14.08.1959
Efri deild: 13. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 469 í B-deild Alþingistíðinda. (171)
4. mál, almannatryggingar
Guðlaugur Gíslason:
Herra forseti. Ég vil gera grein fyrir, af hverju ég sat hjá við atkvgr., en það var vegna þess, að ég vildi fá þetta mál til n. Mér er kunnugt um það, að heiman úr mínu héraði lá fyrir síðasta hv. Alþingi áskorun um breytingu á 22. gr., sem gekk lengra en þessi till. En ég er ekki tilbúinn að flytja brtt. nú, enda mundi hún ekki ná fram að ganga gegnum báðar d. Þess vegna vil ég fá málinu vísað til n., af þeirri ástæðu einni, að ég vil fá aðstöðu til að geta komið fram þeim sjónarmiðum, sem ég veit að eru í þessu máli frá mínu byggðarlagi, en alls ekki vegna þess, að ég telji þetta ekki réttmæta, eðlilega og sjálfsagða lagfæringu á lögunum.