinni framtíð. Sú n. þarf að kynna sér álit hinna færustu sérfræðinga, innlendra og erlendra, og afstöðu öryrkjasamtakanna og miða síðan tillögur sínar til úrbóta við þær niðurstöður. Ég hefði talið, að það væri bæði fljótlegasta og öruggasta aðferðin til þess að fá þessa n. skipaða að bæta bráðabirgðaákvæði um það aftan við þessi lög. Með því hefði verið tryggt, að málið dagaði ekki uppi á þeim stutta tíma, sem Alþingi á nú eftir að sitja. En um það varð ekki samkomulag í n., og taldi meiri hl. rétt að flytja það mál sérstaklega, og vona ég, að samkomulag geti orðið um það og því verði tryggður framgangur, þó að það hafi ekki verið gert á þann hátt, sem mér fannst að ýmsu leyti eðlilegastur.
Það hefði mátt skilja niðurlagsorð hv. 6. þm. Reykv. svo í framsöguræðu hans hér í gær, að minni hl. fjhn. hefði viljað leggja það til að taka eitthvað af tekjum SÍBS, að minnsta kosti er þannig sagt frá ræðu hv. þm. í flokksblaði hans nú í dag. Ég ætla af því, sem ég hef hér sagt, að þetta sé ekki rétt. Ég hef aldrei lagt það til, að neitt væri tekið af Sambandi Ísl. berklasjúklinga. Ég álít, að því veiti alls ekki af sínum tekjum, og hef engar till. flutt um það, hvorki í fjhn. né annars staðar, að það verði svipt neinu af þeim.