12.08.1959
Sameinað þing: 10. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 548 í B-deild Alþingistíðinda. (266)
14. mál, skattur á stóreignir
Ólafur Thors:
Herra forseti. Ég skal ekki blanda mér í þessar umr. að öðru leyti en því, að ég tel fullt tilefni til að lýsa því yfir, að þessi málsmeðferð er að sjálfsögðu algerlega óviðkomandi Sjálfstfl., og ég tel það leiðinlegt og mjög vítavert, að hv. 1. þm. Skagf. (ÓlJ), sem kemur hér upp sem lagaprófessor, fullur af vandlætingu, leggur sýnilega meiri áherzlu á að leggja sökina á einn flokk fremur öðrum, heldur en hitt, að færa rök að því, að sjálft atferlið sé, eins og hann telur, vítavert eða ekki með réttum hætti. Ég hefði metið miklu meira hans ræðu, ef til grundvallar virtist liggja einhver tilfinning fyrir því, að Íslendingar hefðu orðið sér til vansæmdar út á við, heldur en þegar svo mjög blandast inn í það hin tilhneigingin, að þetta vítaverða athæfi að hans dómi sé sök Sjálfstfl. Ég veit ekki, hvað margir milljónamæringar eru í Framsfl., en það má hafa mín orð fyrir því, að þeir eru margir, leyndir og ljósir, ljósir og leyndir, hvort tveggja. Og hvað hver á í pokahorninu af þessum milljónum, sem þarna er verið að rífast um, skal ég láta liggja milli hluta, en ég viti það, að maður, sem talar í nafni föðurlandsástar og af virðingu fyrir íslenzkum málstað og áliti Íslendinga út á við, skuli leggja á það megináherzlu að reyna að sakfella Sjálfstfl. fyrir þetta atferli, enda þótt hann viti vel, að hans eigin flokkur á þar jafna sök og Sjálfstfl., einfaldlega vegna þess, að hvorugur flokkanna á neina aðild að málinu.