14.08.1959
Sameinað þing: 13. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 520 í B-deild Alþingistíðinda. (223)

8. mál, stjórnarskrárendurskoðun

Karl Kristjánsson:

Herra forseti. Út af ræðu hv. 1. þm. Reykv. (BBen), sem var form. í hinni frægu vel sofandi nefnd, vildi ég segja þetta til skýringar, af því að eftir því sem hann svaraði því, sem ég varpaði fram, gæti verið, að einhver misskilningur skapaðist um ástandið í nefndinni:

Árið 1952 lögðu sjálfstæðismennirnir fram tillögur í 20 liðum. Það var undir árslokin. Í byrjun ársins 1953 lagði ég fram sérstaka till. í n. Allir aðilar, sem fluttu þessar till., sjálfstæðismennirnir og ég, tóku fram, að þessar till. væru lagðar fram sem umræðugrundvöllur. Þeim var útbýtt til nm. til athugunar. Síðan hefur ekki fundur verið boðaður, og þessar till. eru því á kodda nefndarinnar og sofa með henni, en það var langt frá því, að n. hefði tekið afstöðu til þeirra. Þær voru til athugunar. Það er rétt, að form. tók fram, að ef menn vildu, að fundur yrði haldinn, þá gætu þeir óskað eftir því. Hins vegar leit ég alls ekki svo á, að form. væri að segja það, að hann mundi aldrei framar stofna til fundar í nefndinni, nema einhver óskaði eftir því. Það er einnig rétt, að ég óskaði ekki eftir fundi sérstaklega í n. Hins vegar hef ég alltaf litið svo á, að n. ætti ólokið störfum og þær till., sem fram komu, væru á fyrsta umræðustigi. Ég hygg, að það megi líta svo á, að form. n. hafi eitthvað svipað á hendi og form. á báti, þegar gefur, þá muni hann kalla til skips. Hann hefur aldrei kallað til skips, hv. 1. þm. Reykv., síðan 1953. En í vetur virtist vera veður til að róa, því að þá var áhuginn genginn á miðin og ég átti von á því, að þá mundi hann kalla til skips. En um leið og ég frétti þetta eða samtímis, hafði hann fengið sér aðra áhöfn og var orðinn skipstjórnarmaður á öðru skipi og ég fyrir mitt leyti lít svo á, að það sé út af fyrir sig málefni, sem honum bæri að afsaka við okkur nm. og í raun og veru að afsaka við Alþingi, sem hafði stofnað til þeirrar nefndarskipunar, sem honum var falið að vera form. í og sefur á ábyrgð hans eins og Þyrnirós. Og ég hygg, að það væri ekki nema vel við eigandi, að Alþ. samþ. nú þessa till. og kippti þannig svefnþorninu burt, því ef það dugir ekki til þess, að n. taki til starfa, þá gæti næsta Alþ. skipað aðra nefnd.