14.08.1959
Efri deild: 12. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 464 í B-deild Alþingistíðinda. (158)
4. mál, almannatryggingar
Forseti (EggÞ):
Vegna þessara ummæla hv. 8. landsk. vil ég skýra frá því, að ég hafði hugsað mér að taka hið umrædda mál fyrir á 3. fundi, sem væntanlega yrði að loknum þessum fundi, þar sem mér þótti sýnt, að málið gæti ekki hlotið fullnaðarafgreiðslu á þinginu, því að vart er mögulegt með svo stórvægilegt fjárhagsmál sem hér er um að ræða, að það fari nefndarlaust í gegnum deildina. Ég taldi af þeim ástæðum ekki mögulegt að taka það fyrir á 1. fundi, en það er á dagskrá þess fundar, sem tilkynntur verður nú á eftir. Hins vegar mun ég taka frv. fyrir skv. þingsköpunum, ef skriflegar óskir liggja fyrir um það frá 3 þdm. og fyrir því er samþykki 3/4 hluta þeirra, sem á fundi eru, enda neiti ráðh. ekki um leyfið. Sættir þm. sig við þessa afgreiðslu?