27.07.1959
Efri deild: 4. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 495 í B-deild Alþingistíðinda. (202)
5. mál, stjórnarskrárnefnd
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Ég held, að það sé í fyrsta skipti, síðan ég kom á Alþingi, að talað er um að kjósa nefnd í mál, áður en málið er komið til d. Það er ekki einu sinni búið formlega að útbýta öðru málinu, kosningafrv., öðru hefur verið útbýtt í Sþ. og hinu útbýtt í Nd., en hefur ekki enn verið útbýtt í þessari d. En það á að kjósa n. í málið í þessari d. áður en d. er búin að fá það til meðferðar.
Ég held, að það hafi aldrei komið fyrir áður, a.m.k. síðan ég kom á þing, að það hafi verið gert nema kannske einu sinni. Þetta á að vera gert til þess að hraða þessum málum. Ég skal þess vegna ekki leggja mig á móti því. Það má náttúrlega alltaf skapa nýjar þingvenjur. Ef maður á von á einhverju máli inn í Alþ. einhvern tíma á þingtímanum, má kannske kjósa n. strax annan daginn, sem þingið situr, ef maður á von á, að málið komi einhvern tíma seinna, áður en það kemur einu sinni fyrir viðkomandi deild. Það er það, sem hér er verið að gera. En ég mótmæli því, að það sé ekki skipuð nefnd hér í kosningalagafrv., sem athugað verði gaumgæfilega, því þó að það sé byggt upp og samið af 3 hæstaréttardómurum, ef ég man rétt, sem mig minnir, að hæstv. ráðh. segði í Nd., þá er það svo illa undirbúið, að það nær engri átt að leggja það inn í Alþ. eins og það er. Það þarf að gera við það óteljandi brtt., leiðrétta það og yfirvega og skilst mér, að þær brtt., sem þurfi að gera við það, séu minnst 36–40, bæði að efni til og formi og að ætla sér að fleygja svoleiðis undirbúnu frv. inn í eina sameiginlega nefnd beggja deilda, það nær engri átt. Til þess eru þingsköpin að tryggja, að hvert mál komi til beggja deilda og sé í báðum deildum athugað af nefnd, að það er ætlazt til þess, að þá fái málin betri athugun. Og þegar maður hefur mál eins og þetta, sem er í sjálfu sér dálítið vandasamt, ekki svo mjög mikið, en dálítið, en er undirbúið eins laklega og hér er gert, er ég algerlega á móti því, að það sé höfð samvinna í n. til að athuga það mál, í stað þess að það fái þinglega meðferð í báðum deildum, — algerlega á móti því. Mig hefði langað til að fá að vita hjá hæstv. forseta, hvenær hefur yfirleitt verið tekinn upp sá siður í Alþ. og við hvað það styðst í þingsköpum að setja nefndir í mál, sem ekki eru komin inn í d., en búizt við að komi einhvern tíma.