12.08.1959
Sameinað þing: 10. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 554 í B-deild Alþingistíðinda. (276)
14. mál, skattur á stóreignir
Matthías Á. Mathiesen:
Herra forseti. Hæstv. forsrh. hefur svarað fsp. hv. þm. S-Þ. á þskj. 13 varðandi jarðbor, sem notaður yrði til jarðhita rannsókna á Norðurlandi. Ég vil í þessu sambandi taka undir orð hv. þm. S-Þ. um þá miklu nauðsyn, sem er á því að afla slíkra stórvirkra tækja til rannsókna á jarðhitasvæðum landsins.
Eitt af mest aðkallandi verkefnum í okkar þjóðfélagi í dag er að rannsaka til hlítar jarðhitasvæði landsins svo og skilyrðin til þess að hagnýta þau, bæði til hitaveitna, efnaiðnaðar og raforkuvinnslu. Í álitsgerðum, sem sérfræðingar jarðboranadeildar ríkisins og aðrir sérfræðingar hafa látið frá sér fara, eru tekin til meðferðar þau atriði, sem ég nú gat um varðandi nýtingu jarðhitasvæðanna og segir þar m.a., að hitaveitur séu mjög arðbær fyrirtæki, markaður þeirra öruggur og áhætta hverfandi. Hitaveitur spara þjóðinni árlega tugi millj. kr. í erlendum gjaldeyri og verða þær því þannig að teljast þjóðhagslega heilbrigð fyrirtæki. Jafnframt nýtingu varmans á þennan hátt hefur á síðari árum verið rætt og ritað ýtarlega og reynt að rannsaka nokkuð um nýtingu varmans með tilliti til efnaiðnaðar og þá sérstaklega í sambandi við sjóefnaverksmiðju og annan kemískan iðnað. Þá hefur og verið rætt um byggingu raforkuvera og þó sérstaklega með tilliti til þess að brúa bilið milli fullvirkjunar Sogsins og annarra stærri vatnsfallsvirkjana.
Það, sem hér hefur verið sagt, svo og sú staðreynd, að landið er auðugt af jarðhita, styður mjög að því, að allt sé gert, sem unnt er, til þess að rannsaka til fullnustu helztu jarðhitasvæðin og unnið verði að því í vaxandi mæli að gera ýtarlegar áætlanir um hagnýtingu jarðhitans með tilliti til notagildis fyrir þjóðfélagsþegnana, gjaldeyrissparnaðar og hugsanlegrar útflutningsframleiðslu.
Þær frumrannsóknir, sem fram hafa farið á einu stærsta jarðhitasvæði landsins, Krýsuvík, hafa sýnt, að þar séu fyrir hendi einhver hagkvæmustu skilyrðin til þess að framkvæma það, sem ég hef lauslega minnzt á í þessari stuttu aths. minni við þær umr., sem hér fara fram. Jarðhitarannsóknir þær, sem fram hafa farið í Krýsuvík, hafa verið framkvæmdar með hinum veigaminni tækjum og hafa þeir sérfræðingar, sem um mál þessi hafa fjallað, bent á, að nauðsyn beri til víðtækari rannsókna með stórvirkari tækjum.
Þegar fest voru kaup á hinum stórvirka jarðbor í Bandaríkjunum, gaf atvmrn. út fréttatilkynningu hinn 10. maí 1957, þar sem skýrt er frá kaupum jarðbors á vegum ríkissjóðs og bæjarsjóðs Reykjavíkur. Í niðurlagi þessarar fréttar segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Borinn mun væntanlega koma hingað til landsins nú á miðju sumri, og þá verður hafin borun eftir gufu til viðbótar hitaveitu fyrir Reykjavík og Hafnarfjörð. Verður sú borun væntanlega á Krýsuvíkursvæðinu, en af öðrum gufusvæðum, sem borun er fyrirhuguð á, má sérstaklega nefna Námafjall við Mývatn, Hveragerði, Hengilssvæðið og Reykjanes.“
Það hefur því frá öndverðu verið ætlunin, að hinn stórvirki jarðbor yrði m.a. sendur til Krýsuvíkur, enda lágu fyrir, eins og ég gat um áðan, álitsgerðir sérfræðinga þar um.
Í Hafnarfirði hefur um langan tíma ríkt mikill áhugi á hagnýtingu jarðhitans í Krísuvík og fullnaðarrannsóknum jarðhitasvæðisins og þá ekki hvað sízt með tilliti til hitaveitu. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur m.a. haft þetta mál á dagskrá og hinn 20. maí 1957 var m.a. samþykkt í bæjarráði Hafnarfjarðar till. þess efnis, að bæjarstjóra yrði falið að upplýsa, með hvaða kjörum og hvenær hægt væri að fá borinn til borunarframkvæmda í Krýsuvík. Þess var og óskað, að þessari athugun yrði hraðað og ritaði bæjarstjórinn stjórn gufuborsins bréf þar að lútandi degi síðar.
Nú eru liðin rúm tvö ár, frá því að þessi bréfaviðskipti fóru fram og um tvö ár, frá því að jarðborinn kom til landsins. Er nú svo komið og mér er um það kunnugt, að hæstv. ríkisstj. hefur gefið Hafnarfjarðarkaupstað kost á að fá hinn stórvirka jarðbor til borana í Krýsuvík.
Þar eð mál þetta, eins og ég áður gat um, er mikið hagsmunamál Hafnfirðinga, vildi ég mega varpa þeirri spurningu fram til hæstv. forsrh., ráðh. raforkumála, hvort þegar hafi verið gerðar ráðstafanir til, að borinn verði sendur suður til Krýsuvíkur nú á næstunni, og ef svo er, hvenær borinn sé þá væntanlegur til Krýsuvíkur. Ég taldi ekki ástæðu til þess að bera þessa spurningu fram sem sérstaka fsp. (Forseti: Hv. þm. er nú búinn að tala lengur en —) Ég bið afsökunar, en ég skal stytta mál mitt. — Ég vonast til þess og veit, að þar sem hæstv. forsrh. er máli þessu kunnugur, upplýsi hann um þessi atriði.