12.08.1959
Sameinað þing: 10. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 553 í B-deild Alþingistíðinda. (275)

14. mál, skattur á stóreignir

Forsrh. (Emil Jónsson):

Herra forseti. Spurt er, hvaða ráðstafanir ríkisstj. hafi gert til þess að framkvæma þann vilja síðasta Alþingis að kaupa í samráði við jarðhitadeild raforkumálaskrifstofunnar jarðbor, sem notaður verði til jarðhitarannsókna á Norðurlandi, sbr. heimild í 22. gr. XIII í fjárlögum 1959?

Það er rétt, að í fjárlögum yfirstandandi árs er heimild til þess að kaupa, eins og í fsp. stendur, í samráði við jarðhitadeild raforkumálaskrifstofunnar jarðbor í þessu skyni. Strax eftir að fjárl. höfðu verið samþ., var jarðboranadeild eða jarðhitadeild raforkumálaskrifstofunnar, eins og hún heitir víst, falið að undirbúa þetta mál, safna um það gögnum og gefa ráðuneytinu síðan um það skýrslu, þegar þessara upplýsinga hefði verið aflað. Skýrslu um málið hef ég ekki enn fengið, en bráðabirgðaskýrslu, dags. 7. ágúst, hef ég fengið, sem er svo hljóðandi:

„Undanfarna mánuði hefur jarðhitadeildin haft til athugunar kaup á jarðbor til djúpborana eftir heitu vatni, einkum á Norðurlandi. Leitað hefur verið upplýsinga um tæknileg atriði og kaupverð hentugra tækja víða í Evrópu og í Bandaríkjunum. Hefur verkfræðingur frá deildinni dvalizt erlendis í þessu skyni. Deildin telur, að nú megi leggja fram ákveðnar till. um kaup á slíkum bor og tilheyrandi rannsóknartækjum, sem nauðsynleg eru til þess að auka möguleika á árangri af djúpborunum yfirleitt. Gert er ráð fyrir jarðbor, sem borað gæti niður í 1.200 m dýpi með 100 mm víðum krónum, en á minni dýpt mætti bora víðari holur, eða allt að 200 mm víðar. Heildarkaupverð jarðborsins og umræddra tækja er um 3.9 millj. kr. en afgreiðslufrestur um fjórir mánuðir.

Hér skal þess getið, að deildin telur, að gera verði ráð fyrir verkefnum fyrir umræddan jarðbor fyrst og fremst á Húsavík, Ólafsfirði, Sauðárkróki og Selfossi, en á síðast nefndum þrem stöðum eru þegar komnar hitaveitur, sem auka verður verulega á næstunni. Þá mun rétt að gera ráð fyrir djúpborunum með sama jarðbor til þess að rannsaka möguleika á heitavatnsvinnslu í nágrenni Akureyrar og jafnvel Siglufjarðar og Dalvíkur. Borgarnes, Akranes og Keflavík eru einnig hugsanlegir staðir, en um möguleika þar skal að sinni ekkert fullyrt. Árlegur rekstrarkostnaður borsins er áætlaður 3–5 millj. kr., allt eftir vinnutilhögun og tæknilegum aðstæðum á hinum ýmsu stöðum.“

Þetta er dags. 7. ágúst 1959 og undirritað: Gunnar Böðvarsson.

Eins og skýrslan ber með sér, telur deildin, að nú megi leggja fram ákveðnar till. Þessar till. hafa ekki borizt mér, annað en það, sem í þessari bráðabirgðaskýrslu felst, en af henni virðist vera ljóst, að jarðboranadeildin sé komin að ákveðinni niðurstöðu um gerð borsins og hafi þær fregnir að færa, að hann kosti tæpar 4 millj. kr. og árlegur rekstur um 5 millj. Hvað svo gert verður í þessu máli, get ég ekki sagt á þessu stigi, vegna þess, eins og ég sagði, að skýrslan hefur ekki borizt mér í hendur. En ef tölurnar verða eitthvað svipaðar þessu og ég tala nú ekki um, ef þær verða eitthvað hærri, þá þykir mér ekki ólíklegt, að ríkisstj. muni leggja málið að nýju fyrir hv. fjvn.