14.08.1959
Efri deild: 12. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 465 í B-deild Alþingistíðinda. (162)

4. mál, almannatryggingar

Dómsmrh. (Friðjón Skarphéðinsson):

Herra forseti. Ég hef ekki kunnugleika á því, hvort þetta frv. til l. um breyt. á almannatryggingalögum hefur verið sent Tryggingastofnun ríkisins til umsagnar. En ég tel, að áður en málið fær afgreiðslu í þinginu, sé óhjákvæmilegt, að svo verði gert, vegna þess að hér er um að ræða stórkostlega mikið fjárhagsmálefni fyrir Tryggingastofnunina, þannig að skipta mun tugum milljóna og útilokað, að nægilegt sé að ganga frá þessum lögum þannig, að ekki sé jafnframt tryggt, að hægt sé að greiða þær fjárhæðir, sem lögin gera ráð fyrir að greiða verði. Vegna þess að mér er ekki kunnugt um, hvernig þessu er háttað, treysti ég mér ekki til að taka þátt í atkvgr. og greiði ekki atkvæði.