08.08.1959
Sameinað þing: 8. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 523 í B-deild Alþingistíðinda. (229)
9. mál, verðtrygging sparifjár
Flm. (Ólafur Jóhannesson):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram hér á þskj. 12 þáltill. um skipun n. til athugunar á verðtryggingu sparifjár.
Eitt þeirra atriða, sem alveg sérstaklega hafa sett svipmót sitt á íslenzkt fjármálalíf tvo undanfarna áratugi, er hið sífellda verðfall peninga. Verðgildi íslenzkra peninga hefur á þeim tíma stöðugt farið lækkandi. Kaupmáttur hverrar krónu hefur minnkað ár frá ári, þó auðvitað misjafnlega mikið ár hvert. Ég hef ekki við höndina nákvæmar tölur um árlega rýrnun á verðgildi peninganna þessa síðustu tvo áratugi, en ég hygg, að óhætt sé að fullyrða, að hún hafi að meðaltali numið meira en nemur hæstu lögleyfðum vöxtum og sennilega talsvert meira.
Verðfall peninganna hefur auðvitað komið hart niður á sparifjáreigendum, jafnt einstaklingum sem öðrum og þá ekki hvað sízt á ýmsum opinberum sjóðum. Maður, sem hafið hefur sparifjársöfnun í því skyni t.d. að kaupa sér íbúð, verður að nokkrum árum liðnum að horfast í augu við þá staðreynd, að hann er engu nær því marki að eignast íbúð nú, en áður fyrr. Hann fær að vísu í hendur fleiri krónur en hann á sínum tíma lagði inn í peningastofnunina, en þær krónur eru miklu verðminni, svo að hærri krónutalan, sem hann fær útborgaða, er raunverulega minna virði, hann fær minna fyrir hana af verðmætum, hvort heldur er til neyzlu eða framkvæmda, heldur en hann hefði getað fengið á sínum tíma fyrir þá lægri upphæð, sem hann lagði í bankann eða peningastofnunina.
Maður, sem selt hefur húseign sína fyrir t.d. fimmtán árum og hefur þá lagt andvirðið í banka, getur nú ekki keypt nema örlítinn hluta jafngóðrar húseignar fyrir bankainnistæðuna. Fólk, sem lagt hefur til hliðar til elliáranna og lagt fjárhæðina á vöxtu í banka, verður að horfast í augu við þá staðreynd, að verðbólgan hefur étið upp drjúgan part þessarar ellitryggingar, þegar til kemur.
Slík dæmi mætti lengi telja, en ég vil ekki tefja tímann hér á því, þar sem þetta er alkunn og óumdeilanleg staðreynd. En sérstök ástæða er þó til að benda á, að verðgildisrýrnun peninganna hefur komið sérstaklega hart við marga opinbera sjóði, m.a. ýmsa gjafasjóði, sem til hefur verið stofnað af góðvild og fórnfýsi til stuðnings einhverjum merkum og góðum málefnum, svo sem líknarstarfsemi, menningarstarfsemi o.s.frv. Slíkir sjóðir hafa rýrnað svo mjög vegna verðfalls peninganna, að þeir geta alls ekki komið að þeim notum, sem upphaflega var til ætlazt og stofnendur sjóðanna vonuðust í öndverðu til. Fyrir ýmsa tryggingasjóði og þá ekki hvað sízt lífeyrissjóðina, sem til hefur verið stofnað að undanförnu ýmist með lögum eða með samningum, er þetta orðið alveg sérstakt vandamál. Starfsemi þeirra sjóða er beinlínis í hættu af völdum verðbólgunnar og verðrýrnunar peninganna.
Sparifjáreigendur og hreinir sjóðir hafa tapað á ríkjandi verðbólguástandi. Þjóðfélagið hefur búið að þeim illa og ómaklega að minum dómi. Á þeirra kostnað hafa aðrir í raun og veru grætt. Sannleikurinn er sá, að í mjög mörgum tilfeilum a.m.k. hafa lántakar grætt á kostnað lánveitenda og þar með á kostnað sparifjáreigenda. Verðgildisrýrnun peninganna hefur haft í för með sér eignatilfærslu. Hið raunverulega gildi peningasamninga hefur breytzt. Þegar komið hefur til endurgreiðslu lána, eru þau goldin með miklu verðminni krónum og eru í raun og veru orðin miklu minna virði, en þegar lánin voru upphaflega tekin.
Það, sem í mörgum tilfellum hefur gerzt, svarar alveg til þess, að maður hafi á sínum tíma fengið leigða eða að láni loðna og lembda á, en þyrfti svo ekki að skila aftur nema lambi. Það er auðsætt, að með slíkri áframhaldandi óheillaþróun er fótum kippt undan allri sparifjársöfnun og sjóðamyndun. Verðgildisrýrnun peninganna hefur leitt til vaxandi vantrúar á gildi peninga. Sú vantrú hefur aftur ýtt undir alls konar eyðslu og spákaupmennsku. Menn keppast við að festa fé sitt í einhverju fríðu, ef nokkur kostur er.
Jafnframt því, sem þetta ástand í peningamálunum hefur dregið úr viðleitni manna til sparifjármyndunar, hefur það skapað stóraukna lánsfjáreftirspurn. Menn hafa keppzt við að fá lán til þess að ná með þeim hætti í verðbólgugróða. Verðfall peninganna hefur þannig haft það hvort tveggja í för með sér, að framboð fjármagns hefur minnkað, en lánsfjáreftirspurn aukizt.
Þær afleiðingar verðfalls peninganna, sem hér hefur stuttlega verið drepið á, þ.e.a.s. óeðlileg eignatilfærsla og óheppileg áhrif á meðferð fjár, eru mjög varhugaverðar, bæði frá sjónarmiði sparifjáreigenda og frá sjónarmiði þjóðfélagsins í heild. Hér er því þörf lagfæringar. Sú leiðrétting er réttlætis- og sanngirnismál gagnvart sparifjáreigendum, því að það er ekki sanngjarnt, að þeim einum sé haldið niðri og öðrum í rauninni veitt aðstaða til að hagnast á þeirra kostnað, auk þess sem slíkt getur stuðlað að því, að lánastarfsemi leiti í óeðlilega farvegi, þegar til lengdar lætur og fari æ meir um hendur okrara. En sú leiðrétting er líka að mínum dómi spor í þá átt að koma á jafnvægi á milli sparifjármyndunar og lánsfjármyndunar og mundi þar með stuðla að auknu jafnvægi á peningamarkaði.
Ef takast mætti að stöðva verðbólgu og halda hér nokkurn veginn stöðugu verðlagi, væri verðtrygging sparifjár að sjálfsögðu óþörf. Það væri auðvitað það æskilega, að hægt væri að skapa slíkt jafnvægisástand. En það er ekki á mínu færi að spá um það, hvort slíkt muni takast á næstunni eða ekki. Ég held, að slíkt muni ekki takast, nema með mjög víðtækri samstöðu stjórnmálaflokka. Hvort slík samstaða er fram undan eða ekki, skal ég engu spá um, en hygg þó, að þær deilur, sem til hefur verið stofnað um stjórnarskrárbreytingu og óþarfi er hér að fara að rekja, muni ekki létta þá samstöðu. En ef ekki tekst að stöðva verðþensluna og verðbólguástandið á að halda áfram, þá er þetta, verðtrygging sparifjár, fullkomið réttlætismál, og til hennar verður að gripa að mínu áliti.
Hér hefur að vísu einkum verið litið á málið frá sjónarmiði sparifjáreigenda. En því má auðvitað ekki gleyma, að þessari skipan, verðtryggingu sparifjár, fylgja nokkur vandkvæði. Einhver verður að bera kostnaðinn við verðtrygginguna. Það verða sjálfsagt lántakar að gera. Þá segja menn: Hlýtur þá ekki fjármagnskostnaður, þ.e.a.s. einn liður í rekstrarkostnaði atvinnufyrirtækja, t.d. að hækka og verður þá ekki með þessum hætti ýtt einmitt undir verðbólgu og þá víxlverkun, sem vísitala virðist hafa í för með sér? Sjálfsagt veldur almenn verðtrygging sparifjár einhverri hækkun á fjármagnskostnaði. Það er ekki á mínu færi að segja um það, hve mikil sú hækkun yrði. Ég held þó, að sú hækkun gæti naumast orðið hár liður borinn t.d. saman við vinnukostnað.
Þá kemur hér og ekki síður til greina, að á þessari skipan, verðtryggingu sparifjár, eru sennilega ýmsir framkvæmdarerfiðleikar, ekki sízt, ef taka á upp almenna verðtryggingu sparifjár. En auðvitað má hugsa sér að binda verðtrygginguna við ákveðnar tegundir, ákveðna flokka sparifjár eða ákveðnar tegundir innlána. Allt þetta þarf við gaumgæfilegrar rannsóknar.
Alþingi hefur áður sýnt skilning sinn á þessu mikla vandamáli og lýst vilja sínum í þessu efni. Á Alþingi 1952 báru þrír þm., þeir hv. þm. V-Húnv. (SkG), þáv. þm. Rang., Helgi Jónasson, og hv. þm. S-Þ. (KK), fram svo hljóðandi þáltill. um verðtryggingu sparifjár:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að taka þegar til gaumgæfilegrar rannsóknar, hvort eigi sé hagkvæmt og framkvæmanlegt að koma á þeirri skipan, að bankar og sparisjóðir taki fé til ávöxtunar með skuldbindingu um að greiða uppbætur á það, samsvarandi þeirri hækkun, sem verða kann á kaupgjaldsvísitölu eða vísitölu framfærslukostnaðar á þeim tíma, sem féð er geymt óhreyft á sama reikningi, en það sé eigi skemur en fimm ár, enda verði lántakendum þessa fjár sett það skilyrði, að þeir greiði bönkum og sparisjóðum verðuppbætur á lánsféð samkvæmt framangreindri reglu, ef vísitalan hækkar á lánstímanum. Þá er ríkisstj. og falið að vinna að því, að þetta fyrirkomulag um ávöxtun sparifjár og útlán þess verði upp tekið, ef jákvæður árangur verður af rannsókninni.“
Þessi þáltill. var samþykkt á sínum tíma. Þessu máli var svo aftur hreyft með fsp. á Alþingi, bæði á þingunum 1953 og 1955. Af framkvæmdum í þessu efni hefur þó ekki orðið, að því fráskildu, sem mönnum er kunnugt um, að tekin hefur verið upp vísitölubinding á verðbréfum að nokkru leyti.
Mér þykir rétt, að Alþingi láti þetta mál enn til sín taka. Eins og ljóst er af ályktun þeirri, sem ég las og Alþ. gerði á sínum tíma, var hún nokkuð á annan veg og nokkuð annars efnis, en þáltill. sú, sem ég flyt hér, þar sem í minni till. er ekki tekið neitt fram um það, við hvað verðtryggingin skuli miðuð, né heldur kveðið á um nein tímatakmörk innlána. Ég geri ráð fyrir því, að n. sem tekur málið til athugunar, taki einmitt öll þau atriði til athugunar og rannsóknar. En auk þess má benda á það, að það er sérstök ástæða til þess einmitt nú fyrir Alþingi að láta mál þetta enn til sín taka, af því að þetta gerist æ meira vandamál með hverju ári sem líður.
Að sjálfsögðu hafa peningastofnanir haft mál þetta til athugunar. Í skýrslu stjórnar seðlabankans fyrir árið 1958 segir m.a. svo, með leyfi forseta:
„Það er því full ástæða til þess að athuga, hvort ekki eigi af hálfu seðlabankans og bankakerfisins að grípa til þeirra ráða, sem völ er á, til að auka sparnað og draga úr eftirspurn eftir lánsfé og koma þannig meira jafnvægi á peningamarkaðinn. Til þess að ná þessum markmiðum er sérstaklega um tvær leiðir að ræða. Önnur er sú að hækka vexti verulega um stundarsakir, á meðan verið er að koma á varanlegu jafnvægi í peningamálum þjóðarinnar. Hin er sú að koma á verðtryggingu. Getur þá komið til greina að verðtryggja sparifé og verðmæti peningasamninga við almenna vísitölu, verðlag einstakra mikilvægra vöruflokka eða við verð gulls og erlends gjaldeyris.“
Þess má hér aðeins geta, að árið 1955 hurfu Finnar að því ráði að koma á hjá sér verðtryggingu á tilteknum sparifjárreikningum. Þar mun tryggingin hafa verið bundin við vísitölu neyzluverðlags. Skilyrði var það, að innlán væri bundið til tólf mánaða og enn fremur var það bundið við tiltekna lágmarksupphæð. Vextir af þessum reikningum voru til að byrja með um 1–1½% lægri, en á öðrum sparifjárinnlánum. En þó voru þeir vextir hækkaðir árið eftir, vegna þess að árið 1955 var tiltölulega rólegt í verðlagsmálum hjá Finnum og þess vegna gætti þessa lítið þar það ár, en aftur á móti varð veruleg hækkun 1956. Í júlílok 1957 var svo komið, að vísitölutryggðar innistæður þar námu eða voru komnar upp í 17% af öllum eiginlegum innlánum í peningastofnunum. Því miður vannst mér ekki tóm til þess nú að afla mér upplýsinga um, hvernig þessi mál stæðu í dag hjá Finnum. Mér er jafnvel sagt, að þeir muni hafa horfið frá þessu að einhverju eða öllu leyti siðar. En hvað sem um það er, þá má sjálfsagt eitthvað læra af reynslu Finna í þessu efni.
Ég hef leyft mér að leggja til, að skipuð væri n. af ríkisstj. hálfu til athugunar á þessu máli og þeirri nefndarskipun væri hagað á þann veg, að þingflokkarnir nefndu þar til sinn manninn hver. Það má að vísu segja, að þetta sé þess háttar mál, sem sé á færi sérfræðinga einna að rannsaka til hlítar. En ég verð samt sem áður að telja það heppilegra að, að athugun slíkri sem þessari standi fulltrúar þingflokkanna og þingflokkarnir bindist þannig óbeinlínis í málið. Ég verð að telja það tryggara, til þess að málíð nái þá fram að ganga og þingflokkarnir verði þá ábyrgir í því. En ég tel óráð að taka upp slíka skipan sem þessa, nema um hana náist nokkuð sterk samstaða þingflokkanna. Hins vegar er svo lagt til, að bankakerfið hafi í þessari n. sinn fulltrúa og þá verður að teljast eðlilegast, að það sé seðlabankinn, sem tilnefni þar fulltrúa, þar sem hann má skoðast sem eins konar fyrirsvarsmaður bankakerfisins að þessu leyti.
Ég skal svo ekki lengja mál mitt, en vil aðeins að lokum segja það, að á meðan ekki tekst að halda verðlaginu stöðugu, tel ég, að það sé rétt að hverfa að verðtryggingu sparifjár almennt eða svo almennt sem frekast er kostur og ég er fyrir mitt leyti sannfærður um, að hún mundi stuðla að meira fjármagnsframboði, betri nýtingu fjármagnsins, aukningu þjóðartekna og öruggari peningamarkaði. Að öðru leyti vísa ég til grg. Og svo leyfi ég mér, herra forseti, að leggja til, að málinu verði að lokinni þessari umr. vísað til fjvn.