07.08.1959
Neðri deild: 12. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 474 í B-deild Alþingistíðinda. (182)
6. mál, endurlán eftirstöðva af erlendu láni
Jóhann Hafstein:
Herra forseti. Mig langar til þess að víkja nokkrum orðum að þessu máli.
Hv. 1. flm., þm. A-Sk., lagði á það áherzlu, að fulltrúar Framsfl. hefðu á s.l. þingi viljað hafa annan hátt á úthlutun þess erlenda lánsfjár, sem hér um ræðir og það ekki náð þá fram að ganga og legðu þeir því nú til, að eftirstöðvum, 50 millj. kr. eða u.þ.b., yrði nú varið á þann hátt, sem segir í þessu frv.
Það er bent á það, að fiskveiðasjóði hafi ekki verið lánað neitt af þessu erlenda lánsfé á s.l. þingi og það mun hafa staðið í sambandi við það, að frá fiskveiðasjóði lá greinargerð um það, að fjárhag hans væri þannig komið, að hann mundi fær um að sinna þeim verkefnum, sem hann fram að þessu hefur sinnt, án þess að þessi viðbót kæmi þá til, sem lagt var til, eða einhver hluti af þessu lánsfé og a.m.k. langt fram á ár, kannske til loka ársins 1960. En það er svo alveg rétt, að það eru ýmsar greinar atvinnulífsins við sjávarsíðuna, sem fiskveiðasjóður skv. lögum hefur heimild til að lána og væri mjög æskilegt, að hann gæti lagt til miklu meira fjármagn, en hann hefur gert að undanförnu, eins og til fiskvinnslustöðvanna. Þess vegna væri út af fyrir sig mjög æskilegt að fá meira fé inn í fiskveiðasjóðinn, þó að þessar staðreyndir liggi fyrir, sem ég gerði grein fyrir.
Um fiskvinnslustöðvarnar er hins vegar rétt að minna á það, að þegar Framkvæmdabankinn var stofnaður og tók til starfa og á árunum þar á eftir var yfirleitt gert ráð fyrir því af stjórnvöldunum, bæði stjórnendum fiskveiðasjóðs og Framkvæmdabankans og þáv. og síðari ríkisstj., að það yrði meginhlutverk Framkvæmdabankans að sinna fjárfestingarþörfinni í sambandi víð stærri fiskiðjuverin og fiskvinnslustöðvarnar. En því miður hefur ekki úr því rætzt, eins og menn hefðu óskað.
Svona liggur þetta í stórum dráttum.
En það, sem er aðalatriðið og fram kom hjá stjórn fiskveiðasjóðsins, var, að hún taldi sig ekki reiðubúna til þess að taka á móti þessu fé, erlendu fé, án þess að gerðar yrðu breyt. á l. um fiskveiðasjóð. Stjórn fiskveiðasjóðs hefur ekki skv. l. um fiskveiðasjóð heimild til þess að lána þetta erlenda fé með neinni gengisklásúlu, sem kallað er, eða fyrirvara um það, að sá, sem tekur féð, verði að taka það tilsvarandi því, að hann tæki lánið í erlendri mynt og fiskveiðasjóður væri aðeins í raun og veru milliliður. Þessi heimild er beinlínis veitt Framkvæmdabankanum og hann hefur veitt sín lán af erlendum lánum á þann hátt, að gengisáhættu hefur lántakandinn tekið á sig. Þetta er ekki hægt og ekki fyrir hendi hjá fiskveiðasjóði.
Ég fyrir mitt leyti taldi þess vegna mjög æskilegt, þegar allar þessar kringumstæður eru athugaðar, að ekki væri úthlutað til fulls þessum 50 millj. kr. á s.l. þingi, vegna þess að þá mundi gefast tími til þess á haustþinginu, — ég gerði ekki ráð fyrir, að málið kæmi fyrir á þessu aukaþingi, — að taka málefni fiskveiðasjóðs þannig til meðferðar að gera honum kleift með lagabreyt. að taka á móti þessu lánsfé til aukinna lánveitinga á sviði sjávarútvegsins. En það er skoðun fiskveiðasjóðs og ég er einn þeirra, sem eiga þar hlut að máli, að sjóðurinn geti ekki tekið, eins og aðstæðurnar eru og óvissan í okkar þjóðfélagi í efnahagsmálunum, við meira lánsfé, en hann hefur þegar gert án þess að hafa heimild til þess að lána það út þannig, að gengisáhættan sé á herðum lántakandans. Fiskveiðasjóður varð að afskrifa hjá sér um s.l. áramót 6 millj. kr. í gengistapi vegna 55% yfirfærslugjaldsins, sem kom á með löggjöfinni í maímánuði 1958, og hann skuldar nú um 40 millj. kr. í erlendu fé, sem hann lánar út nú skv. sínum lögum, án þess að nokkur gengisáhætta sé færð yfir á lántakandann. Við skulum gera okkur grein fyrir því, að ef svipuð gengisfelling eða nýtt yfirfærslugjald kynni að koma, álíka og það, sem kom á s.l. ári, þá yrði þarna um 20 millj. kr. skellur til viðbótar fyrir fiskveiðasjóð.
Ég er sjálfur nokkuð undrandi yfir því, að menn telji það hagsmunamál fyrir sjóði eins og t.d. ræktunarsjóðinn að taka við lánsfé með þessum skilyrðum. Og mér þætti fróðlegt, ef hv. 1. flm. málsins eða einhver annarra flm. þessa máls gæti upplýst okkur um það, hvað ræktunarsjóðurinn hefur tapað miklu í gengistöp á erlendum lánum, sem hann hefur fengið og lánað út, án þess að nokkur gengisáhætta fylgdi til lántakendanna og hvort það muni virkilega vera þannig, að stjórn ræktunarsjóðsins telji sér fært að taka við erlendum lánum áframhaldandi á þann hátt að gera enga breyt, hér á.
Eins og ég sagði áðan, gerði ég ekki ráð fyrir, að þetta mál kæmi fyrir þetta aukaþing og ég hef ekki heldur mikla trú á, að málið nái afgreiðslu á þessu stutta þingi, sem hefur öðrum störfum að gegna. En ég tel mikilvægast í þessu sambandi fyrir fiskveiðasjóð og tala aðallega um hann, að á haustþinginu, þegar það kemur saman, liggi málið þannig fyrir, að enn sé óráðstafað 50 millj. kr. og hægt verði þá að gera ráðstafanir til þess, að fiskveiðasjóði verði kleift að fá verulegan hluta af þessu lánsfé með þeim hætti, að hann taki ekki á sínar herðar of mikla áhættu um leið.