04.08.1959
Neðri deild: 9. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 153 í B-deild Alþingistíðinda. (27)

1. mál, stjórnarskipunarlög

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Þeir þm. Framsóknar ýmsir, hafa nú stundað eintal sálarinnar hér í þingsölunum og ég tel rétt, að það sé tekið til dálítillar meðferðar, sem þeir hafa verið að segja, ekki sízt af því, að þar kennir allmargra grasa og sumra ólíkra. Það má eiginlega segja, að flestir hinir nýju þm. Framsóknar hafi haldið hér sínar jómfrúrræður nú. Við sjáum hið nýja andlit Framsóknar eftir þann kosningasigur, sem hún vann flokkslega séð og þetta andlit er það, sem þeir gömlu Rómverjar kölluðu Janusar-andlit. Það virðast vera tvö andlit, sem horfa sitt í hvora áttina og þegar farið er að athuga dálítið nánar, þá verður það ósköp keimlíkt því gamla, sem maður þekkti fyrr.

Ég skal byrja á því að taka ofur lítið af því, sem hv. þm. V-Húnv. (SkG) var að ræða um áðan. Hann, sem sjálfur er kaupfélagsstjóri, virtist eiga bágt með að skilja það, af hverju ég hafði sérstaklega tekið kaupfélagsstjóra sem dæmi, þegar ég var að tala um misréttið, sem Framsfl. hefði notið í kosningalögum og stjórnarskrá fram að þessu. Það er bezt, að ég rifji það upp fyrir honum, hvernig það er. Hér á síðasta Alþingi sátu átta þm. Alþb. t.d., þeir höfðu tæp 16 þús. atkvæði á bak við sig. Hér á Alþingi sátu þá 17 þm. Framsfl., þeir höfðu 13 þús. atkvæði á bak við sig. Það er nokkurn veginn svo, að það þurfti þrjá af kjósendum Alþb., sem mest er verkafólk, þrjá verkamenn á móti hverjum einum af kjósendum Framsfl. Og því tók ég kaupfélagsstjórana, að þeir eru allmargir fylgjandi Framsfl. og taldir manna voldugastir í þeim flokki, þannig að mér þótti þess vegna betur hæfa að taka þann samanburð, að það þyrfti þrjá verkamenn hvað atkv. snertir til þess að jafnast á við einn kaupfélagsstjóra. Þá átti það við aðstöðuna, eins og hún er vegna forréttinda þeirra, sem Framsókn hefur notað sér fram að þessu. Það, að ég nefndi ekki milljónamæringana, var vegna þess, að þeir eru fyrst og fremst hér í Reykjavík og hafa sama atkvæðisrétt og verkamenn, en hins vegar hafa þeir sín miklu áhrif í gegnum þann auð, gegnum þau atvinnutæki og gegnum það mikla áróðurstæki, sem þeir ráða yfir í valdi síns auðs.

En það er annar ókostur, sem er samfara öllu borgaralegu lýðræði og verður ekki tjáð um það í sambandi við breytingu á stjórnarskrá eða að reyna að koma á réttum leikreglum í því lýðræði. Þess vegna þýðir ekkert fyrir hv. þm, V-Húnv. að reyna neitt að snúa út úr þessu né heldur hinu, að það sé með þessu verið að veitast að Framsfl. Það er algerlega rangt, að þeim kjördæmabreytingum, sem orðið hafa á Íslandi á síðustu 30 árum, hafi verið stefnt gegn Framsfl. Þeim kjördæmabreytingum hefur verið stefnt gegn forréttindunum, hverjir svo sem það eru, sem njóta þeirra. Hefði Sjálfstfl. náð meiri hluta hér á Alþingi með 38-42% atkvæða hjá þjóðinni, þá hefði svona kjördæmabreytingu líka verið stefnt gegn honum gegn hverjum þeim, sem slíkra forréttinda hefði notið. Kjördæmabreytingunni er stefnt gegn forréttindunum. En vegna þess að Framsfl. hefur sérstaklega talið sig þurfa að lifa sem forréttindaflokk, þá kallar hann, að þessum lýðréttindaákvæðum sé stefnt gegn sér, af því að hann er forréttindaflokkurinn í þessu efni. Þarna verður að gera greinarmun á.

Þá talaði hv. þm. V-Húnv. um það, að verkalýðsflokkarnir hefðu þrisvar sinnum á 28 árum gert samkomulag við Sjálfstfl. um breytingu á kjördæmaskipulagi. Rétt er það. Það var einmitt það, sem gerðist, þegar vinstri stj. hóf sína göngu eða réttara sagt þegar hafið var að semja um þá stjórn, að við hv. 1. landsk. (HV) og ég sögðum það við Framsfl., að nú skyldi hann reyna að sýna það í verki, að hann vildi eitthvert tillit taka til lýðréttinda og vera eins og vinstri flokkur og sýna það, að hann væri reiðubúinn til þess að breyta stjórnarskránni með verkalýðsflokkunum, þannig að annað eins svindl og Framsfl. beitti sér fyrir í Hræðslubandalagskosningunum gæti ekki endurtekið sig. Og hvað sagði Framsfl.? Talaði hann um eitthvert hrófatildur þá eða eitthvað slíkt? Nei, hann talaði um, að það væri alveg sjálfsagt að breyta svona slæmri kjördæmaskipun, það væri búið að sýna sig, að svona kjördæmaskipun gæti ekki gengið áfram. Og það voru einmitt sett loforð í samning vinstri stjórnarinnar, að í stjórnartíð vinstri stjórnarinnar skyldi vera samið um þetta, samið um breytingu á stjórnarskrá og kosningalögunum. Af hverju sögðum við, við forustumenn Framsfl., að þeir yrðu nú að skilja þetta? Jú, meiningin var, að það átti að reyna að taka höndum saman, þessir svokölluðu vinstri flokkar um vinstri stefnu og við vissum alltaf, að Framsfl. hafði sýnt sitt íhalds- og afturhaldseðli áþreifanlega í sambandi við kjördæmamálið, þannig að það reyndi á, hvort hann gæti eitthvert tillit lært að taka til verkalýðsflokkanna. Þess vegna lögðum við áherzlu á þetta við hann.

Framsfl. fékk síðan sitt tækifæri til þess að standa við þennan samning, tækifæri til þess að búa til eitthvað, sem væri meira en hrófatildur, búa til hið góða og endingargóða, endurskoðun á stjórnarskránni. Og Framsfl, hafði þetta tækifæri, þ. á m. hv. þm. V-Húnv. Hann hafði tækifæri til þess að sýna, hvernig hann ætlaði að byggja upp vel grundvallaða breytingu á stjórnarskránni, sem gæti enzt alla 20. öldina, svo að það væri ekki neitt hrófatildur, sem þeir væru að hrúga upp. Og hvernig smíðaði hv. þm. V-Húnv.? Einu sinni talaði hann um, að fyrst væri spýta og svo væri spýta í kross og svona hélt hann áfram. Hvernig fór með hann? Byrjaði hann nokkurn tíma á nokkurri spýtunni? Lagði hann nokkra spýtu niður? Reyndi hann einu sinni að tálga nokkra þeirra til? Nei, hann snerti aldrei á því, ekki einu sinni að reyna að búa til hrófatildur, hvað þá meira. Það er Framsfl., sem er búinn að undirgangast það í sinni stjórnartíð að ætla að búa til vafalaust góða og varanlega lýðræðislega endurbót á stjórnarskránni. Hann sveikst um það. Hann sleppti því alveg. Þessi flokkur, sem þóttist hafa þennan afskaplega áhuga fyrir að varðveita réttindi dreifbýlisins, ég tala nú ekki um að vernda lýðræðið, blessað lýðræðið, lýðréttindin, mannréttindin, jafnréttið og hvað það heitir. Nei, hann steingleymdi því öllu saman, snerti ekki á því, ekki einu sinni hv. þm. V-Húnv. Hvað gerði hann? Hvað var að? Fann kannske Framsfl., þegar hann fór að hugsa um endurskoðunina, að öll endurskoðunin hefði kannske að einhverju leyti dregið úr forréttindum hans, og hætti við það þess vegna? Hví byggði Framsókn ekki betra, á meðan hún hafði stjórnaraðstöðuna til þess og var samningsbundin til þess að gera það í sinni stjórnartíð? Hv. þm. V-Húnv. segir, að það hafi reynzt endingarlítið, sem verkalýðsflokkarnir og Sjálfstfl. hafi byggt upp hvað stjórnarskrána snertir, að þeir skuli hafa orðið að gera þetta í þrjú skipti í 28 ár. Af hverju eru þeir að gera þetta í þrjú skipti í 28 ár? Af hverju var ekki hægt að gera t.d. slíka breytingu eins og nú er gerð 1931? Árið 1931 sýndi það sig einfaldlega, að þeir, sem forréttindin höfðu, þó að þeir væru ekki nema þriðjungur hjá þjóðinni, höfðu meiri hluta á Alþingi með því kjördæmaskipulagi, sem þá var. Það hefur orðið að taka þetta smátt og smátt, vegna þess að forréttindin voru svo mikil, sem viss flokkur eða vissir flokkar nutu, að það var ekki hægt að komast lengra í lýðræðisáttina, en þetta. Við lögðum það til 1942, ég fyrir mitt leyti í stjórnarskrárnefnd þessarar hv. d. þá, að það spor, sem stigið er núna, væri stigið þá. Það veit hv. þm. V-Húnv. jafnvel og ég, að það var engin von til þess að fá það gert þá.

Það er rétt eins og þegar menn á nítjándu öldinni hafa víða í löndum Evrópu verið að berjast á móti sérréttindum aðalsins. Menn hafa orðið að berjast langa lengi vegna þess, að forréttindi voru það mikil, að það tókst ekki, svo framarlega sem breyta átti þingræðislegum atriðum, að komast lengra áfram, en mjakast þetta hægt og hægt. England sýnir bezt söguna um það. Það er ekki fyrr, en árið 1865, sem verkamönnum var unnt að fá kosningarrétt í Englandi og lá við byltingu í Englandi 1932, þegar var verið að útrýma þeim „rotten boroughs“, þeim úreltu kjörborgum, sem þar voru, þessum bæjum, sem voru horfnir, sumir þannig, að það var ekki eftir nema einn maður í þeim. Það kostaði langa baráttu oft og tíðum að koma lýðréttindunum í gegn þannig, þegar við harðvítugar forréttindastéttir eða forréttindaflokka var að eiga. Þess vegna getur þetta stundum tekið langan tíma. En það þarf ekki að ásaka okkur um það, sem að þessu höfum unnið. Við höfum á hverjum tíma ekki komizt lengra í þessa átt. Og þeim ber sízt að ávíta þetta, sem þykir þetta allt of langt gengið núna.

Þá talaði hv. þm. V-Húnv. um, hvað væri vinstri og hvað væri hægri og hvers konar samvinna það væri, ef t.d. Sjálfstfl. og verkalýðsflokkarnir ynnu saman og hins vegar ef Framsfl. og verkalýðsflokkarnir ynnu saman. Jú, ég sagði það, að þessi stjórn, sem verkalýðsflokkarnir mundu vera í, væri stjórn, þar sem þeim mundu knýja fram meiri vinstri pólitík, en hér yrði knúin fram hjá nokkurri stjórn á Íslandi. Það er rétt að halda því orðatiltæki út af fyrir sig, það er komið inn í málið og það gerir ekkert til, þó að því sé haldið. Þegar Framsfl. hefur verið með verkalýðsflokkunum í stjórn, hefur það verið kallað vinstri stjórn. Þegar verkalýðsflokkarnir voru með Sjálfstfl. í stjórn, þá var það kallað nýsköpunarstjórn. Þessar stjórnir hafa hvor um sig verið róttækar, hvor á sínu sviði, en á mismunandi sviðum. Nýsköpunarstjórnin var fyrst og fremst svo róttæk á því sviði að stofna til stórra aðgerða í atvinnulífinu. Vinstri stjórnin átti eftir samningunum að vera róttækari, en varð á ýmsum þeim sviðum, þar sem átti að ganga á móti hagsmunum auðmannastéttarinnar. Það var minna um það vegna andspyrnu Framsóknar, eins og ég skal koma inn á, á eftir, heldur en ég hefði viljað. Hins vegar tókst okkur að knýja það fram, að það væri þó nokkuð gert á sviði athafnalífsins, þó að það væri ekki nærri eins mikið og við vildum. En þó er óhætt að minna hv. þm. V-Húnv. á, að það er meira að segja hægt að semja við Sjálfstfl. um mál, sem almennt eru talin hrein vinstri mál, við skulum segja eins og t.d. endurbætur á tryggingalöggjöfinni, þegar ekki hefur verið hægt að semja við Framsfl. um þau. Í nýsköpunarstjórninni settum við í gegn stórkostlegar breytingar á tryggingalöggjöfinni og þó að Framsókn væri þá í stjórnarandstöðu, var hún meira að segja andvíg þeim alþýðutryggingum. Þegar við sömdum við Framsókn um vinstri stjórn, var það tekið fram strax í upphafi, þegar við fórum fram á breytingar á þessu sviði, að þær fengjust ekki fram.

Þá hélt hv. þm. A-Húnv. hér mjög skemmtilega ræðu. Það er í raun og veru ákaflega ánægjulegt fyrir okkur að vera búin að fá svona hreinskilinn framsóknaríhaldsmann inn í þingið. Það er hægt að segja, að það er miklu betra að tala við Framsókn, þegar hún beitir báðum hornunum, það er miklu ánægjulegra að fá að taka í þau bæði í einu. Hv. þm. A- Húnv. lýsti því hér yfir, að Framsfl. gæti ekki átt neina samleið með kommúnistum. Það er ákaflega skemmtilegt að fá þessar yfirlýsingar frá þessum nýkjörnu framsóknarþingmönnum. Það þýðir líklega, að þetta á að vera stefnan, sem fólst í kosningasigrinum og hann fór ekki heldur dult með það. Ég veit ekki, hvort framsóknarforustunni hefur tekizt að „sensorera“ hans ræðu áður, en a.m.k. fékk framsóknarforustan ekkert af þeim hrósyrðum í henni, sem hann var óspar á, á sínum fundum í Austur- Húnavatnssýslu. Hann fór hins vegar ekki dult með það, að Framsfl., sem ekki gæti átt samleið með þeim vondu mönnum, kommúnistum, það væri svo sem alveg auðséð, hvert sá flokkur ætti að snúa sér. Jú, flokkarnir, sem áttu að vinna saman eftir hans yfirlýsingu, voru Sjálfstfl. og Framsfl. og hver var stefnan, sem þeir áttu að stefna að? Við eigum að stefna að einmenningskjördæmum, lýsti hv. þm. A-Húnv. yfir. Það var mjög skýr og greinileg stefna, sem raunar síðasta flokksþing Framsóknar mótaði alveg og sumir framsóknarmenn jafnvel hér á Alþingi hafa verið eitthvað feimnir við síðan. Það er ákaflega gott að fá einhvern ófeiminn framsóknarmann. Það er mjög heppilegt, að einmitt þessi rödd skuli heyrast hér í þingsölunum, einmitt undir þessum umræðum.

Hann lýsti því hér yfir, hv. þm. A-Húnv., að hann vildi og hefði viljað heiðarlegt samstarf við 1. þm. Reykv. (BBen) um einmenningskjördæmi á þeim tíma, sem þau stóðu til boða, fyrir eitthvað tæpum áratug, einmenningskjördæmi alls staðar, líka hérna í Reykjavík. Og hv. þm. A-Húnv., sem túlkar hina nýju rödd Framsóknar hér á Alþingi og vafalaust það, sem felst í hennar kosningasigri, lýsti því yfir, að þetta væri einmitt það, sem hann hefði gjarnan viljað. M.ö.o. hér kemur hin nýja stefna Framsóknar, einmitt út úr einmenningskjördæmunum, einmitt út úr dreifbýlinu og tilkynnir, að Framsfl. býður upp á samstarf við Sjálfstfl. — og fyrst og fremst um hvað? Um að koma á einmenningskjördæmum, eins og flokksþing Framsfl. var búið að samþykkja, mynda stjórn með Sjálfstfl. um að láta þessa verkalýðsflokka svokölluðu ekki vera að ráða neinu eða haldast uppi að gera verkföll og annað slíkt. M.ö.o.: þessi hv. þm. Framsfl., þm. A-Húnv., lýsir því hér yfir, að það, sem Framsfl. vilji, sé það, sem einmitt Framsfl. og Tíminn hefur undanfarna daga verið að ráðast harðvitugast á okkur fyrir að vera að gera, að hafa samstarf við Sjálfstfl. um að breyta kjördæmaskipuninni. Munurinn er bara sá, að Framsfl. samkvæmt yfirlýsingu hins nýja spámanns hans, hv. þm. A-Húnv., lýsir því yfir, að hann hafi viljað og vilji samvinnu við Sjálfstfl. um að koma á tómum einmenningskjördæmum á Íslandi, þá muni það vera þessir tveir flokkar, sem skipta landinu og þjóðinni á milli sín. Þar höfum við það. Þetta er það, sem við sögðum í vor og þetta er það, sem við segjum enn, að það hefur vofað yfir. Þetta er það, sem við segjum, að framsóknar íhaldið og Reykjavíkur íhaldið, sem sagt Framsfl. og Sjálfstfl., hafi ætlað sér að semja um, ef þeir hefðu orðið sammála um það á undanförnum áratug.

Hvað er það þá, sem við höfum gert, þessir verkalýðsflokkar, sem þessir nýju foringjar Framsóknar eru að ráðast á okkur fyrir að hafa tekið saman við Sjálfstfl. um? Hvað er það, sem við erum að gera? Við höfum verið að forða verkalýðshreyfingunni í landinu frá því, að það yrðu innleidd einmenningskjördæmi alls staðar á landinu. Við þurfum ekki frekar vitnanna við. Framsókn var eitthvað feimin í vor við að tala um samþykktirnar sínar frá flokksþinginu og hampaði því mikið:

Ja, það er nú eiginlega ekkert að marka þessa samþykkt. — Sumir sögðu meira að segja bak við tjöldin: Þetta var nú eiginlega alveg á óvart, að þessi samþykkt fór í gegn. Það voru einhverjir menn utan af landi, sem voru með þetta. Það voru víst bara dreifbýlismenn. — Og Framsókn vildi gera sem allra minnst úr því, að þessir dreifbýlismenn hafi nokkurn skapaðan hlut að segja. En nú hafa þeir það. Nú hefur Framsókn unnið mikinn sigur í kosningum. Nú kemur einn af þeim og segist vera þessi góði fulltrúi dreifbýlisins og segir: Auðvitað áttum við að taka höndum saman við Sjálfstfl. um að koma á eintómum einmenningskjördæmum á Íslandi. — Og það lengsta, sem hann komst í að segja framsóknarforustunni til syndanna fyrir, hvernig hún hefði hagað sér í þessum málum, það var, að hann sagði: Ja, þetta er náttúrlega einhver klaufaskapur Framsóknar, að semja ekki. — Já og við hvern? Það var svo sem alveg auðheyrt. Það var svo sem alveg auðheyrt á honum, að Framsókn átti ekki að semja á því 21/2 ári, sem við vorum með henni í vinstri stjórn og höfðum undirskrifaðan samning um að semja við okkur um að breyta kjördæmaskipulaginu í lýðræðislega átt. Það var ekki þannig, sem átti að semja, eftir því sem þessi nýi foringi Framsóknar lýsti yfir. Það var ekki við vinstri flokkana, við verkalýðsflokkana, sem átti að semja út af kjördæmaskipulaginu. Nei, það átti að semja við Sjálfstfl., það átti að semja við hann löngu fyrr og það var mesta vitleysan að hafa ekki samið í tíma. Þetta er klaufaskapurinn hjá framsóknarforustunni, að hafa ekki kunnað að semja við Sjálfstfl. í tíma um einmenningskjördæmi á Íslandi. Því segi ég það: Það er alltaf gott að eiga eina hreinskilna sál, þegar þm. Framsóknar annars skara hér hver fram úr öðrum í hræsninni og lýðskruminu.

Ég skal hins vegar upplýsa hv. þm. A-Húnv., af því að hann er nýr af nálinni hérna í þingsölunum um, í hverju þessi klaufaskapur Framsóknar fólst, að þeir skyldu ekki semja. Framsfl. vissi aldrei, hvort hann átti að semja til hægri eða vinstri. Hann vissi aldrei, hvort hann átti að semja við Sjálfstfl. eða verkalýðsflokkana. Hann stóð og tvísteig í sömu sporunum allan tímann, öll þessi tíu ár og núna seinast þau 21/2 ár, sem hann var í vinstri stjórninni og var búinn að undirgangast að leysa þetta mál. Hann sat fastur, vissi ekkert, hvert hann átti að fara, vissi ekki, í hvorn fótinn, hægri eða vinstri, hann átti að stíga og komst þess vegna aldrei neitt úr sporunum. Ég gæti bezt trúað, að þegar hv. þm. A-Húnv. færi að taka við forustunni í Framsókn, þá yrði þó a.m.k. komizt úr sporunum. En það er alveg auðséð, hvert verður haldið. Það verður unnið með íhaldinu.

Við þurfum þess vegna ekki lengur að efast um það, hvað hafi vofað yfir verkalýðshreyfingunni í þessum efnum. Það vofði yfir henni, að þau réttindi, þau lýðréttindi, sem hún hefur verið að berjast fyrir, það jafnrétti í kosningum, sem hún hefur viljað fá, það væri meira eða minna afnumið með því að koma á tómum einmenningskjördæmum í landinu og hv. þm. A-Húnv. vildi meina, að í einmenningskjördæmunum fælist öll vörnin gegn kommúnismanum og gegn öllu illu. Það er búið að hrekja það svo oft, að ég ætla ekki að fara út í það, enda er ég hræddur um, að hann verði að gá að sér að tala svona voðalega um kommúnismann eins og hann gerir, því að þegar maður hlustar á suma aðra af hans samflokksmönnum hér á Alþ., þá gæti maður frekar trúað, að þeir ætluðu að taka kommúnismann upp á sína arma og fara að slá okkur hina út, sem höfum verið að bjástra við þetta undanfarið. Þannig er nú róttæknin hjá sumum af þeim, sem tala.

Hann sá náttúrlega eins og alltaf, hv. þm. A-Húnv., í öllum sínum ræðum ekkert annað, en þessa voðalegu upplausn, sem biði, ef áhrif Alþb. og annarra slíkra yrðu eitthvað meiri, en verið hefur. Þeir vilja upplausn og eyðileggingu þjóðfélagsins, sagði hann hér áðan orðrétt. Þessi nákvæmlega sömu orð voru sögð af hv. 1. þm. S-M., formanni þingflokks Framsfl., 1944, þegar nýsköpunarhugmyndirnar voru ræddar hér á Alþ. Og það var slitið þeim samningum, sem fjórir flokkar þá sátu að um myndun ríkisstjórnar, vegna þess, að þessi forustumaður Framsóknar hélt því fram, að það, sem við vildum, Sósíalistaflokkurinn þá, væri ekkert annað en upplausn og eyðilegging þjóðfélagsins. Allar hugmyndirnar um að kaupa 30 togara eða annað slíkt, allt átti þetta eingöngu að vera til að koma á upplausn í þjóðfélaginu. M.ö.o.: það er ekki til neins að bjóða okkur upp á það, þegar menn koma hér nýir af nálinni með 15 ára gömul slagorð, sem eru búin að verða sér eins til skammar og þessi slagorð Framsóknar, sem þá var komið með. Það er betra fyrir menn að koma með eitthvað nýtt.

Hv. þm. A-Húnv. fór ekki heldur dult með það, hvaða tímabil það væri, sem honum virkilega líkaði, þannig ætti það nú að vera. Jú, það var tímabilið 1953–55. Hv. þm. A-Húnv. sagði orðrétt: Þá gekk vel. — Já, þá gekk vel. Það er tímabilið, sem er fyrirmynd. Það er tímabilið, sem á að koma á aftur. Það er tímabilið, sem bíður okkar eftir næstu kosningar. Það verður kannske seinna tækifæri til þess að athuga ofur lítið, hvernig það tímabil var. En það er nokkurn veginn ljóst, að við höfum fengið einmitt í þessari ræðu — þessari mjög svo hreinskilnu og skemmtilegu ræðu ágæta lýsingu á því, hvað það er, sem bíður þjóðarinnar og biður alþýðunnar og alveg sérstaklega bíður dreifbýlisins undir þeirri nýju samstjórn Sjálfstfl. og Framsóknar, sem hv. þm. A-Húnv. boðar, þegar allt gengi vel, þegar vinnan á Keflavíkurflugvelli gengi af fullum krafti og bændurnir, stórbændurnir og smábændurnir, fengju sínar ávísanir til helminga á vinnuna suður á Keflavíkurflugvelli. Þá gengi vel. Þá liði dreifbýlinu vel. Þá þyrfti ekki að kvíða. Þá gætu menn skilið eftir húskofana sína úti á landi og flutt suður í Keflavík, setzt að kannske hjá Regni, kannske hjá Almenna byggingarfélaginu. Þá gengi vel.

Jú, við sjáum alveg, hvert stefnir í þessu og það er ákaflega ánægjulegt að fá svona góðan liðsmann úr röðum Framsóknar til þess að afhjúpa það lýðskrum, sem Framsókn hefur verið með hér í þinginu undanfarið um, að hún væri jafnvel einhver sérstakur vinstri flokkur, sem alveg sérstaklega dreifbýlið ætti að mega treysta og allir ættu að mega treysta til þess að hafa aldrei samvinnu við ótætis Sjálfstæðisflokkinn.

Mig langar svo til að víkja nokkrum orðum að hv. þm. N-Þ. Hann er víst því miður ekki inni núna. Það er kannske bezt, að ég geymi það þá ofur lítið.

Hv. 7. þm. Reykv. flutti hér hins vegar mjög skörulega ræðu og í henni er ýmislegt, sem er eðlilegt fyrir okkur fulltrúa Alþb. að svara, ekki hvað sízt vegna þess, að þar andaði að ýmsu leyti svipaðri stefnu eins og þeirri, sem við viljum sjálfir berjast fyrir, en hvort sú stefna á heima í Framsfl., það er aftur á móti annað mál.

Hv. 7. þm. Reykv. sagði, að með þeirri stjórnarskrá, sem hér væri verið að setja, væri verið að veikja vald dreifbýlisins. Þegar við notum þetta orð, dreifbýli, þá meinum við kannske ekki alltaf það sama. Ég vil taka það fram, að þegar ég tala um dreifbýlið, þá meina ég eiginlega þá þrjá landsfjórðunga, þar sem byggðin hefur verið að dragast saman á undanförnum áratugum eða staðið í stað. Ég held, að það sé óhætt að beita þeirri notkun, þeirri merkingu á orðinu. Þó að það hafi jafnvel kannske áður verið notað bara yfir sveitirnar, þá er það að mörgu leyti eðlilegt með tilliti til þess, að nú er svo komið, að helmingur Íslendinga er saman safnaður í Reykjavík og Gullbringu- og Kjósarsýslu að heita má og hinn helmingurinn dreifður á alla þessa þrjá landsfjórðunga og þeir hafa raunverulega að miklu leyti þannig, vissa samstöðu gagnvart því stóra, mikla þéttbýli hér á suðvesturhorni landsins.

Ég vil taka það fram, að ég álít þetta, sem hann segir, vera rangt. Með þessari stjórnarskrárbreytingu er ekki verið að veikja vald þessa dreifbýlis. Dreifbýlið verður — í þessari merkingu, sem ég nota það orð — sterkara fyrir þessa nýju kjördæmaskipun, ekki vegna þess, að Framsfl. verði sterkari, það verður að veltast eftir því, hvernig gengur um fylgi og traust flokkanna, heldur vegna þess, að alþýðan, starfandi stéttirnar í þessu dreifbýli, þær sameinast betur, þær sameinast í stærri heildir og þar með til stærri átaka, alveg sérstaklega á sviði uppbyggingarinnar, á sviði nýsköpunarinnar, þær sameinast um að breyta þannig grundvelli síns lífs, atvinnugrundvelli síns lífs, að það verði betra að lifa í þessu dreifbýli. Einmitt einmenningskjördæmin og tvímenningskjördæmin, þessi litlu kjördæmi, hafa tvístrað alþýðunni úti um landið, en ekki sameinað hana. Þau hafa gert henni erfiðara fyrir að leggja í þau stóru átök, sem eru grundvöllur fyrir öllu, sem þarf að gera í atvinnulífi nútímans, af því að atvinnulíf nútímans heimtar alltaf stór átök, heimtar alltaf stórrekstur, ef á að vera hægt að standa undir góðum lífskjörum. Ég álít þess vegna, að einmitt þessi stóru kjördæmi verði til þess að gera alþýðu dreifbýlisins, þær starfandi stéttir dreifbýlisins sterkari, en ekki veikari.

Þá vildi hv. 7. þm. Reykv. segja, að Framsfl. væri alveg sérstaklega með fólkinu í dreifbýlinu, hann væri jafnvel sérstaklega með dreifbýlinu og þess vegna bæri fólkinu í dreifbýlinu að fylkja sér um Framsfl. — Nú skulum við fyrst aðgæta, þegar við tölum um að fylkja sér um eitthvað, — spurningin er þá ekki að fylkja sér um einhvern flokk, heldur að fylkja sér um einhverja stefnu. Um hvaða stefnu Framsfl. á fólkið, á alþýðan í dreifbýlinu að fylkja sér? Á það að fylkja sér um þá stefnu Framsfl. að knýja fram t.d. 8% launalækkun? Á það að fylkja sér um þá stefnu Framsfl. að hindra, að það séu keyptir 15 nýir, stórir togarar? Á það að fylkja sér um þá stefnu Framsfl. að hindra, að hernámsbælinu á Keflavíkurflugvelli sé útrýmt? Hvaða stefna er það, sem fólkið í dreifbýlinu á að fylkja sér um? Það er þetta, sem við þurfum að koma okkur niður á.

Framsfl. hefur sýnt það á undanförnum 15 árum, að hann er ekki aðeins á móti hagsmunum fólksins í dreifbýlinu, heldur beinlínis á móti því, að fólkið byggi í dreifbýlinu og auki þar byggðina og efli hana. Framsfl. var á móti nýsköpuninni og sú nýsköpun er enn í dag grundvöllur, atvinnugrundvöllurinn, sem það byggist á, að fólk skuli yfirleitt byggja verulega þessa staði enn þá, að Akureyri skuli ekki vera minnkandi staður, að Ísafjörður og Siglufjörður skuli þó a.m.k. haldast. Framsfl. stóð á móti því, að þetta væri gert, barðist á móti þessu, sagði, eins og hv. þm. A–Húnv. sagði áðan, að þetta þýddi bara upplausn þjóðfélagsins, eyðileggingu þjóðfélagsins, sem væri náttúrlega alltaf það, sem ótætis kommúnistarnir stefndu að. Og það var ekki nóg með, að Framsfl. væri á móti sjálfum kaupum nýsköpunartogaranna, hann var líka á móti þeirri löggjöf, sem knúði það fram, að það væru veitt lán allt upp í 85% til þess að gera bæjarfélögunum og öðrum úti á landi mögulegt að kaupa þessa togara. Framsfl. tafði fyrir því máli í heilt ár, barðist á móti stofnlánadeild sjávarútvegsins, lögunum um það, með landsbankavaldið á bak við sig. Ef Framsfl. hefði fengið að ráða, þá væru dreifðu byggðirnar úti um land meira eða minna eyddar. En það var vegna þess, að aðrir höfðu þarna forsjálni og höfðu til allrar hamingju þann kraft og þau samtök að geta knúið þetta fram gegn vilja Framsfl., að þjóðin hefur þennan grundvöll stórútgerðar og annarra stórframkvæmda til þess að byggja á.

Lærði Framsfl. af þessu, og sýndi hann seinna, að hann vildi eitthvað meira og betra, — sýndi hann það þá á næsta áratugnum? Hvar kom þá reyndin á hann? Þá kom reyndin með hernáminu, hættulegasta atriði fyrir dreifbýlið á Íslandi, fyrir landsfjórðungana þrjá, sem eyðingin hefur vofað yfir. Það var Keflavíkurflugvöllur, þær stóru framkvæmdir, sem hernámsliðið var að leggja í, öll sú spilling, sem í sambandi við það stóð og allir þeir peningar, sem menn drógust að þangað, — fátækt, hálfatvinnulaust fólk utan af landi, bændur, sem voru að flosna upp. Hvað bauð Framsfl. þeim upp á, á tímabili samvinnunnar við Sjálfstfl., þegar allt gekk vei, eins og hv. þm. A–Húnv. sagði? Hvað bauð Framsfl. þá upp á? Jú, hann bauð þessu fólki að flýja frá landsfjórðungunum þremur og suður á Keflavíkurflugvöll og þeir höfðu helmingaskipti um að gefa ávísanirnar á vinnuna þar. Var þetta til þess að hjálpa fólki til að viðhalda byggðinni úti á landi? Var þetta til þess að hjálpa fólkinu í dreifbýlinu? Ja, það mætti kannske segja, að það væri verið að hjálpa því til að flytja burt úr dreifbýlinu, en það var ekki verið að hjálpa því til þess að byggja upp atvinnu í dreifbýlinu, vegna þess að til þess þurfti meiri stórhug, en Framsfl. hefur nokkurn tíma sýnt. Það þurfti að taka þetta mál stærri tökum. Það þurfti að beita ríkisvaldinu miklu harðvítugar með því að reisa stóriðjufyrirtæki og annað slíkt til þess að skapa sterkan og góðan og öruggan grundvöll fyrir líf fólksins á þessum stöðum og það er það, sem Framsfl. hefur alltaf verið hræddur við, a.m.k. svo lengi sem það væru Íslendingar, sem ættu að eiga slíkt og ráða því.

Þess vegna hefur Framsfl. sýnt það á þessum síðustu 15 árum, að hann hefur ekki aðeins verið á móti atvinnu fólksins í dreifbýlinu, heldur hefur hann með sinni skammsýnu, þröngsýnu pólitík bókstaflega unnið á móti því, jafnvel þó að hann hafi kannske ekki viljað það, að þessir þrír landsfjórðungar gætu eflzt, að það væri hægt að koma upp stórkostlegri atvinnu, margfalda atvinnuna á þessum stöðum, að það gæti verið hægt að stjórna því, hvernig atvinnuþróunin yrði á Íslandi. Þess vegna hefur Framsfl. alltaf staðið á móti því, að það væri skipulagt með áætlunarbúskap, hvernig byggðin yrði á Íslandi, frá atvinnugrundvellinum og upp úr. Fjandskapurinn við nýsköpunarstefnuna, fylgið við hernámsstefnuna, það sýnir bezt, að þetta tal um dreifbýlið, jafnvel þó að framsóknarmönnum þyki það sjálfsagt fyrir sig sem hjal í kosningum, þá vantar skilninginn á því, hvað þarf að gera til þess að gera fólkinu í dreifbýlinu jafnmögulegt að lifa jafngóðu lífi og fólkinu í þéttbýlinu. Það þarf það mikið efnahagslegt átak til slíks, það þarf svo mikla hugsun og forsjálni og skilning á nútímaatvinnurekstri, að Framsfl. hefur ekki fengizt til þess að setja sig inn í það, hvað þarf til slíks og þegar aðrir hafa komið með hugmyndir um það, þá hefur hann ekki fengizt til þess að taka tillit til þess. En þeir eru hræddir við allar hugmyndir frá upphafi, alveg eins og hann var hræddur við það 1944, eins og hann stökk burt þá.

Þá segir hv. 7. þm. Reykv., að Framsókn sé raunverulega eini flokkurinn, sem sé á móti íhaldinu, hún sé á móti stefnu Sjálfstfl. og rakti það síðan þó nokkuð ýtarlega, hvernig Framsfl. ætti að vera mótvægið hjá íslenzku þjóðinni á móti því mikla valdi Sjálfstfl. Og það er sérstaklega gaman að fá þetta eins greinilega og vel flutt og hjá hv. 7. þm. Reykv., því að það er engum efa bundið, að Framsfl. er einmitt hér með það, sem á að verða hans höfuðkosningamál í næstu kosningum, — þetta að hann sé sá eini flokkur, sem sé raunverulega á móti íhaldinu, Sjálfstfl. og jafnvel þess stefnu, eins og hv. 7. þm. Reykv. minntist á. Að vísu skil ég, að það er óþægilegt fyrir 7. þm. Reykv. að fá svo á eftir sér ræðu eins og hjá hv. þm. A–Húnv. Það er náttúrlega vont að eiga að skilgreina þetta allt saman á eftir, og það verður náttúrlega að gera einhverjar sérstakar ráðstafanir í Framsfl. til þess, að það sé í aðalatriðum bara ein lína, sem hann hefur í kosningunum, nema kannske það sé meiningin að hafa línurnar tvær og fiska sitt á hvoru miðinu með hvorri. En hvernig sem það nú er, við höfum meiri áhuga fyrir þessari vinstri línu og það er þess vegna rétt fyrir okkur að taka hana dálítið vel til athugunar og þá sérstaklega þessa staðhæfingu hv. 7. þm. Reykv., að Framsfl. sé sá mikli mótpóll í íslenzku þjóðlífi við Sjálfstfl., og nú skulum við athuga íslenzkt þjóðlíf frá því sjónarmiði.

Hverjar eru grundvallarmótsetningarnar í íslenzku þjóðlífi? Grundvallarmótsetningarnar eru þær, að annars vegar er hér auðmannastétt, sem er kannske hvað tölu snertir 5–10% af þjóðinni. Hv. 7. þm. Reykv. hamrar mikið á því, þegar Framsókn er á vinstri linunni, að 20 ríkustu mennirnir í Reykjavik eigi 250 millj. kr. o.s.frv. og það er allt saman mjög rétt. Það sýnir m.ö.o., að auðvaldið í Reykjavik er mjög ríkt. Og hv. 7. þm. Reykv. fellst vafalaust á það með mér, að það sé mikill gróði t.d. nú hjá hraðfrystihúsunum, það sé vafalaust mikill gróði hjá heildsölum, — ég veit ekki, hvort það er hjá S. Í. S., — það sé mikill gróði hjá olíufélögum og þetta voðalega auðvald græði all mikla peninga og það eigi mörg hundruð milljónir króna í skuldlausum eignum. Og við erum vafalaust sammála um það, að þetta er annar mótpóllinn í íslenzku þjóðfélagi. Og hinn, hver er hann? 75% af Íslendingum eru launþegar, 50% eru verkamenn, 25% eru aðrir starfsmenn, sem eru á launum. Milli þessara tveggja aðila stendur baráttan í þjóðfélaginu, milli auðmannastéttarinnar annars vegar, þessara launþega hins vegar, — milli þeirra, sem eiga þessi hundruð milljóna í skuldlausum eignum, sem Tíminn slær öðru hvoru bara vel upp og hins vegar þeirra 75% Íslendinga, sem vinna og skapa og framleiða m.a. gróðamannaauðinn, sem þessi auðmannastétt á og milli þessara tveggja aðila í þjóðfélaginu stendur baráttan um, hvort þessum launþegum eigi að líða sæmilega vel, hvort þeir eigi að bæta sín kjör og hvort það eigi að skapa þannig aðhald að auðmannastéttinni, að hún neyðist til þess að reka sín fyrirtæki betur og betur, jafnvel hvort það eigi að stíla í þá áttina, að þessir launþegar eignist ýmist í gegnum samvinnustefnu, þjóðnýtingu eða annað slíkt meira og meira atvinnufyrirtæki, sem auðvaldið hefur átt. Um þetta stendur baráttan í þjóðfélaginu, en þó alveg sérstaklega um sjálfa arðskiptinguna.

Og þá skulum við taka það í fyrsta lagi, þar sem sú arðskipting kemur greinilegast í ljós, það er baráttan um launin. Hver er afstaða þessarar auðmannastéttar í Reykjavík til launagreiðslna? Afstaðan er sú, að þessi auðmannastétt hefur eignazt allan sinn auð, græðir allt, sem hún græðir, í krafti þess, að hún borgar verkamönnunum, launþegunum, minna fyrir vinnuna, sem þeir láta gera, heldur en það, sem þeir skapa að verðmæti. Þannig skapast hennar gróði, sá gróði, sem Tíminn öðru hvoru, þegar hann er á vinstri línunni, er að hampa. Afstaða auðvaldsins, afstaða þessarar auðmannastéttar gagnvart launþegunum er sú, að hún vill halda í við þá, hún vill hindra, að þeirra laun hækki. Hún vill halda laununum niðri. Hún vill lækka þau. Þetta er afstaða auðmannastéttarinnar. Þetta er stefna auðmannastéttarinnar. Hún vill sem sé halda í við verkalýðinn.

Hver er hins vegar afstaða launþegastéttarinnar, 75% Íslendinga? Lífsbarátta þeirra hlýtur fyrst og fremst að miðast við það, að svo miklu leyti sem þeir fara ekki að hugsa fyrir allt þjóðfélagið í því að berjast fyrir nýjum atvinnutækjum og öðru slíku, þá hlýtur hún að miðast við það að bæta þessu við launin, að selja sína vinnu dýrara, fá meira fyrir hana, náttúrlega í trausti þess, að stjórnarvöldin noti ekki aðstöðuna til þess að stela því aftur af þeim með verðbólgu. Barátta launþegastéttanna í þjóðfélaginu, barátta 75% Íslendinga, hlýtur að miða að því að gera kjör sín betri með því að hækka sín laun, ná aftur og aftur af þeim gróða, sem Tíminn talar um, þegar hann er á vinstri línunni, að auðmannastéttin hafi safnað sér. Þessi launþegastétt hefur átt í þessari baráttu, frá því að hún varð til. En þessi barátta launþegastéttarinnar er ekki aðeins réttlætisbarátta fyrir lífskjörum hennar sjálfrar, þetta er líka aðalframfaraaflið í þjóðfélaginu. Þegar verkamannastétt fær sín kjör bætt, ef við göngum út frá föstu verðlagi, ef við göngum út frá því, að það sé ekki einhver svikamylla sett í gang með verðbólgu og öðru slíku, hvað þýðir það þá fyrir atvinnurekendur? Við skulum segja, að verkamaðurinn fær sitt kaup hækkað um 3%. Það þýðir, að atvinnurekandinn verður að hugsa út í: Hvernig á ég að spara mér þessi 3%, sem ég verð að hækka launin um við verkalýðinn? Með því að hafa minn rekstur betri, með því að framleiða meira og ódýrara, með því kannske að hafa reksturinn stærri. Með öðrum orðum: það þýðir, að atvinnurekandinn, ef allt er með felldu, hugsar um, hvernig hann eigi að gera atvinnureksturinn betri og arðbærari fyrir sjálfan sig og þjóðfélagið. M.ö.o.: með launabaráttu verkamannastéttarinnar er hún ekki aðeins að bæta sinn eigin hag, heldur að knýja fram framfarirnar í þjóðfélaginu, knýja það fram, að atvinnurekendurnir verði að reka sína atvinnu á skynsamlegri hátt.

Hver er nú afstaða framsóknarmanna, þegar 75% Íslendinga, þegar launþegastéttirnar á Íslandi eru að berjast fyrir því með hækkuðum launum að ná einhverju aftur af þessum hundruðum milljóna króna, sem Framsfl. og Tíminn tala um, þegar þeir eru á vinstri linunni, að hafi safnazt fyrir hjá auðmannastéttinni? Hver er afstaða Framsóknar? Ég get komizt kannske betur inn á það seinna, en ég er hræddur um, að lengst af hafi afstaða Framsóknar verið sú, að þessi laun mætti ómögulega hækka, að Framsókn hafi tekið nákvæmlega sömu afstöðu og stundum lakari en Sjálfstfl., að Framsfl. vilji halda í fyrir auðmannastéttina og móti verkalýðnum og vilji jafnvel lækka launin við verkalýðinn. M.ö.o.: sé Sjálfstfl. íhald í þessu, sem hann vissulega er, þá er Framsfl. ekki síður íhald. Munurinn er kannske sá, að það væri réttara að tala um, af því að Sjálfstfl. er sterkastur hér í Reykjavík, um Reykjavíkur íhaldið annars vegar og framsóknar íhaldið hins vegar. En það lítur út fyrir, að þessi tvö íhöld séu það, sem auðmannastéttin í Reykjavík fyrst og fremst treystir á til þess að geta hindrað, að verkalýðurinn geti verulega bætt sín kjör.

Þetta er viðvíkjandi laununum og þeirri mótsetningu, sem þar er í íslenzku þjóðfélagi, á milli auðvalds og launþega.

Við skulum taka annað svið, sem snertir það, sem auðvaldið græðir í sambandi við sína álagningu, græðir á neytendunum, verzlunarauðvaldið. Þar kemur gróðinn fram sem álagning á vöruna. Eðlilega berst verkalýðurinn fyrir því, að slík álagning sé yfirleitt sem lægst og ekki hvað sízt á þeim sviðum, þar sem vitað er að gróðinn hjá viðkomandi auðfélögum er mestur. Við þurfum ekki lengi að leita til þess að sjá, hver afstaðan hefur verið, t.d. þegar við vorum að berjast fyrir því að lækka olíuverðið. Hver var afstaða Framsóknar í verðlagsnefndinni? Á móti því, — halda í fyrir olíuhringana. Ég er hræddur um, að við höfum fengið alveg smjörþefinn af því, hvernig afstaðan er þannig, þegar verzlunarauðvaldið á í hlut hins vegar. Það hefur ekki skort samfylkinguna á milli S. Í. S. og stóru heildsalanna, þegar um þessa hluti hefur verið að ræða, inni í olíuhringunum sem utan þeirra.

Við skulum taka annað dæmi, þar sem þessar grundvallarmótsetningar í íslenzku þjóðfélagi eigast við, hvað snertir skipulagninguna á þjóðfélaginu. Hv. 7. þm. Reykv. talaði um höftin og verðlagseftirlit og allt saman það í því sambandi. Það er rétt. Sjálfstfl. hefur haft og hefur þá stefnu, að það eigi að vera verzlunarfrelsi og frelsi til brasksins. Framsfl. hefur venjulega í þessum efnum verið með meira eða minna neikvæðum höftum, en aldrei getað hugsað sér að stíga það spor það langt að skipta sér af atvinnulífinu og verzlunarlífinu, að skipuleggja það meira eða minna með þjóðnýtingu. Hann hefur verið á móti áætlunarbúskap. Hann hefur t.d., þegar við höfum barizt fyrir því að reyna að fá fram þjóðnýtingu á olíuverzluninni, staðið á móti því. Þar var þó tækifæri til þess að brjóta á bak aftur einn af sterkustu hringum í landinu og meira að segja undir þeim kringumstæðum, að ríkið sjálft keypti alla olíuna, en átti bara að hætta við að afhenda hana alla saman í hendurnar á þessum hringum til þess að græða á því. Það sýndi sig, hvenær sem reyndi á það, hvort Framsfl. var til í að afnema það frelsi til brasks, sem auðmannastéttin vill viðhalda, að Framsfl. var á móti því. Hann var á móti því, að þjóðin sjálf tæki í sínar hendur slíka hluti eins og olíusöluna. Af hverju? Ég býst við, að okkur hv. 7. þm. Reykv. sé báðum jafnljóst af hverju. Þess vegna er þessi óskaplega barátta á móti auðvaldinu hjá Framsfl. í þessum efnum ákaflega einkennileg. Ég held, að ef hann meinti eitthvað um það, þá hefði hann átt að sýna það í vinstri stjórninni.

Ég skal viðurkenna, að það eru fleiri aðferðir en viðvíkjandi laununum, viðvíkjandi spursmálinu um álagningu á gróðann, viðvíkjandi skipulagningunni á þjóðfélaginu, þar sem reynir á um, hvers konar afstöðu menn taka viðvíkjandi því að bæta t.d. kjör vinnandi stéttanna, bæta kjör launþeganna, t.d. á kostnað auðvaldsins. Það er hægt að gera það með löggjöf. Það er hægt að gera það með löggjöf eins og tryggingalöggjöf. Við fórum fram á það, þegar vinstri stjórnin var mynduð, að við fengjum að gera verulegar endurbætur á tryggingalöggjöfinni. Það var sagt nei. Slíkt kemur ekki til mála.

Þegar við mynduðum stjórn með Sjálfstfl. 1944, fórum við fram á þetta sama, verkalýðsflokkarnir og það fékkst fram. M.ö.o.: það virðist vera ákaflega fjarri því, að Framsfl. sé einhver mótpóll, sem alþýðan og launþegarnir í landinu geti treyst á í baráttunni við auðvaldið, þetta voðalega íhald í landinu. Meira að segja við sjálfan Sjálfstfl., sem Framsókn að ýmsu leyti réttilega telur þarna höfuðóvininn, þá tekst á tryggingasviðinu að komast að betri samningum, en við Framsfl. Samt er það orðið svo núna, þegar t.d. elli- og örorkulífeyririnn er farinn að dragast þannig aftur úr, að á sama tíma sem laun hafa hækkað frá 1947 um 250 stig, þá hefur elli- og örorkulífeyririnn hækkað um 187 stig, þannig að þeir, sem bágast eiga í þjóðfélaginu, eru settir hjá, að samt fást ekki róttækar endurbætur.

Nei, sannleikurinn er sá, að í öllum þessum grundvallarátökum í íslenzku þjóðlífi, baráttunni um það, hvernig arðurinn eigi að skiptast, baráttunni um, hve mikið af því, sem vinnandi stéttirnar skapa, eigi að vera hjá þeim sjálfum og hve mikið eigi að fara til auðmannastéttarinnar, — í þessum grundvallarátökum milli launþegastéttarinnar, 75% Íslendinga, annars vegar og auðmannastéttarinnar hins vegar, þá stendur Framsfl. með auðvaldinu, ekki sem andstæðingur auðvaldsins. Framsfl. stendur ekki sem andstæðingur Sjálfstfl., heldur sem keppinautur hans í fésýslu, keppinautur, sem vill verða kumpáni hans í gróðanum á íslenzkri alþýðu. Þetta er inntakið í því, sem reynt er að dylja undir öllu því vinstra lýðskrumi, sem Framsfl. beitir öðru hverju. Það eru ekki tveir mótpólar, sem þarna eigast við, það eru tveir keppinautar, sem vilja vera kumpánar, en sem slást og eru að fiska á sömu miðunum, eru að skipta sama gróðanum. Gróðinn er skapaður af verkalýðnum og af launþegastéttinn, og það er ákveðinn hlutur og því verður að skipta og þessir tveir flokkar slást um það, hvernig eigi að skipta því á milli þeirra, en þeir standa saman um að reyna að gera gróðann handa auðmannastéttinni sem mestan og skilja sem minnst eftir hjá verkalýðnum. Og það sýnir öll sagan síðustu 17 ár, að það eru tvö íhöld í þessu landi, ef við eigum að taka það þannig.

Það er Reykjavíkur íhaldið, Sjálfstfl. og Framsóknar íhaldið. Og við skulum athuga, hvernig þessi tvö íhöld hafa starfað saman síðustu 17 árin. En það er ætlunin hjá Framsfl. að reyna að láta reynsluna og söguna falla í dá, þannig að alþýða landsins muni ekki eftir því.

1942 voru það þessir tveir flokkar, íhöldin bæði, Framsóknar íhaldið og Reykjavíkur íhaldið, sem tóku höndum saman um gerðardóminn, sem átti að fyrirskipa það og tryggja það, að engin lífskjarabót yrði hjá íslenzkum verkalýð frá því, sem var fyrst á stríðsárunum, átti að tryggja það, að við byggjum við nákvæmlega sömu neyðina og fátæktina og við bjuggum þá og við hefðum búið við það enn þá, ef við hefðum ekki brotið það á bak aftur.

Hvernig tók Framsfl. því, þegar okkur tókst að brjóta þetta á bak aftur með skæruhernaðinum gegn gerðardómslögunum, með samkomulaginu við Sjálfstfl. um kjördæmabreytinguna 1942, — hvernig tók Framsfl, því? Hvernig leit hann á þetta? Sætti hann sig við þetta, og vildi hann láta verkalýðinn sitja við þessi kjör, sem hann var búinn að skapa sér á árunum 1942–44? Máske ég rifji upp fyrir hv. 7. þm. Reykv. og öðrum þm. Framsfl., hver var þeirra afstaða þá.

Haustið 1944 var barátta á milli launþeganna og atvinnurekenda á Íslandi, á milli þessa Reykjavíkurauðvalds, sem Tíminn þykist vera svo mikið á móti núna og verkamannanna. Hver var afstaða Tímans? Tíminn segir í ritstjórnargrein 21. júlí 1944, með leyfi hæstv. forseta: „Ef til andstöðu atvinnurekenda kæmi, mundu líka skapast verkföll og aukinn ófriður í þjóðfélaginu, sem yrði atvinnulífinu til mikils trafala. Þó er vafalaust, að slíkur ófriður væri þjóðfélaginu ekki skaðlegri, en þetta algera undanhald atvinnurekenda í kaupgjaldsmálunum.“

Þetta var afstaða Tímans. Afstaða Framsfl. 1944 var sú að eggja atvinnurekendur til að standa sig nú á móti verkamönnum, vera nú ekki að láta undan verkamönnunum í verkföllunum, vera nú ekki að hækka kaupið, halda verkamönnunum niðri. Framsfl. hafði þá um nokkurt skeið tekið þátt í samningum fjögurra flokka um að mynda ríkisstjórn. 3. okt. fór Framsfl. út úr þeim samningum, hætti þátttöku í þeim. — Og á hvaða forsendum? Var það vegna þess, að Framsfl. þætti þeir samningar ekki stefna nógu dyggilega í þá átt að knésetja auðvaldið í landinu? Var það vegna þess, að Framsfl. þætti, að atvinnurekendur ætluðu sér allt of stóran hlut úr þeim samningum? Var það vegna þess, að Framsfl. langaði til þess að mynda stjórn, vinstri stjórn með verkalýðsflokkunum og knésetja auðvaldið? Nei, það var ekki vegna þess. Það var vegna þess að Framsfl. fannst Sjálfstfl. láta of mikið undan verkamönnunum og vilja taka of mikið tillit til þeirra. Og hvað gerði Framsfl. þennan dag, 3. okt. 1944, þegar hann fór út úr 12 manna nefndinni? Hann skrifaði Sjálfstfl. Hvað skrifaði hann Sjálfstfl.? Hann skrifaði honum, að þessir tveir flokkar, Sjálfstfl. og Framsfl., ættu að taka höndum saman og mynda ríkisstj. á Íslandi til þess að halda niðri kaupinu. Og hann taldi upp, hvað ætti að gera og í öllum þessum liðum, sem átti að gera, var ekki eitt einasta atriði um, að það ætti að afla þjóðinni nýrra atvinnutækja, því að Framsfl. var á mótí því. M.ö.o.: Framsfl, bauð Sjálfstfl. upp á að mynda harðvítuga afturhaldsstjórn á Íslandi til þess að hindra, að nokkur nýsköpunartæki yrðu keypt til landsins og til þess að halda niðri kaupi verkalýðsins og brjóta verkalýðshreyfinguna á bak aftur. Og þegar Framsfl. tókst ekki að fá þessa íhaldsstjórn beggja íhaldanna og fékk nýsköpunarstjórnina í staðinn, lærði hann þá nokkuð? Nei. Það var rétt eins og í kjördæmamálinu, hann getur aldrei lært og engu gleymt. Þegar við vorum búnir að kaupa togarana og þegar við skrifuðum Landsbankanum, þar sem Framsfl. réð, eins og hann löngum hefur gert, og þar sem hans aðalfjármálavitringur, Vilhjálmur Þór, núverandi aðalbankastjóri seðlabankans, var þá einn voldugasti bankastjórinn, þá lagðist Framsfl. á móti því, að 100 millj. kr. í íslenzkum peningum yrðu lagðar til hliðar til þess að gefa íslenzkum aðilum öðrum, en ríkinu. Það var búið að kaupa togarana fyrir útlent fé, en það átti að fá færi á að dreifa þessum togurum út um landsbyggðina, til bæjarfélaganna. Framsfl. undir forustu síns aðalsérfræðings í efnahagsmálum, Vilhjálms Þórs, miðstjórnarmanns í Framsókn, barðist á móti því, að þetta yrði veitt. Það kostaði heilt ár, heils árs baráttu utan þings og innan, þangað til búið var að kúska þetta í gegn á móti vilja Framsóknar. Það var bankavaldið, sem hv. 7. þm. Reykv. meira að segja var nú að lasta, eins og mér hefur stundum orðið á hér í þinginu, það var bankavald Framsóknar, sem með því ætlaði að sýna, að það væri húsbóndinn á heimilinu, í íslenzka þjóðfélaginu, og fékk ekki að sýna það, varð að láta í minni pokann. Og hvað lærði Framsókn af því? Þennan sama mann, sem þá barðist harðvítugast á móti öllum nýsköpunarframkvæmdum, kúskaði hún í gegn að vinstri stjórnin setti sem aðalbankastjóra seðlabankans, nú þegar vinstri stjórnin var. (BBen: Var það ekki með samþykki þingmannsins sjálfs?) Það var með samþykki mínu, eins og allt, sem þá var gert, en ég var sá eini, sem varaði við, hvað af því mundi hljótast. Ég þekkti nefnilega manninn. Þannig hefur það verið. (Gripið fram í.) Ég hef lært af reynslunni og reynt að kenna Framsókn, en það hefur aldrei tekizt. En þegar menn eru búnir að vera svona lengi í skóla, þá ættu menn, ef þeir lesa sína lexíu nógu oft eða heyra hana nógu oft lesna, — þá ætti ofur lítið brot af henni að fara að komast inn í höfuðið, jafnvel á framsóknarmönnum. M.ö.o.: alla nýsköpun, allar þær kjarabætur, sem þá voru gerðar, varð að knýja fram á móti vilja framsóknarmanna. Og enn þá hefur Framsókn ekki áttað sig á því, að með því, sem þá var gert, var verið að leggja grundvöll að atvinnulífi Íslands og alveg sérstaklega að atvinnulífi dreifbýlisins. Enn þá eru þeir ekki búnir að skilja það.

Hvað gerðist svo? 1949 fóru fram kosningar. Framsókn var um nokkurt skeið búin að vera í samvinnu við Sjálfstfl., en hafði slitnað upp úr og í kosningunum 1949 varð Framsókn ákaflega róttæk, alveg sérstaklega róttæk í Reykjavík. Maður skyldi jafnvel ætla, að hún hefði nú verið farin að læra eitthvað, að hún væri bara farin að snúast á mótí auðvaldinu, hefði nú séð, að allt þetta, sem hún gerði 1944 og þar á eftir, var bölvuð vitleysa af henni og nú ætlaði Framsókn að sýna, hve róttæk hún væri, að nú skyldi hún sýna, að hún væri nú ekki bara bændaflokkur, nei, hún væri nú aldeilis flokkur fyrir Reykvíkinga. Og þá vissi hún, að það dugði ekki að tala eins og hv. þm. A-Húnv. (BP), þá varð hún að tala dálítið öðruvísi og hún sendi einn af sínum duglegu áróðursmönnum hér út, Rannveigu Þorsteinsdóttur og hún gaf yfirlýsingu í þeim kosningum, yfirlýsingu, sem að sumu leyti minnir ákaflega mikið á ræðu hv. 7. þm. Reykv. hér síðast, nema hvað hátindurinn í þeirri ræðu var enn þá hærri og glæsilegri. Henni lauk með þeirri yfirlýsingu Framsfl. hér í Rvík: „Ég segi fjárplógsstarfseminni stríð á hendur.“ Það var eins og hv. 7. þm. Reykv. vildi segja með sinni löngu og skýru ræðu, en tókst ekki að hnitmiða það allt saman í einu voldugu vígorði, eins og Framsfl. gerði þá: Ég segi fjárplógsstarfseminni stríð á hendur. — Og svo hófst stríðið. Það var stríð Framsfl. á móti auðvalinu, á móti Sjálfstfl., sem var sérstaklegur fulltrúi auðvaldsins. Og það var nú meira stríðið. Þarna ruku þeir á þinginu t.d. út á vígvöllinn. Sjálfstfl. hafði myndað einn ríkisstjórn og það var skellt vantrausti á ríkisstj. tafarlaust. Það átti nú ekki aldeilis að duga að hafa neina ríkisstj. með Sjálfstfl. Sjálfstfl. hafði lagt fram frv. um gengislækkun, annað eins óféti í þágu auðvaldsins í landinu og Framsfl. sagði nei: nú er ekki að tala um. Þessi Sjálfstfl.-stjórn verður að falla. Nú átti auðvaldið að fá að sjá það, nú átti þjóðin að fá að sjá, hver var höfuðandstæðingur Sjálfstfl., hverjum mátti treysta, hverjum alþýðan mátti treysta í baráttunni við auðvaldið. Og svo féll stjórn Sjálfstfl. Og hvað gerðist? Framsfl. og Sjálfstfl. féllust í faðma. Þar var fyrsta stórorusta, sem var háð á móti fjárplógsstarfseminni. Og um hvað féllust þeir í faðma? Sneri kannske Framsfl. Sjálfstfl. alveg til liðs við sig, lét hann bara falla frá gengislækkun og öllu mögulegu slíku? Nei, Framsfl. tók frv. Sjálfstfl. um gengislækkun og samþykkti það með húð og hári, gleypti það.

Einn forustumaður Framsfl. sagði hér í gamla daga stundum: Sagan endurtekur sig. — Það skyldi þó aldrei vera, að stríðið á móti fjárplógsstarfseminni ætti að standa í kosningunum í haust og eftir kosningarnar ætti að fella gengið með sjálfstæðismönnum, fyrst þeir ekki fengu það í gegn að fella gengið með okkur? Og hvað var svo gert næst, þegar búið var að fella gengið? Hv. 7. þm. Reykv. talaði um það í sinni ræðu, þegar hann var að lýsa hinni ljótu stefnu Sjálfstfl., að Sjálfstfl. vildi meira að segja afnema verðlagseftirlitið, þetta væri aldeilis voðalegur flokkur. En þá var það eitthvað annað með þessa flokka, sem eru að slást á móti fjárplógsstarfseminni? Hvað gerðu Framsfl. og Sjálfstfl., þegar þeir féllust í faðma í þessari ríkisstj. í baráttunni á móti fjárplógsstarfseminni? Þeir afnámu verðlagseftirlitið nokkurn veginn, þeir skópu mesta stórgróða, sem verzlunarauðvald á Íslandi hefur nokkurn tíma þekkt, m.ö.o.: þeir framkvæmdu stefnu Sjálfstfl., sem hv. 7. þm. Reykv. var að tala á móti hérna áðan. Og hefur Framsfl. nokkurn skapaðan hlut lært af því, er hann eitthvað á móti því núna? Hvað segir hv. þm. A-Húnv.? Jú, þá gekk vel, þegar þeir voru búnir að ná þarna höndum saman og fallast í faðma og afnema verðlagseftirlitið, framkvæma þessa ljótu stefnu Sjálfstfl., — já, þá gekk vel, segir hin nýja rödd Framsfl. á Alþ.

Hvað gerðist meira? Hv. 7. þm. Reykv. talaði um það í sinni ræðu, að Sjálfstfl. hafi meira að segja verið svo vondur, að hann vildi afnema höf, og það væri svo sem ekki betra, sem hann vildi setja í staðinn, það væri bara ótætis bankahöft og alls konar bankavald og annað slíkt og það yrði nú ekki betra, að það hyrfi frá innflutningsnefndinni og til hans Vílhjálms eða einhverra annarra niður frá. Hann sagði það nú ekki, en ég bætti því við.

Hvað gerðu Framsfl. og Sjálfstfl., þegar þeir tóku þarna höndum saman? Þeir afnámu þessi höft að meira eða minna leyti, þeir gerðu bankana enn þá voldugri. M.ö.o.: Framsfl. er staðinn að því að framkvæma stefnu Sjálfstfl., sem hv. 7. þm. Reykv. dregur upp sem grýlu og hv. þm. A-Húnv. segir, að einmitt þegar Framsfl. framkvæmir stefnu Sjálfstfl., þá gangi allt vel.

Svona var nú um þessa baráttu á móti fjárplógsstarfseminni á þessum sviðum, sem hv. 7. þm. Reykv. var sérstaklega að koma inn á, verðlagseftirlitið, höftin og annað slíkt. En hvernig var það á öðrum sviðum, sem hv. 7. þm. Reykv. minntist ekki á? Hvernig var staðið á móti fjárplógsstarfseminni t.d. í áburðarverksmiðjunni? Þá tóku þessir flokkar höndum saman um það að reyna að stela áburðarverksmiðjunni frá ríkinu og gefa nokkrum einstökum hluthöfum tugmilljóna gróða á kostnað ríkisins og kostnað bænda. Og Framsfl. hefur gengið fram fyrir skjöldu í því og ekki fengizt til að breyta því enn þá.

Máske kom þó stríðið, sem Framsfl. lýsti yfir gegn fjárplógsstarfseminni 1949, skýrast í ljós á Keflavíkurflugvelli. Þar átti fjárplógsstarfsemin eftir að komast í algleyming. Þar átti sem sé íhaldið að fá að sitja eitt að þessu, ef það eitt átti að mega ata sig út á svona ljótum hlut eins og fjárplógsstarfsemi. Hvað gerði þá Framsfl.? Hann sagði, að um fjárplógsstarfsemina á Keflavíkurflugvelli yrði að hafa helmingaskipti. Og hvað gerði meira að segja Samband ísl. samvinnufélaga, sem vissulega á að berjast á móti auðvaldi í landinu, — hvað gerði það? Var meira að segja myndað kannske sérstakt hlutafélag, til þess að Framsfl. gæti orðið þátttakandi í fjárplógsstarfseminni á Keflavíkurflugvelli, svo að það bættist ofan á alla fjárplógsstarfsemina viðvíkjandi olíunni, þar sem helmingaskiptin héldu áfram og höfðu verið áður? M.ö.o.: ef einhver vildi efast um, að það, sem ég sagði hér áðan, um að Framsfl. væri ekki andstæðingur Sjálfstfl. eða auðvaldsstefnunnar í landinu, heldur keppinautur í því, þá þarf hann ekki annað en líta á starfsemina í olíufélögunum eða hjá hernámsfélögunum á Keflavíkurflugvelli, til þess að sjáist, hvernig Framsfl. slæst sem keppinautur við Sjálfstfl., m.a. um atkvæðin í landinu, til þess að standa betur að vígi til þess að keppa við hann í fésýslunni og til þess að geta náð helmingaskiptum við hann um gróðann, sem auðvaldið í landinu hefur af verkalýðnum, þ.e. að keppa við Sjálfstfl. til þess að verða kumpáni hans í því að njóta þess gróða, sem íslenzkur verkalýður skapar. Er það þessi stefna, sem fólkinu í dreifbýlinu er ætlað að fylkja sér um, myndun þessara gróðafélaga, þessi fjárplógsstarfsemi, þessi helmingaskipti?

Það er hægt að reyna að segja kannske einhverju ungu fólki, sem aldrei hefur fylgzt með í íslenzkum stjórnmálum, að Framsfl. sé einhver mótpóll í þessum efnum. Það er jafnvel hægt að reyna að telja saklausu sveitafólki trú um slíkt, sem aldrei hefur lesið neitt nema Tímann. En það er ekki hægt að segja það við nokkurn mann, sem fylgzt hefur með í stjórnmálum Íslands á síðustu áratugum, að Framsfl. sé eitthvað, sem alþýða landsins geti treyst í baráttunni við það ríka og volduga auðvald Reykjavíkur. Til þess er Framsfl. of ánetjaður því auðvaldi. Til þess er Framsfl. of mikill keppinautur við ákveðna auðmannahópa hér, of mikill kumpán vissra auðmannahópa og allur saman fyrst og fremst hugsandi um það að ná sem beztri aðstöðu í þessari fésýslu. Það er sú spilling, sem orðið hefur í Framsfl. og samvinnuhreyfingunni, sem ég hins vegar veit að fjöldinn allur af framsóknarmönnum og þeir, sem Framsókn fylgja úti um allt land, eru ónáægðir með, vegna þess að þetta er fjarri þeim hugsjónum, sem Framsfl. reynir að flagga með á hátíðar- og tyllidögum eða fyrir kosningar. Þess vegna þýðir það lítið fyrir hann að koma nú 10 árum eftir kosningarnar 1949, 10 árum eftir að Framsfl, lýsti yfir stríðinu á móti fjárplógsstarfseminni og fara að endurtaka þann skrípaleik fyrir okkur. Það þýðir ekki. Við vitum, hvernig það stríð fór. En þó að Framsfl. gæfist upp í því stríði, þó að hann í staðinn fyrir að segja fjárplógsstarfsemi auðmannastéttarinnar stríð á hendur gæfist upp og gerðist þátttakandi í stríði fjárplógsmannanna á móti alþýðu landsins, þá gáfust ekki allir upp. Verkalýðurinn í landinu barðist. Hann reis upp 1955 til þess að reyna að ná í sinn hluta nokkru af því, sem stolið hafði verið af honum á 8 árum á undan, þ.e. frá 1947 höfðu kjör verkalýðsins lækkað um hér um bil 20% og hann reyndi með verkföllunum 1955 að ná einhverju af þessu aftur. Hver var afstaða Framsfl. þá? Nákvæmlega eins og Sjálfstfl., á móti verkalýðnum. Þeir, sem hafa staðið í baráttunni á móti auðmannastéttinni á Íslandi, þeir, sem fara af stað í þeirri baráttu að reyna að ná einhverju meira af því, sem 75% launþeganna á Íslandi skapa, yfir til launþeganna sjálfra frá auðmannastéttinni, þeir vita, hverju þeir eiga að mæta í þeirri baráttu og hvernig Sjálfstfl. og Framsfl. standa saman, þegar sú barátta verður hörðust.

Nú geta menn svo sagt: 1956 hætti þó samvinnan, hættu helmingaskipti á milli Framsóknar og íhalds, og Framsfl. tók upp samstarf við verkalýðsflokkana. Og þá fékk hann tækifæri til sinnaskipta. Ef hann hefði meint eitthvað með öllu því, sem hv. 7. þm, Reykv. var að segja, þá hafði hann tækifærið nú undanfarin 21/2 ár til að sýna, hvílíkur andstæðingur auðvaldsins hann var, hvernig hann vildi hnekkja þessu Reykjavíkurauðvaldi, — og hvað gerðist? Framsóknaríhaldið hindraði í vinstri stjórninni allar aðgerðir, sem hefðu orðið til þess að gera auðvaldið í Reykjavík veikara. Það mátti ekki snerta við því. Þegar við lögðum til að þjóðnýta þó nokkuð mikið, taka upp ríkisverzlun og taka mikið af heildverzlun, innflutningsverzlun til Íslands, úr höndum þeirra stóru heildsala hér í Reykjavík, hvað var þá viðkvæðið hjá Framsfl.? Nei, það mátti ekki snerta við þessu, meira að segja ekki olíunni, sem er sérstakur hluti af innflutningi til Íslands, sem ríkið kaupir sjálft inn, að ríkið fengi að halda henni og hafa heildverslun á henni. Það hefði verið dálítið högg fyrir olíuauðvaldíð í Reykjavik. Hvað sagði Framsfl.? Ekki snerta við því. Það mátti ekki veikja auðvaldið. Af hverju? Af því að helmingaskiptin milli Framsóknar og Sjálfstfl, héldu áfram, jafnt meðan vinstri stjórnin var í stól og Framsfl. stóð trúan vörð um gróða og hagsmuni auðmannastéttarinnar, um vald hennar, um ráð hennar yfir innflutningnum, um vald hennar yfir stóratvinnutækjunum. Afstaða Framsóknaríhaldsins breyttist ekkert á þessu sviði. Afstaðan til þess að vernda auðvaldið og þess hagsmuni var eins og áður: Helmingaskiptin á bak við tjöldin við það voru söm og áður. Og ekki nóg með það, meira að segja þar, sem við hefðum þó þurft að gera stóra hluti, sem hefðu komið öllum Íslendingum og allri þjóðinni til góða, eins og að kaupa þá 15 stóru togara, meira að segja þar bilaði Framsfl.

Svo að ég víki aftur að því, sem hv. 7. þm. Reykv. kom inn á, að Sjálfstfl. væri svo vondur, að hann vildi nú setja bankahöftin í staðinn fyrir höftin uppi á Skólavörðustíg, þá komumst við heldur ekki lengra með Framsfl. í því að reyna að hafa áhrif á og nota fé þjóðarinnar þannig, að það væri skynsamlegast fyrir þjóðina í heild. En í staðinn fyrir að koma upp áætlunarráði og áætlunarbúskap í landinu til þess að reyna að stjórna af viti okkar þjóðarbúskap, þá kúskar Framsfl. það í gegn, að eina raunverulega breytingin, sem gerð er á bankamálunum, er að gera Vilhjálm Þór að hálfgerðum einræðisherra.

Og svo, eftir að hafa staðið meira og minna á móti öllu því, sem var nauðsynlegt að gera á móti auðvaldinu í Reykjavík, hvernig endar þá Framsfl. sinn feril í þessari ríkisstj.? Endar hann með því að segja að lokum auðvaldinu stríð á hendur og ganga svo róttækt og djarft fram, að við höfum ekki þorað að fylgja honum eftir, þannig að þjóðin geti nú sannfærzt um héðan af, að Framsfl. einum sé treystandi til baráttu við auðvaldið? Endaði vinstri stjórnin þannig, að Framsfl. gerðist svo róttækur? Ónei, hún endaði ekki þannig. Hún endaði þannig, að Framsfl. gekk fram fyrir skjöldu Reykjavíkurauðvaldsins og gerði þá kröfu til verkalýðsins og launþeganna á Íslandi, að launin væru skorin niður með lögum um 8%. Þegar verkalýðsflokkarnir vildu ekki taka þessu, þá var stjórnarsamvinnunni slitið tafarlaust, stjórnarsamningurinn rofinn og allt svikið, sem ekki hafði verið efnt í honum.

Hvernig var hitt íhaldið? Þegar Framsóknaríhaldið klauf vinstri stjórnina á kröfu um 8% launalækkun, hvað sagði þá Sjálfstfl., þegar hann fór að tala við okkur um stjórnarmyndun? Jú, hann bauð upp á bara 6%. Sjálfur aðalfulltrúi Reykjavíkurauðvaldsins var þetta — ja, hvað eigum við að segja — billegri í kröfunum til niðurskurðarins hjá verkalýðnum heldur en Framsókn. Framsókn var þetta dyggari fulltrúi þeirra harðsvíruðustu atvinnurekenda í landinu, að hún vildi ganga lengra gagnvart verkalýðnum en Sjálfstfl. lagði til að ganga á eftir. M.ö.o.: bæði voru íhöldin sammála um þetta tvennt, Reykjavíkuríhaldið og Framsóknaríhaldið, sammála um þetta tvennt: launin áttu að lækka, launin átti að skera niður, en við heildsalagróðanum mátti ekki snerta, við olíugróðanum mátti ekki snerta.

Nei, það þýðir ekki að koma til okkar og ætla að segja: Framsfl. er sá mikli mótpóll í þjóðfélaginu við Sjálfstfl. Í þeim grundvallarmótsetningum, sem eru í íslenzku þjóðfélagi, þar sem auðmannastéttin stendur annars vegar með gróðann og auðinn og verkalýðurinn hins vegar, sem skapar auðinn og gróðann með sinni vinnu, þá hefur Framsfl. sýnt það allan þennan tíma, að hann hefur jafnt og Sjálfstfl, staðið með auðvaldinu á móti verkalýðnum. Við höfum stundum getað samið við þessa flokka á víxl. Þannig hefur helzt verið hægt að fá eitthvað gott fram í þjóðfélaginu. En þegar við höfum samið um og staðið saman, þá hefur það verið hvað bölvaðast fyrir íslenzka þjóð, enda segir þá hv. þm. A–Húnv.: Ágætt, gekk vel.

Ég held þess vegna, að reykvísk alþýða sé búin að heyra nóg af því, hvernig Framsfl. segi fjárplógsstarfseminni stríð á hendur og heyi það stríð. Ég held, að við 10 árum eftir Rannveigargrátinn ættum ekki að fá að heyra það allt saman aftur. Hitt kann vel að vera, að það séu ýmsir menn innan Framsfl., sem vilja heyja það stríð. Þá er bezt fyrir þá að byrja á því stríði innan Framsóknar. Það er þar, sem ánetjunin við auðvaldið í Reykjavík er. Það er þar, sem tengslin eru. Það er bezt fyrir þá menn innan Framsfl. og hans fylgjendur, sem vilja berjast á móti auðvaldinu á Íslandi, að byrja sína baráttu í Framsfl. sjálfum. Með þeirri stefnu, sem verið hefur ráðandi þar í 17 ár og raunar lengur, þá er auðséð, hvernig fer, á meðan þeim mönnum, sem þar hafa haft forustu og ráðið úrslitum, er ekki bylt frá völdum þar. Ég hef sagt það hér áður, og ég minni á það enn, að hverja einustu stjórn sem Framsfl. í yfir 20 ár hefur myndað með verkalýðsflokki eða verkalýðsflokkum í landinu og jafnvel þótt Sjálfstfl. hafi verið í þeirri stjórnsetu líka, allar slíkar stjórnir hefur Framsfl. sprengt á því að heimta gerðardóma í einu eða öðru formi gegn verkalýðshreyfingunni eða lögbjóða launalækkanir. Allar saman hefur hann sprengt þar. Og það er bezt fyrir þá framsóknarmenn, sem jafnvel sjálfir kynnu að trúa því núna, að Framsfl. væri að ganga í einhverja endurnýjun lífdaganna, að gera upp sakirnar gagnvart þessum flokki og við þá foringja Framsóknar, sem þessari pólitík hafa stjórnað.

Ég held þess vegna, að Framsfl., sem hefur fengið nokkuð mikið að hafa orðið einn hér í þessum umr. og kannske verið farinn að telja sjálfum sér trú um, að það væri hægt fyrir hann að gleyma sinni fortíð og fá þjóðina til að gleyma henni, — ég held, að hann verði að vakna upp við vondan draum, hann verði að líta í sinn aldarspegil og sjá, hvernig hann litur sjálfur út og sjá, hvernig hann hefur gert, hvernig hann hefur farið að á undanförnum áratugum og fyrr, en hann gerir iðrun og yfirbót í því efni, þá munu menn ekki trúa honum.

Ég sagði, að grundvallarmótsetningin í íslenzku þjóðlífi væri á milli auðmannastéttarinnar annars vegar og launþeganna, fyrst og fremst verkamannastéttarinnar, hins vegar. Það samsvarar því líka, að grundvallarmótsetningarnar í stefnum í íslenzku þjóðfélagi eru milli auðvaldsskipulagsins eða kapítalismans annars vegar og sósialísmans hins vegar. Og hvernig sem við reynum að loka okkar augum fyrir þessu, þá komumst við aldrei hjá því. Það er ekki til neins eins og strúturinn að stinga höfðinu í sandinn og halda, að hann sjái ekki, hvað það sé, sem gerist í kringum hann.

Það er rétt hjá hv. 7. þm. Reykv., að Sjálfstfl. segist vilja stefna að frjálsri verzlun. Ég veit ekki, að hve miklu leyti hann meinar alvöru með því. Frjálsa verzlunin er orðin all gamaldags fyrirbrigði og víðast hvar innan auðvaldsskipulagsins sjálfs eru það voldugir auðhringar, sem risið hafa upp, sem meira eða minna hafa troðið þá gömlu frjálsu samkeppni niður. Það má náttúrlega hver hafa sína trú í slíku og reyna að berjast fyrir því. Mín skoðun er sú, að með svokallaðri frjálsri verzlun mundum við Íslendingar aðeins bíða stórfellt tjón.

Framsfl., eins og hv. 7. þm. Reykv. vildi láta líta út, hefur verið að vísu á annarri skoðun, en Sjálfstfl. þarna, en hjá Framsókn hefur þetta takmarkazt við neikvæð höft, við það að hafa eftirlit með verzluninni meira eða minna skriffinnskukennt, meira eða minna hlutdrægt, meira eða minna óskynsamlegt, en stundum e.t.v. sem ofur lítið vit var í.

Það, sem við sósíalistar eða við Alþb.–menn viljum í þessum efnum, er jákvæð, skapandi skipulagning í atvinnulífinu og verzlunarlífinu, áætlunarbúskapur þjóðarinnar, þar sem hugsað sé fyrir fram um, að hverju eigi að einbeita hennar kröftum, m. a. hennar fjárfestingu. Við viljum ekki stjórnleysi á athafna- og verzlunarsviðinu og þar erum við að vísu í algerri mótsetningu við Sjálfstfl.

Engu að síður skal ég ekki neita Sjálfstfl. um það, að hann hefur, þegar mikið hefur legið við, tekið tillit til þessara skoðana, leið tillit til þeirra sterku raka, sem í þeim felast. Hann gerði það hér á árunum t.d. með stofnun nýbyggingarráðs á sinni tíð. Eitt af þeim fyrstu verkum, sem gert var, eftir að Framsókn og Sjálfstfl. tóku höndum saman, var að afnema allt slíkt. Við héldum því fram, að í vinstri stjórninni höfðum við átt að stýra að þessu og það er eitt af stefnumálum bæði Alþfl. og Sósfl. og hefur verið á kosningastefnuskrá Alþb. að berjast fyrir slíkum áætlunarbúskap. Gagnvart Framsfl. var aldrei við þetta komandi. Það mátti ekki hugsa þessa hugsun út, hvernig íslenzk þjóð gæti bezt búið að sínum auðlindum, hvernig bezt væri hægt að hagnýta þessar auðlindir, hvernig bezt væri hægt að byggja upp m.a. stórrekstur um allt Ísland, sem gerði landið sem byggilegast fyrir þá, sem í því búa, en gæfi þeim um leið líka sem bezt kjör. Þessu var alltaf neitað. Ég skal viðurkenna, að í þessari hugmynd eru sósíalistísk áhrif, en áhrif, sem eru orðin það sterk, ekki bara hér heima hjá okkur á Íslandi, heldur líka meira eða minna um allan heim, að jafnvel þótt eitt þjóðfélag starfi áfram á borgaralegum grundvelli, á grundvelli auðvaldsskipulags, þá reyna menn, ef menn hafa einhverja forsjálni, og þá sérstaklega hjá smáum þjóðum, þá reyna menn að taka upp meira eða minna af slíkum áætlunarbúskap, til þess að litíl þjóð, ekki sízt ef hún væri fátæk, gæti hagnýtt það fé, sem hún hefur yfir að ráða og það vinnuafl, sem hún hefur yfir að ráða, þannig að allt hagnýtist sem bezt, — svo að maður tali í líkingum, eins og hv. þm. A-Húnv. var með hér áðan, að hún reyndi að búa vel á sinni jörð, á sinni fósturjörð, að hún reyndi að hafa yfirsýn yfir allan sinn búskap, en væri ekki eins og bóndi, sem ekkert vissi, hvað vinnumennirnir væru að gera úti á engjum, þegar aðrir væru eitthvað að vinna heima á túni. Það er þetta, sem íslenzku þjóðina hefur sérstaklega vantað. Það eru spor áfram í þessa átt, sem þyrfti að stíga og vinstri stjórnin því miður bar ekki gæfu til að stíga, þó að margt gott hefði hún gert, en meira, ef Framsfl. hefði ekki verið svo sterkur í henni, að þótt hann hefði þá lægsta atkvæðatölu af þeim þrem flokkum, sem að henni stóðu, að nafninu til, þá hafði hann flesta þm. og vildi í krafti þess alltaf fá að ráða og réð of miklu. Ég varaði Framsfl. við því, einmitt sérstaklega vorið 1958, að beita ekki þessu valdi sínu af þröngsýni og heimsku, heldur sýna forsjálni og tillitssemi og ég var áður búinn að vara forustumenn Framsóknar við slíku, utan þingsins. En það var þá eins og oftar, að þessir forustumenn Framsóknar báru ekki gæfu til þess að læra neitt af sínum gömlu misfellum, hvorki í sambandi við kjördæmamálið né önnur mál. Þeir báru ekki gæfu til þess að taka neitt tillit til aðvarana og ábendinga, sem þeim voru gefnar af góðum hug og mér dettur í hug, fyrst hv. þm. N-Þ. (GíslG) kemur hér inn, það sem hann sagði, þegar hann var að kvarta hér um, hvað þeir þrír flokkar, sem standa saman að kjördæmabreytingunni núna, tækju lítil tillit til Framsóknar nú. Hann sagði: Ég skil ekki þessa óbilgirni. — Ja, ég verð að segja það: Ég skildi oft ekki þessa óbilgirni hjá Framsókn á tíma vinstri stjórnarinnar, því í ósköpunum þessi flokkur hafði ekki þó a.m.k. vit til þess að slaka til gagnvart verkalýðsflokkunum, þó að hann hefði kannske ekki mikinn vilja. Framsfl. hafði tækifæri til þess að sýna, að hann væri laus við slíka óbilgirni, en hann gerði það ekki. Hv. þm. N-Þ. talaði um það núna í sambandi við afgreiðslu á kjördæmamálinu, að það væri ekkert reynt til samkomulags. Það var nú eitthvað annað, þegar við vorum að reyna samkomulag við Framsfl. um kjördæmamálið. Í tvö og hálft ár hafði Framsfl. möguleika til að ganga að samkomulagi. Hann hafði verið beðinn um og það hafði verið brýnt fyrir honum, hvað það væri nauðsynlegt að gera þetta, strax í júlí 1956, þegar vinstri stjórnin var mynduð. hvað gerir Framsfl. allan tímann? Ja, hann gerir einmitt það, sem hv. þm. N-Þ. var að ásaka okkur, þessa þrjá flokka, sem standa að stjórnarskrárbreytingunni fyrir, hann reyndi ekkert til samkomulags.

Sannleikurinn er sá: samkomulag var einmitt reynt við Framsfl. í kjördæmamálinu. Ég veit ekki betur, en Sjálfstfl. hafi meira eða minna reynt að semja við hann í mörg ár og hv. þm. A-Húnv. var að segja það einmitt hér áðan, að það hafi nú eiginlega verið meiri klaufarnir, þessir forustumenn Framsóknar, að semja ekki við Sjálfstfl. þá. Og hvað gerist svo? Þegar þeir tveir ná ekki samningum, hefur Framsfl. möguleika til þess að semja við okkur og Alþfl. í 21/2 ár. Nei, það væri synd að segja, að það hefði ekkert verið reynt til samkomulags. Framsfl. hefur aldeilis haft möguleika til samkomulags í þessum hlutum. En Framsfl. bara skilur aldrei nein tímanna tákn og tekur aldrei tillit til neinna aðvarana, lærir aldrei neitt af neinu, sem gerist, heldur hagar sér eins og einhver forréttindaaðall, sem getur setið endalaust, þannig að eitt atkvæði hans fylgjenda gildir eins og þrjú annarra. En það er ekki hægt í þjóðfélagi, sem stefnir í átt til lýðræðis, það er ekki mögulegt.

Þess vegna var það ekki óbilgirni, sem var sýnd af okkar hálfu í þessu. Það skorti ekki á, að það væri reynt samkomulag. Framsfl. sleppti öllum tækifærum til samkomulags á þeim tíma, sem hann hafði skriflega skuldbundið sig til þess að gera þetta samkomulag og ljúka þessu máli. Þess vegna er það fyrir þá framsóknarmenn, sem eru óánægðir með sína foringja, eins og mér heyrðist jafnvel hv. þm. A-Húnv. vera, að gera upp sakirnar við þá, að hafa ekki svona klaufa fyrir foringja áfram, svo að ég noti orðin, sem hv. þm. A-Húnv. notaði, þegar hann var að tala um klaufaskap Framsóknar. Hann notaði að vísu miklu sterkari orð í Austur-Húnavatnssýslu.

Því segi ég það: Sú stefna, sem Framsókn hefur framkvæmt á undanförnum áratugum, er ekki stefna fyrir alþýðuna í dreifbýlínu til þess að sameinast um. Fyrir framsóknarmennina, þá sem eitthvað meina með því að segjast vera til vinstri, er vissulega tími til kominn að sýna það í verki, að þeir meini eitthvað alvarlegt með slíku, meini eitthvað meira, en að láta argasta afturhaldið í Framsókn nota sig í kosningum til þess að reyna að blekkja fólkið, til þess að segja fyrir kosningar fjárplógsstarfseminni stríð á hendur og margfalda svo fjárplógsstarfsemina með Sjálfstfl. eftir kosningar.

Ég efast ekki um, að það séu ýmsir framsóknarmenn, sem meina það alvarlega að vilja berjast við auðvald og auðvaldsskipulag. Þá eiga þeir að snúa sér að framsóknaríhaldinu. Það eru hæg heimatökin, bezt að byrja þar og láta ekki Framsfl. þá oftar fá tækifæri til þess að eyðileggja vinstri stjórnir á Íslandi og vera niðurdrep fyrir vinstri stefnu.