14.08.1959
Efri deild: 13. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 471 í B-deild Alþingistíðinda. (174)
4. mál, almannatryggingar
Forsrh. (Emil Jónsson):
Herra forseti. Mér þykir það vera í þessu máli eins og oft áður táknrænt um vinnubrögð þessa hv. þm., sem hér var síðast að tala, hv. 5. landsk., og hans flokks, að þeir leggja meira upp úr áróðursgildi máls, en úr því raunverulega gildi, sem málið hefur. Þess vegna hafa þeir komið með þetta mál fram nú á þessu þingi illa undirbúið eða réttara sagt óundirbúið, geta ekkert upplýst um, hvað það muni kosta, ekkert haft uppi nema frýjuorð í garð Alþfl. og annarra, sem eru ekki tilbúnir að afgreiða þetta að algerlega óathuguðu máli.
Til viðbótar við þetta vil ég aðeins segja, að það er með öllu rangt, að það hafi staðið á þm. Alþfl. að afgreiða þetta mál, — með öllu rangt. Og ég ætla, að ef alvara hefði fylgt hjá Alþb. og þessum hv. þm., þá hefði félmrh. fyrrv. stjórnar í þau 2½ ár, sem hann sat, a.m.k. átt að láta reyna á það hér á Alþ., hvort ekki væri hægt að koma málinu fram.