07.08.1959
Efri deild: 5. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 498 í B-deild Alþingistíðinda. (209)

5. mál, stjórnarskrárnefnd

forseti (EggÞ):

Á fundi þessarar þd. 27. júlí s.l. gerði hv. 1. þm. N-M (PZ) þá fyrirspurn til mín, hvort þess mundi nokkurt fordæmi, að n. hefði verið kosin í stjórnarskrármálum, áður en slík mál væru komin til d., en þá var hér til umr. till. um kosningu stjórnarskrárnefndar. Ég átti þess ekki kost þá að svara þessari fyrirspurn, en hef hins vegar aflað mér upplýsinga um þetta mál nú og fara niðurstöður hér á eftir:

Á Alþingi 1919 var á 1. fundi Sþ., 1. júlí, útbýtt frv. til stjórnarskrár konungsríkisins Íslands. 1. umr. í Nd. um frv. fór fram 7. júlí og á 3. fundi í Ed. var sama dag, 7. júlí, útbýtt till. til þál. um skipun n. til að íhuga stjórnarskrármálið. Flm.: Eggert Pálsson, Guðmundur Ólafsson og Magnús Torfason. Þáltill. var síðan samþ. og n. kosin. Stjskrn. Ed. gekk síðan í samvinnunefnd með stjskrn. Nd. til athugunar á stjórnarskrárfrv., og n. skiluðu sameiginlegu áliti til Nd. 25. ágúst. Málið kom síðan til Ed. 2. sept. Því var ekki vísað til n. þar, en einn nm. hafði framsögu um málið í d. Taka skal fram, að ákvæði þingskapa um lausanefndir hefur ekki verið breytt, síðan þetta gerðist.

Á aukaþinginu 1933 var á 1. fundi Nd., 3. nóv., útbýtt frv. til stjórnskipunarlaga um breyting á stjórnarskrá konungsríkisins Íslands, 18. maí 1920. Í lok 1. umr. um frv. í Nd., 7. nóv., var kosin stjskrn. til að fjalla um frv. Á 4. fundi í Ed., 9. nóv., var útbýtt till. til þál. um skipun stjskrn. Flm.: Jón Þorláksson, Einar Árnason og Jón Baldvinsson. Till. var samþ. og n. kosin sama dag. Frv. um stjórnarskrárbreytingu kom til Ed. 14. nóv., og því var vísað til n. 16. nóv., en ekki er bókað um störf n. fyrir þann tíma, nema um kosningu formanns og fundaskrifara.

Á sumarþinginu 1942 var hafður á annar háttur um afgreiðslu stjórnarskrárbreytingar. Frv. um breytta kjördæmaskipun fékk venjulega afgreiðslu í Nd., en Einar Árnason, 2. þm. Eyf., óskaði eftir skjótri afgreiðslu þess í Ed. og fór það nefndarlaust gegnum deildina. Um frv. til laga um kosningar til Alþingis var þá fjallað í allshn. deildarinnar.

Á Alþingi 1944 var á 2. fundi Sþ., 12. jan., útbýtt frá Nd. frv. til stjórnskipunarlaga um stjórnarskrá lýðveldisins Íslands. Á 4. fundi Sþ., 14. jan., var útbýtt frá Ed. till. til þál. um skipun stjskrn. Flm.: Bjarni Benediktsson, Jónas Jónsson, Brynjólfur Bjarnason og Hermann Jónasson. Till. var tekin til 1. umr. 18. jan., samþykkt og n. kosin sama dag. 1. umr. um stjskrfrv. í Nd. fór fram 17. jan. og þann dag, var kosin sérstök n. í þeirri d. til að athuga málið. Stjskrn. unnu síðan saman að athugun stjskrfrv. og skiluðu sameiginlegu nál. til Nd. 22. febr. Málið kom síðan til Ed. 25. febr. Því var ekki vísað til n. þar, en einn nm. hafði framsögu um málið í d. Taka má fram, að sömu þm. og kosnir höfðu verið í stjórnarskrárnefndir deildanna voru síðar, þann 20. jan., kosnir í skilnaðarnefnd, lausanefnd í Sþ.

Eins og ég sagði í upphafi, taldi ég nauðsynlegt, að þessar upplýsingar væru gefnar, þar sem ákveðið var eftir þeim óskað.

Ég vil nú taka fram vegna fjarvistar hv. 1. þm. N-M., að ég hafði sýnt honum þessar niðurstöður og hann hafði haft tækifæri til að kynna sér þær.