14.08.1959
Sameinað þing: 13. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 535 í B-deild Alþingistíðinda. (239)

11. mál, niðurgreiðsla á landbúnaðarvörum

Eysteinn Jónsson:

Ég vil láta í ljós álit mitt um þessa ósk hæstv. menntmrh. Það er náttúrlega öllum mönnum ljóst, að ef þessari till. verður vísað til n., þá þýðir það sama og að vilji þingsins um þetta atriði kemur ekki í ljós. Það eru ekki líkur til þess, að n. geti starfað svo fljótt, að málið komi aftur á dagskrá og þess vegna er ósk hæstv. menntmrh. raunverulega um, að málinu verði vísað frá og þingviljinn um málið komi ekki fram. Það er vitanlega misskilningur hjá honum, að þetta mál sé svo flókið, að það þurfi einhverjar sérstakar upplýsingar til þess að skapa sér skoðun á því. Og ég held, að hann þurfi ekki að bera neinn kvíðboga fyrir því, að þm. rasi um ráð fram eða kunni ekki fótum sínum forráð í þessu efni, enda hafa þeir sjálfsagt nokkuð mótaðar skoðanir um það, hvernig skynsamlegt sé að álykta um þetta efni. Þess vegna vil ég fara fram á það við hæstv. forseta, að hann verði ekki við ósk hæstv. menntmrh., heldur láti umr. halda áfram, þannig að atkvgr. geti átt sér stað.