27.07.1959
Neðri deild: 5. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 453 í B-deild Alþingistíðinda. (145)

4. mál, almannatryggingar

Flm. (Skúli Guðmundsson):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera hér fram á þskj. 4 frv. um breyt. á l. frá 1956, um almannatryggingar. Í 22. gr. l. um almannatryggingar eru svonefnd skerðingarákvæði, þ.e.a.s. fyrirmæli um lækkun eða niðurfellingu lífeyris frá Tryggingastofnun ríkisins, þegar aðrar tekjur aðila fara yfir ákveðið mark.

Í frv. því, sem hér er flutt, er lagt til, að með tekjum, sem takmörkun á lífeyrisgreiðslum miðast við samkv. lagagr., skuli ekki telja lífeyri eða aðrar greiðslur frá sérstökum lífeyris– eða eftirlaunasjóðum og eigi heldur lífeyri, sem menn hafa keypt frá tryggingafélögum eða stofnunum. Ég bar fram frv. shlj. þessu á síðasta þingi ásamt hv. þáv. 5. landsk. þm., en það hlaut ekki fullnaðarafgreiðslu og hef ég því endurflutt frv. nú. Þetta takmörkunarákvæði var upphaflega sett í tryggingalögin 1946, þegar þau voru samþykkt, þá sem bráðabirgðaákvæði til 5 ára, en það hefur verið framlengt síðan nokkrum sinnum. Svipuð ákvæði voru áður í l. um alþýðutryggingar, meðan þau voru í gildi.

Nú á síðari árum hafa verið stofnaðir margir lífeyris- og eftirlaunasjóðir og fer þeim stöðugt fjölgandi. Með stofnun slíkra sjóða og greiðslum til þeirra tryggja menn sér m.a. elli- og örorkulífeyri. Um þetta tel ég að sé gott eitt að segja. Í því felst aukið öryggi fyrir þá, sem kaupa slíka tryggingu. Þetta er líka gott fyrir þjóðfélagið í heild, m.a. vegna þess, að hjá slíkum sjóðum er um verulega fjársöfnun að ræða, sem full þörf er fyrir, því að vöntun er á sparifé til gagnlegra framkvæmda og atvinnurekstrar. En sá hængur er hér á, að meðan l. er ekki breytt, eiga þeir menn, sem kaupa sér á þennan hátt lífeyri í sér, tökum sjóðum, það á hættu að tapa þess vegna lífeyri hjá almannatryggingunum, sem þeir eru um langan tíma, búnir að borga fyrir. Því veldur þetta skerðingarákvæði, sem ég áður nefndi.

Þetta er mjög ósanngjarnt. Það er rangt að svipta menn þannig réttindum, sem þeir eru búnir að greiða fé fyrir og það á alls ekki að vera refsivert athæfi að kaupa lífeyristryggingar til viðbótar þeim tryggingum, sem ákveðnar eru í almannatryggingalögunum. En þannig er þetta nú að óbreyttum lagafyrirmælum.

Í þessu sambandi má geta þess, að á næstsíðasta þingi voru, eins og kunnugt er, sett lög um lífeyrissjóð togarasjómanna. Í þeim lögum segir m.a., að þau réttindi, er togarasjómenn þar öðlast, skuli í engu rýra rétt þeirra til lífeyris samkv. lögum um almannatryggingar. Togarasjómennirnir munu því halda áfram að greiða full iðgjöld til Tryggingastofnunar ríkisins og njóta þar óskerts lífeyris á sínum tíma, þó að þeir fái þá jafnframt lífeyri frá hinum sérstaka lífeyrissjóði. Þetta sýnist vera eðlilegt fyrirkomulag og það er sjálfsagt, að það gildi einnig um aðra, sem kaupa tryggingar hjá sérsjóðum eða tryggingarfélögum til viðbótar tryggingunni hjá Tryggingastofnun ríkisins.

Samþykkt þessa frv. hefur engin áhrif á réttindi þeirra manna, sem eru þátttakendur í lífeyrissjóðum, sem stofnaðir eru með lögum, svo sem lífeyrissjóðir starfsmanna ríkisins, og fleiri slíkum sjóðum. Þeir menn njóta framvegis sem áður ívilnunar í gjöldum til Tryggingastofnunar ríkisins og hafa ekki heldur rétt til lífeyris þaðan. Sama gildir um þá, sem eru tryggðir hjá sérsjóðum, sem hafa hlotið svonefnda viðurkenningu hjá Tryggingastofnun ríkisins.

Þessi takmörkunarákvæði í 22. gr. l. voru síðast framlengd til ársloka 1960. Það er ekki hægt að segja um það nú, hvernig með það mál verður farið, þegar þar að kemur, hvort þetta verður enn framlengt að öllu eða einhverju leyti. En hvað sem kann að verða ákveðið um það, hvort skerðingarákvæðin verða framlengd að öðru leyti eða ekki, þá sýnist sjálfsagt að gera nú þegar þessa breyt., en láta það ekki dragast lengur. Meðan það er ekki gert, dregur það eðlilega úr viðleitni manna til þess að safna fé með þessum hætti, með þeim hætti að kaupa sér aukatryggingar til elliáranna og það er ekki heppilegt.

Frv. þetta á ekki að geta orðið ágreiningsmál. Ég hygg, að við athugun málsins hljóti menn að komast að þeirri niðurstöðu, að það sé rétt að gera þessa lagabreytingu. Ég vil leyfa mér að leggja til, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. heilbr.- og félmn. Það var á síðasta þingi til athugunar hjá heilbr.- og félmn. Hún sendi það þá til Tryggingastofnunar ríkisins og fékk umsögn hennar um málið seint í desembermánuði í vetur. Sú umsögn liggur fyrir hér á skrifstofu Alþingis og þar sem svo skammt er liðið, síðan hún var fengin, sýnist vera alveg óþarft að afla nýrrar umsagnar um málið frá Tryggingastofnuninni. Það getur n. kynnt sér nú, hvað Tryggingastofnunin sagði um málið og þetta ætti að geta flýtt fyrir afgreiðslu málsins frá hv. n. Ég vil því vænta skjótrar og góðrar afgreiðslu frv. frá hv. nefnd.