14.08.1959
Sameinað þing: 13. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 536 í B-deild Alþingistíðinda. (241)
11. mál, niðurgreiðsla á landbúnaðarvörum
Eysteinn Jónsson:
Það er aðeins um fyrirkomulagið og þessa ósk hæstv. menntmrh. Ég álít, að þetta sé hreinn fyrirsláttur hjá hæstv. menntmrh. og ekkert annað, en tilraun til þess að koma í veg fyrir, að þingviljinn um þetta efni komi í ljós. Það þýðir auðvitað ekkert fyrir hæstv. menntmrh. að bera það fyrir, að þm. séu svo ókunnugir þessu niðurgreiðslukerfi og ókunnugir því, hvort hyggilegt sé að halda áfram að greiða niður eða bæta við niðurgreiðslum á landbúnaðarafurðum án þess að spyrja framleiðsluráð, að þeir séu ekki bærir um að greiða atkv. án þess að fá einhverjar sérstakar leiðbeiningar frá honum eða ríkisstj. um það. Ég mótmæli þessum fyrirslætti algerlega sem óþinglegum með öllu og fram komnum til þess að koma í veg fyrir, að þingviljinn komi í ljós um þetta mál. Till. fjallar um það, eins og menn vita, að óska eftir því, að ekki verði gengið lengra á þessari niðurgreiðslubraut nema í samráði við framleiðsluráð landbúnaðarins og tekið tillit til óska þess í því. Hv. þm. eru áreiðanlega alveg bærir um að gera upp hug sinn í því máli án þess að fá sérstakar forskriftir um það frá hæstv. ríkisstj. Ég vil því enn skora á hæstv. forseta að taka ekki þessa ósk hæstv. menntmrh. til greina og raunar skora á ráðh. að taka þessa ósk aftur, því að hún er ekki þingleg að mínum dómi.