27.07.1959
Efri deild: 4. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 496 í B-deild Alþingistíðinda. (204)
5. mál, stjórnarskrárnefnd
Bernharð Stefánsson:
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. — Það er rétt sem hv. 6. þm. Reykv. sagði, að það hefur komið fyrir, að nefnd, sem ég hef verið form. í, hefur unnið með samkynja nefnd úr hv. Nd. að rannsókn og athugun mála. En þetta hafa verið fastanefndir. Hv. þm. mun aðallega hafa átt við fjhn., sem ég hef í mörg ár verið form. í og þingsköpin gera ráð fyrir því um fastanefndir. Ef þær vinna saman, er það samvinnunefnd. En þingsköpin gera ekki ráð fyrir þessu um lausanefndir og stjskrn. hlýtur að skoðast lausanefnd. Það er ekkert nefnt um það. Samt held ég, að það sé nú svo, — og það segi ég út af því, sem hv. 1. þm. N-M. sagði, — að a.m.k. 1944, þegar undirbúningur lýðveldisins fór fram hér á Alþ., þá skýrði ég nokkuð frá því áðan, hvernig því var hagað til. Það var kosin 12 manna skilnaðarnefnd, eins og ég sagði, í Sþ. Formlega átti hún að fjalla aðeins um yfirlýsingu um það, að Ísland skildi við Danmörku, en í reyndinni fjallaði hún um lýðveldisstjórnarskrána og þeir menn, sem voru kosnir í skilnaðarnefndina, voru síðar kosnir í stjskrn. deildanna. Hvort sú n. var kosin formlega hér í Ed., áður en málið kom hingað, skal ég ekki fullyrða um, en þó hygg ég, að svo hafi verið, að það hafi verið gert. En að vísu stóð alveg sérstaklega á þá. Annars er ég fyrir mitt leyti ekkert að hafa á móti því, að þessi nefnd sé kosin nú og hún fari að athuga kosningalögin. En það er hitt, sem ég vildi leggja áherzlu á og lagði áherzlu á, að hún athugaði málið sjálfstætt, sér fyrir þessa hv. d. og léti sér ekki á allan hátt nægja sameiginlega athugun í báðum n. og það er líka samkvæmt venju, sem hér hefur verið. Hv. 6. þm. Reykv., sem einmitt hefur veríð með mér í fjhn. þessarar d. í mörg ár, veit það, að þó að við höfum unnið með fjhn. hv. Nd. að máli, sem hefur legið fyrir Nd., höfum við tekið málið fyrir sérstaklega á fundum, eftir að því var til okkar vísað og ég vona og legg áherzlu á það, að sá háttur verði hér á hafður, að þessi n., sem stendur til að kjósa, athugi kosningalögin mjög rækilega, hvað sem líður sameiginlegri athugun. Eins og hv. 1. þm. N-M. sagði, eru þar fjöldamörg atriði, sem a.m.k. orka mjög tvímælis.