04.08.1959
Neðri deild: 9. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 142 í B-deild Alþingistíðinda. (25)

1. mál, stjórnarskipunarlög

Björn Pálsson:

Herra forseti. Þingræðið er tiltölulega ungt, eins og við þekkjum það hér í Norðurálfu og það hefur reynzt misjafnlega. Það er með þjóðirnar eins og einstaklingana, að þeim gengur misjafnlega að leysa verkefnin. Við getum tekið tvo bændur. Öðrum búnast vel, hinum illa. Við getum tekið formenn á skipi. Annar getur veitt, hinn ekki. Við getum tekið iðnaðarmennina. Öðrum tekst að framleiða útgengilega vöru, hinum ekki. Ég held, að í þeim tilfellum sé ráð fyrir þann, sem verr gengur, að athuga, í hverju það liggur, að grannanum gengur betur. Ef við lítum yfir þingræðislöndin, þá hefur þetta gengið misjafnlega, eins og ég tók fram áðan. Sums staðar hefur þingræðið liðið undir lok varanlega, í öðrum löndum yfir skemmri tíma. En önnur lönd hafa staðið af sér allar öldur og þingræðið hefur reynzt varanlegt og traust.

Þingræðið í þeirri mynd, sem við þekkjum það nú, er einna elzt í Bretlandi og hefur reynzt þar vel. Það, sem einkum veldur því, að þingræðið hefur verið svo traust í þessu landi, er, að þar hafa alltaf verið fáir flokkar, þar hafa verið einmenningskjördæmi, en einmenningskjördæmi valda því, að flokkar verða fáir og meiri festa á stjórnarháttum.

Við getum tekið Bandaríkin. Þar hefur lýðræðið reynzt varanlegt. Þeir hafa líka einmenningskjördæmi. Við getum hugsað okkur jafnstóra þjóð og Bandaríkin eru, ef þar væru 10–20 flokkar. Við getum ímyndað okkur framkvæmdirnar, ef þar væri stillt upp 20 forsetaefnum og forsetinn kæmist að með miklum minni hl. atkv.

Við getum tekið Þýzkaland eftir fyrri heimsstyrjöldina eða á tóma Weimar–lýðveldisins. Þar voru flokkarnir 25. Þar var hver höndin upp á móti annarri. Þar tóku öflin lengst til vinstri og lengst til hægri saman höndum í því að vinna á móti miðflokkunum. Þetta tókst. Kommúnistarnir héldu, að þá mundu þeir komast til valda. Nazistarnir héldu, að ef þeir gætu drepið miðflokkana, þá mundu þeir komast til valda. Nazistarnir komust til valda og þá var ekki griða von. Þeir léku kommúnistana verst. Þetta hefur haft meiri áhrif, en flest annað í heiminum. Það kom af stað síðari heimsstyrjöldinni.

Síðari heimsstyrjöldin hefur orðið þess valdandi, að rússneski kommúnisminn hefur þanizt út í heiminum, að Rússar ráða nú yfir hálfri Evrópu eða meira, að Bandaríkjamenn og Rússar standa vígbúnir hvor gegn öðrum, að vígbúnaðartæknin er orðin það mikil, að heimurinn er í hættu, ef í styrjöld fer. Það eru ekki lýðræðisöfl, sem ráða austurhluta Evrópu, það er einræði og við vitum, hvernig einræðið hefur reynzt. Það er þannig með einræðisherrana, að þeir ofmetnast, þeir kunna sér ekki hóf og ef svo færi, að t.d. annað aðilinn hættir að hugsa rökrétt, hann ofmetnast, væri meiri hætta á ferðum en hægt er að lýsa með orðum.

Við skulum taka Frakka. Þar er allt í upplausn vegna þess, hve flokkarnir voru margir og ógerlegt að stjórna landinu. Við vitum að ef formaðurinn á skipinu er ráðlítill og kann ekki að segja hásetunum fyrir verkum, þá hætta þeir að hlýða. Þannig var með nýlendurnar hjá Frökkum. Þeir fundu óstjórnina í heimalandinu og fóru að gera uppreisnir. Annars er ég ekki að mæla nýlendunum bót.

Við skulum taka Spán. Þar voru flokkar margir og stjórnleysið svo mikið, að það leiddi til uppreisnar. Frakkar gátu bjargað sér í bili, af því að þeir höfðu mann, sem tók í raun og veru alræðisvald í landinu og hann hefur komið festu á stjórnarfarið. Annars er ekki að vita, hvar þetta hefði lent fyrir þeim.

Ég hef bent á þetta til þess að sýna fram á, að hvert þjóðfélag þarf að hafa húsbónda á heimilinu, húsbónda, sem er fær um að segja fyrir verkum. Hjúin þurfa að hafa sinn rétt, en mega ekki bera húsbóndavaldið þannig ofurliði, að það geti ekki notið sín.

Viðvíkjandi þessari kjördæmaskipun, sem á að fara að koma á hjá okkur, hefur verið vitnað til Norðurlandanna. Það er satt, að hlutfallskosningar eru í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi. Það er líka rétt, að þetta hefur gengið þolanlega, þ.e.a.s. í þremur af þessum löndum. En í Finnlandi eru átta stjórnmálaflokkar og þeir eru að verða í vandræðum. Kommúnisminn er þar að grafa rætur undan þjóðskipulaginu og sennilega er það eina, sem getur bjargað Finnum frá því að verða kommúnismanum að bráð, að koma á hjá sér einmenningskjördæmaskipulagi. Í Svíþjóð er blandað kerfi. Norðmenn hafa hlutfallskosningar og engin uppbótarsæti. Landinu er skipt í 20 kjördæmi. Jafnaðarmenn hér hafa haldið því fram, að það eigi eingöngu að fara eftir atkvæðatölunni. Flokksbræður þeirra hafa ráðið í Noregi nú í lengri tíma, þeir hafa 77 þm. af 150, en þeir koma þessum 77 mönnum að með 46.6% atkv. Kommúnistar eiga ekki nema 3 menn á þingi en þeir ættu, ef farið væri algerlega eftir höfðatölu, að hafa 6–7. Aðaláróður jafnaðarmanna hefur verið þannig, að þeir segja: Höfðatalan ein á að ráða. — En í Noregi er það þannig, að Óslóborg, sem hefur 450 þús. íbúa, hefur 13 þm., en 3 nyrztu kjördæmin í Norður-Noregi hafa 22 þm., og þar eru 400 þús. íbúar. Hver einstaklingur í Norður-Noregi hefur tvöfaldan rétt á við höfuðborgina. Það eru jafnaðarmenn í Noregi, sem sætta sig við þetta.

Við getum líkt þjóðfélaginu við stóran búgarð. Það er stórt tún á þessum búgarði. Við vitum, að það þarf meiri tíma og betri tæki til þess að flytja áburðinn út á jaðra túnsins, heldur en í kringum fjárhúsin. Og það þarf meiri tíma og meiri tækni til að flytja heyið í hlöðu, ef langt er að fara, heldur en heyið, sem er í kringum fjárhúsin. Þetta vita jafnaðarmennirnir í Noregi. Það er allt önnur aðstaða fyrir fólkið, sem býr úti í hinum dreifðu byggðum, en fólkið, sem býr í höfuðborginni.

Við getum líkt þjóðfélaginu við plöntu og höfuðborginni við blómið, en landsbyggðin verður alltaf sú mold, sem ræturnar fá næringu úr. Ef við hugsum ekki um að bera á jörðina, spretta ekki jurtirnar.

Á flokksþingi framsóknarmanna, sem haldið var s.l. vetur, lagði flokkurinn til, að gömlu kjördæmin fengju að halda sér og lét í það skína, að hann væri fylgjandi einmenningskjördæmum. Flokksþingið gerði ekki ákveðnar till., vegna þess að það var litið svo á, að ekki væri hægt að segja þingflokknum algerlega fyrir verkum í þessu efni. Hann hafði því að nokkru leyti óbundnar hendur. Flokksþingið gerði ekki beinar till. viðvíkjandi Reykjavík. Það skal tekið fram, að skoðanir mínar hafa mótazt sem kjósanda úti á landi, en ekki sem starfandi þm. hér. Fyrir mér vakti það að minnsta kosti, að það væri ekki eðlilegt, að við gerðum till. um að breyta höfuðborginni í einmenningskjördæmi, fulltrúar Reykvíkinga yrðu að eiga frumkvæðið að því. En vitanlega var framsóknarþingið fylgjandi einmenningskjördæmum. Þetta skildi hv. 3. þm. Reykv. réttilega, því að Þjóðviljinn rak upp óp mikið, um leið og hann las þessa ályktun og sannleikurinn er sá, að hans afstaða hefur alltaf verið skiljanleg. Kommúnistar vilja fara aðrar leiðir, en við, til að leysa vandamálin. Þeir vilja ekki treysta það þjóðskipulag, sem við búum við, heldur vilja þeir breyta því. Við verðum þess vegna alltaf að hafa það hugfast, að við getum ekki átt samleið með þeim í uppbyggingu þjóðfélagsins.

Afstaða framsóknarmanna til kjördæmamálsins er því sú, að við lítum svo á, að við fáum ekki traust þingskipulag nema með einmenningskjördæmum. Við álitum, að það veiki aðstöðu þingræðisins að hafa stór kjördæmi og hlutfallskosningar, það skapi grundvöll fyrir marga flokka, en margir flokkar geti í vissum tilfellum gert þingræðið algerlega óstarfhæft. Afstaða kommúnista er skiljanleg. Þeir vilja veikja það skipulag, sem við búum við og þeir vilja upplausn. Þess vegna er það ósköp eðlilegt, að þeir hati einmenningskjördæmi. — Kommúnisminn getur ekki þrifizt, þar sem eru einmenningskjördæmi. Það þarf að losa um jarðveginn til þess að geta sáð fræinu. Þar sem einmenningskjördæmi eru, þrífst ekki kommúnisminn, þeir verða utanveltu, þeir verða eins og krunkandi hrafnar, sem ekki ná í æti. En lýðræðislöndin geta notað kommúnismann til eins, þau geta haft hann fyrir áttavita. Það er eitt, sem lýðræðisflokkarnir verða að athuga, þeir mega aldrei stefna eins og kommúnisminn vísar veginn. Þeir verða að fara í öfuga átt. Ég hélt, að hv. 1,.þm. Reykv. vissi þetta, sökum þess að hann er gáfaður maður, en viðvíkjandi þessu máli fer hann í sömu átt og hv. 3. þm. Reykv. bendir honum. Hann virðist í þessu tilfelli ekki þekkja á áttavita kommúnismans. Ég skal taka það fram, að í Alþb. er fjöldi af mönnum, sem ekki eru kommúnistar og þeir vilja af heilum hug efla það þjóðskipulag, sem við búum við og vinna að velferð okkar þjóðar á þeim grundvelli, sem við byggjum nú á.

Jafnaðarmenn eru alltaf að finna upp á því að breyta kjördæmaskipuninni. Henni hefur tvisvar verið breytt hér á landi, 1934 og 1942. 1934 komu uppbótarþingsætin. Þau hafa e.t.v. skapað meiri upplausn í okkar þingræði, en nokkuð annað, sem gert hefur verið. Það hefði verið miklu viturlegra og betra að afhenda þéttbýlinu þessa fulltrúa sem kjördæmakosna, heldur en dreifa þeim sem uppbótarþingmönnum. Við hefðum fengið meiri festu í okkar þingræði með því móti. 1942 var aftur breyting á kjördæmaskipuninni, en hafði miklu minni áhrif. Jafnaðarmenn hafa alltaf beitt sér fyrir breyttri kjördæmaskipun og þeir gera það enn. Þeir halda, að það sé þessi rangláta kjördæmaskipun, sem þeir kalla, sem veldur því, að þeim hefur ekki búnazt betur, en raun ber vitni. Ef menn búa á lítilli jörð og búskapurinn ber sig illa, þá halda þeir, að það sé jörðinni að kenna. Sumir geta alls staðar búið, hvort sem þeir búa á lítilli eða stórri jörð. Menn þurfa því að athuga, hvort það er ekki eitthvað að þeirra eigin búskaparbáttum, ef þeim búnast illa. Ég held, að það sé þannig fyrir jafnaðarmönnum. Það hefur verið sýnt fram á, að þó að kjördæmabreyting sú, sem nú stendur til, væri komin fram, þá fengju þeir aðeins einum þm. meira, þeir fengju 7, og 7 þm. af 60 er ekkert meira en 6 af 52. Þeir vinna því ekkert við þessa kjördæmabreytingu. Nei, þeir þurfa að athuga sína búskaparhætti betur. Sannleikurinn er sá, að þeir hafa ekki verið hjúasælir í sínum búskap. Stundum hafa þeir rekið húskarlana í burtu, en stundum hafa þeir gengið úr vistinni. Þetta voru vanalega húskarlar, sem dugur var í. Ég held, að þeir hafi rekið Héðin sáluga Valdimarsson úr vistinni. Hann var fyrirferðarmikill. Ég er ekki alveg viss um það, hvort Hannibal gekk heldur úr vistinni eða þeir ráku hann. Þetta hefur gengið svona. Svo er það, þegar einn húskarlinn fer, að þá fara fleiri. Jafnaðarmenn hafa átt misgóða granna. Kommúnistar hafa verið á öðru leitinu. Þeir hafa alltaf verið að bjóða húskörlum jafnaðarmanna hærra kaup og meiri fríðindi. Kommúnistar eru greindir og vita, hvað þeir vilja. Þeir verða ekki áttavilltir. Þetta hefur veikt Alþýðuflokkinn. Svo er hættulegur leikur, sem þeir eru farnir að leika, og það er að lána nágrönnunum húskarlana. Það er þannig, þegar smábóndi lánar stórbónda vinnumann, þó að sé ekki nema stuttan tíma, ef honum líkar vel vístin, þá er ekki víst, að hann komi úr henni aftur.

Jafnaðarmenn voru í samstarfi við okkur framsóknarmenn 1956 og það fór vel á með okkur. Ég var einn af þeim, sem var sagt að kjósa jafnaðarmann og gerði það, eins og eðlilegt var. Þeir hjálpuðu frambjóðanda Framsfl. í Barðastrandarsýslu og í Vestur-Ísafjarðarsýslu. En það má segja um jafnaðarmenn eins og guð almáttugan, að drottinn gaf og drottinn tók. Þeir vildu fara að verða góðir við sjálfstæðismenn við þessar kosningar og þá lánuðu þeir frambjóðendum Sjálfstfl. svona nokkurn veginn það, sem þeir þurftu, a.m.k. í Barðastrandarsýslu og Vestur-Ísafjarðarsýslu, þannig að þeir gáfu þeim frí, sem þeir höfðu hjálpað inn í þingið 1956. Það geta allir verið sáttir við jafnaðarmenn út af þessum viðskiptum, og satt að segja er ekki hægt að segja annað, en þetta séu góðir menn, sem öllum vilji gera til geðs og öllum vilji hjálpa. Mín reynsla er, — ég hef verið bóndi lengst af ævinni, — að yfirleitt séu það fátækari bændurnir, sem eru bezt liðnir. Þeir eru hjálpsamari við nágrannana. Aftur vilja stærri bændurnir síður gera grannanum greiða.

Afstöðu sjálfstæðismanna er í sjálfu sér erfiðast að skilja. Við álítum norður í Húnavatnssýslu 1. þm. Reykv. vera með gáfuðustu mönnum þjóðarinnar og skörung mikinn og væntum þess vegna mikils af honum. Hann lagði til hér á árunum, að við hefðum einmenningskjördæmi á öllu landinu. Ég hef satt að segja alltaf ásakað Framsfl. fyrir að hafa ekki boðið 1. þm. Reykv. upp á heiðarlegt samstarf í þessu. En þetta var því miður ekki gert. Hitt skal ég svo ekki fullyrða, hve mikill hluti Sjálfstfl. fylgdi þessari stefnu og hvort hún hefði verið framkvæmanleg, þó að Framsókn hefði snúizt af heilum hug í lið með 1. þm. Reykv. að leysa kjördæmamálið á þessum grundvelli. Við vitum allir, að það þarf að gera breyt. á kjördæmaskipuninni, við erum ekki að deila um það, heldur erum við að deila um, hvernig á að framkvæma þá breytingu. 1. þm. Reykv. hefur nú gengið inn á þá lausn á kjördæmamálinu, sem hlýtur að vera í andstöðu við hans skoðanir, því að ég geri ekki ráð fyrir, að hann hafi breytt um skoðun, þannig að hann fari nú eftir línu hv. 3. þm. Reykv. og kommúnista. Það er enginn maður jafnglaður yfir þessari lausn á kjördæmamálinu og hv. 3. þm. Reykv., og það er einfaldlega af því, að hann skilur, að það er ekki hægt að gera kommúnismanum meiri greiða hér á landi, en með þessari kjördæmabreyt. En hann vill vitanlega fara í aðra átt en við.

Ég á erfiðast með að skilja afstöðu sjálfstæðismanna í þessu máli. Vera má, að þar gæti hefnigirni. Það var nú þannig, að þeir unnu lengi og vel saman, hv. 1. þm. S–M., Eysteinn Jónsson, og hv. 1. þm. Reykv. Okkur framsóknarmönnum fannst þeim koma nægilega vel saman. Það reyndist nú ekki vera hætta á ferðinni þar, en svo slitnaði upp úr þessu 1956. Ég hef aldrei kennt sjálfstæðismönnum um þessi stjórnarslit. Mér hefur aldrei dottið það í hug. Þetta gekk allt vel 1953–55 og hefur ef til vill aldrei gengið betur í okkar þjóðfélagi. Þjóðartekjurnar uxu, fólkið var að fá traust á peningunum, þetta gekk prýðilega og ég hef aldrei séð nokkra ástæðu til að vanþakka sjálfstæðismönnum samstarfið við framsóknarmenn þá. Hitt er annað mál, að það er oft svo, þegar stjórnarslit verða, að þá kennir hver öðrum um, og annað það, að við megum ekki taka þessi blaðaskrif of alvarlega, því að blöðin eru skrifuð fyrir flokkana og það þarf eitthvað að skrifa í þessi blöð. Sjálfstæðismenn segja: Það er allt gott, sem gert hefur verið, sjálfstæðismönnum að þakka. — Framsóknarmenn segja það sama. Þetta tek ég ekki alvarlega. Ég hygg því, að hv. 1. þm. Reykv. hafi tekið þetta of alvarlega. Það, sem gerir, að slitnar upp úr stjórnarsamstarfinu er, að það er gert verkfall 1955. Þá hefði ég álitið réttast fyrir framsóknarmenn og sjálfstæðismenn að segja við jafnaðarmenn og kommúnista: Jæja, góðir menn, þið eruð búnir að setja þessa hluti úr skorðum, sem við höfum verið að reyna að hafa í lagi og nú skuluð þið taka við. — Jafnaðarmenn og kommúnistar búa ekki til peninga, það er ekki hægt fyrir neinn mann og sannleikurinn er sá, að kjör verkamanna eru ekkert betri nú, en áður, en þeir gerðu verkfallið 1955. Það má deila um, hvort það var rétt af framsóknarmönnum og sjálfstæðismönnum að láta undan í verkfallinu. Ég skal ekki leggja dóm á það. En það var gert og þar með var stjórnin dauðadæmd. Það var í raun og veru vitleysa af henni að segja ekki strax af sér.

Það var ekki nema mannlegt og eðlilegt, að framsóknarmenn vildu heldur mynda stjórn með, — ja, ég veit ekki, hvort á að segja vinstri eða hægri, — en með jafnaðarmönnum og kommúnistum heldur, en láta sjálfstæðismenn gera það. Eins var með sjálfstæðismenn. Þeir hefðu heldur viljað gera það. Einar Olgeirsson, hv. 3. þm. Reykv., lýsti því yfir hér um daginn, að það væri vinstri stjórn, ef kommúnistar væru í henni, það skipti engu máli, hvort það væru framsóknarmenn eða sjálfstæðismenn. En það er nú þannig með kommúnistana, þeir eru hvorki vinstri né hægri menn, þeir eru bara kommúnistar. Við getum lesið bókina eftir Djilas, þar sem hann talar um hina nýju stétt. Það er bara nýr kapítalismi, sem þeir búa til. Kapítalistar í lýðræðislöndunum eru menn, sem hafa margir hverjir unnið sig upp af dugnaði og manndómi, sumir með klækjum og svikum, eins og gengur. En í kommúnistalöndunum kemst sá lengst, sem er slægastur og ósvífnastur. Vitanlega var Stalin einræðisherra í Rússlandi af því að hann var slægastur. — Kommúnistum um allan heim var skipað að tilbiðja hann eins og guð. Þar áttu fátækir sinn föður. Öllum var hann vondur, enda er hann líklega mesti slátrari í veraldarsögunni, en verstur var hann þó sínum gömlu baráttufélögum, því að hann sendi þá hreinlega til himnaríkis. Og það er sannleikur, hann átti ekki um gott að gera, því að byltingarmaður er byltingarmaður og þeir eru óstýrilátir. Það er ekki gaman að ráða við menn, sem alltaf eru að ala á því að eigi að gera byltingu og aftur byltingu. Þegar á að fara að stjórna þeim, þá eru þeir óþægir. En Stalín kunni ráð við því, hann tók þá úr umferð. Þetta var einfalt. Kommúnistar hirða ekkert um, hvað er rétt eða rangt, heldur hugsa þeir um, hvað er gagnlegt og hvað er ekki gagnlegt fyrir þeirra stefnu. Þetta verðum við alltaf að hafa hugfast.

Ég ætla þá að koma örlítið að meðferð þessa máls. Árið 1942 — menn voru að berjast fyrir kjördæmabreytingunni þá — lýsti Ólafur Thors því yfir, að Sjálfstfl. gengi aldrei að þeirri lausn á kjördæmamálinu að hafa fáein stór kjördæmi. Sama gerði Jón á Reynistað á fundi norður í Skagafirði og Pétur Ottesen gerði það einnig. Menn skipta um skoðun. Það er eins með mennina og vindáttirnar, þær geta breytzt skyndilega.

Ég get ekki dæmt um, hvaða málamiðlunarvegur hefur verið farinn í þessu máli, en lausnin varð þessi, sem nú liggur fyrir, að það á að leggja niður 27 kjördæmi og taka upp 7 í þeirra stað. Formaður Sjálfstfl. talaði fyrir þessu máli og honum fórust orð á þá leið, að tryggingin fyrir því, að þetta mál næði fram að ganga, væri flutningsmennirnir, það væri ákveðið mál. Hann sagðist vilja láta rödd sveitanna heyrast og svo voru þrír þingbændur Sjálfstfl. sendir upp í ræðustólinn til þess að túlka þetta mál. Einn þeirra, þm. A-Húnv., sagði, að þetta væri afgert mál, það yrði ekki kosið um þetta mál núna á þessu vori vegna þess að það væri útkljáð mál, þetta yrði gert. Í raun og veru var þetta því afgert mál, eftir því sem þessir menn sögðu, áður en gengið var til kosninganna. Og þm. A-Húnv. lagði sérstaka áherzlu á það á fundum, að þetta væri afgert mál og um þetta væri alls ekki kosið. Hins vegar benti hann á það, að ef Framsfl. kæmist í hreinan meiri hluta, mundi hann mynda stjórn. Þess vegna mættu menn ekki kjósa eftir þessu máli, heldur yrðu þeir að kjósa eftir pólitískum línum. Ég veit ekki, hvernig þetta hefur verið túlkað í öðrum héruðum, en þannig var þetta túlkað hjá okkur. Og það var fjöldi af sjálfstæðisbændum, sem sögðu við mig: Ég er á móti þessu máli, en ég kýs samt Jón Pálmason. — Í 11 kjördæmum úti um land er hreinn meiri hluti á móti þessu máli. Í 9 kjördæmum get ég búizt við að það sé meiri hluti á móti þessu, þó að Framsfl. hafi þar ekki hreinan meiri hluta. Það eru margir óánægðir með þessa lausn á málinu í hinum flokkunum, svo að ég hygg, að það sé ekki ofmælt, að það séu 20 kjördæmi, þar sem meiri hluti er á móti þessu máli. Um kaupstaðakjördæmin skal ég ekki fullyrða. Þar virðast pólitísku línurnar algerlega hafa ráðið, en ekki afstaðan til kjördæmamálsins. Það er dálítið stór hlutur fyrir flokk eins og Sjálfstfl., sem hefur haft jafnmikið fylgi og að sumu leyti óskiljanlega mikið, að gera svona hlut á móti vilja fólksins í dreifbýlinu og án þess að spyrja það um það, því að það var grandvart, að nokkur einasta rödd hefði heyrzt úr þessum kjördæmum um það, að þeir óskuðu eftir þessari breytingu. Þetta var algerlega gert hér með samningum á milli flokka. Það er vafasamt, hvort hér er rétt að farið. Ég hygg, að kosningarnar síðustu gefi engan veginn rétta mynd af því, hvað þessi dreifðu kjördæmi úti um landið vilja í þessu efni. Það hefur verið samið um þetta á milli flokkanna án þess að leita til fólksins. Það hefur verið slegið á þá strengi í „agitasjóninni“, að þetta væri afgert mál, nú ætti bara að kjósa um flokka og málefni, en ekki um þetta mál. A.m.k. mun það víða hafa verið gert. Það er komið, sem komið er. Ég býst við, að þetta mál verði leyst á þessum grundvelli. Vera má, að það sé að einhverju leyti klaufaskapur Framsfl. að hafa ekki getað leyst það á annan hátt, en um það þýðir ekki að sakast héðan af.

Ef við hefðum breytt Reykjavík í einmenningskjördæmi, þá má vel vera, að Sjálfstfl. hefði fengið alla þm. fyrst, en það hefði vitanlega breytzt, því að það er yfirleitt reglan, að minni flokkarnir fara, þegar frá líður, að sameina sig á móti þeim sterkasta. Það er engin hætta á, að það hefði orðið lengi. En ef við breyttum landinu í einmenningskjördæmi, þá ættum við víst að fá sterka stjórn og sterkt þingræði og kommúnisminn mundi deyja út að mestu leyti. Aðstaða jafnaðarmanna mundi breytast þannig, að Framsfl. mundi annaðhvort styðja þá í kaupstöðunum eða flokkarnir mundu renna saman. Og ég vildi benda jafnaðarmönnum á það, að það er að sumu leyti betra að vera ráðsmaður á höfuðbóli, heldur en hokra á rýru býli og vanta bæði hey og eldsneyti á hverju vori.

Það var fyrir mér eins og öðrum framsóknarmönnum 1956, að við gerðum ráð fyrir áframhaldandi samstarfi og jafnvel algerri samstöðu í framtíðinni milli þessara flokka og þeir yrðu þá að einum flokki. Hins vegar var ég aldrei hrifinn af þessu bandalagi, eins og það var úr garði gert, vegna þess að ég álít, að annaðhvort hefðu flokkarnir alveg átt að sameinast eða mynda takmarkaðri samstöðu, en þeir gerðu. Það var alveg ástæðulaust að vinna saman í öllum kjördæmunum, eins og gert var.

Þetta kjördæmamál verður nú leyst eins og það liggur fyrir og það er ekki um það að sakast. En við framsóknarmenn höfum tekið þá afstöðu að greiða atkvæði á móti því. Við gerum það ekki eingöngu af því, að við álitum það skaðlegt fyrir Framsfl., því að það mun nú vera farið að verða ljóst þessum flokkum, að það skaðar Framsfl. ekki sem flokk sérstaklega. Það hefur verið mjög hamrað á því, að það mundi eyðileggja Framsfl. En það er fjarri því. Ef úrslit kosninganna yrðu eins og þau eru núna, þá mundum við fá lítið færri þingmenn en við höfum og fjölgaði þó um tvo hjá okkur við þessar kosningar. Og það verður okkur hagstætt, framsóknarmönnum, við þessa kjördæmabreytingu, frá flokkslegu sjónarmiði séð, að nú fáum við aðstöðu til að vinna okkur fylgi bæði í Reykjavík og Gullbringu- og Kjósarsýslu. Við eigum þar atkvæðisaukningu alveg vísa, því að nú eigum við tryggt að koma að manni bæði í Reykjavík og sennilega líka í Gullbringu- og Kjósarsýslu og það er fyrsta skilyrðið til þess að geta unnið þingfylgi. Þess vegna hygg ég, að flokkslega séð munum við ekki tapa. Við greiðum atkvæði á móti þessari kjördæmaskipun af því, að við vitum, að hún muni veikja þingræðið í þessu landi, skapa jarðveg fyrir fleiri flokka og veikara stjórnmálakerfi og muni þess vegna veikja okkar þingræðisskipulag. Við mótmælum því, að það sé gengið fram hjá vilja fólksins og það séu lögð niður kjördæmin, þrjú og fjögur kjördæmi sameinuð í eitt, án þess að fólkið sé spurt um þetta og án þess að fólkið vilji þetta. Við mótmælum þessu. Hitt er annað mál, að þingræðið getur hvergi þrifizt eða verið í lagi, nema flokkarnir vinni saman af heilindum og drengskap. Það er undirstaða þingræðisins. Undirstaða þingræðisins eru viturleg lög og drengilegt samstarf milli flokka. Ef við brjótum þessi boðorð, er þingræðið í voða. Ég álít því, að í framtíðinni verði flokkarnir, hvað sem þessu máli líður, að vinna heiðarlega saman, leysa þau verkefni, sem fyrir liggja. Við erum fátæk þjóð og fámenn. Auðlindir eigum við takmarkaðar. Það eina sem við getum gert og þurfum að gera, það er að stjórna landi okkar vel og viturlega. Við verðum að vera hlutlausir í deilum stórveldanna og við verðum að hafa fjárhag okkar þannig, að við séum efnalega sjálfstæð. Ef við getum ekki gert þetta, getum við ekki virt okkur sjálfir og aðrir geta það ekki. Þá er okkar frelsi og framtíð í voða.