12.08.1959
Sameinað þing: 10. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 556 í B-deild Alþingistíðinda. (278)

14. mál, skattur á stóreignir

Forsrh. (Emil Jónsson):

Herra forseti. Hv. fyrirspyrjandi, þm. S-Þ., taldi, að ríkisstj. hefði ekki haft hraðan á um afgreiðslu þessa máls, og lauk sinu máli með því, að hann óskaði eftir, að við tækjum nú í okkur kjark og afgreiddum málið, því að það væri vinsælt mjög og gott í þeim skilningi, að ríkisstj. mundi geta aukið vinsældir sínar, ef hún afgreiddi málið. En það þarf fleira að athuga en það, hvort mál er vinsælt eða óvinsælt. Það þarf líka að athuga í hverju máli, hvað skynsamlegt er að gera og hvað óskynsamlegt. Ég teldi t.d. mjög óskynsamlegt að ráðast í afgreiðslu máls, án þess að það væri fyllilega upplýst, hvernig það lægi fyrir. Ég taldi, að það væri réttur gangur á þessu máli að afhenda það þegar í upphafi og strax eftir að Alþ. hafði afgreitt heimildina til kaupanna með fjárlagaafgreiðslunni s.l. vor til jarðhitadeildar raforkumálaskrifstofunnar og láta hana kynna sér, hvað hentugt væri að gera í málinu og hvernig till. yrði bezt framkvæmd. Náttúrlega er enginn vandi fyrir ráðuneytið að fara til útlanda og kaupa strax bor, ef alveg væri látið á milli mála, hvernig sá bor yrði og hvernig sú þjónusta yrði bezt veitt. En jarðhitadeild raforkumálaskrifstofunnar taldi nauðsynlegt að rannsaka tæknileg atriði þessu viðvíkjandi, ekki einasta í Evrópu, heldur líka í Bandaríkjunum, og verkfræðingur frá deildinni hefur dvalizt erlendis í þessu skyni. Frá skrifstofunni er ekki enn komin skýrsla um málið, önnur en sú, sem ég hef lesið hér upp, svo að ég tel, að það hafi ekkert verið vanrækt af hálfu ríkisstj., siður en svo, heldur farin sú eina leið, sem fær var, að reyna að afla sér sem fyllstra og beztra upplýsinga í málinu.

Eins og fram kemur í þessari bráðabirgðaskýrslu jarðhitadeildarinnar, er gert ráð fyrir því, að borinn kosti um 4 millj. og rekstur hans kosti upp undir 5 millj. kr. á ári, og ég lét mér þau orð um munn fara, að ég mundi telja eðlilegt að gefa Alþingi kost á því aftur að endurnýja þessa heimild sína, miðað við þær tölur, sem fyrir lægju, því að þær lágu alls ekki fyrir, þegar heimildin var veitt og um leið að gera ráðstafanir til þess, að þessara peninga væri aflað, sem yrðu þá væntanlega um 9 millj. kr. á næsta ári og síðar upp undir 5 millj. á ári. Þetta eru mjög veruleg útgjöld og verður ekki unnt að inna af hendi án þess, að einhverra tekna sé aflað á móti. Það hygg ég að hv. fyrirspyrjandi og hans flokkur hafi manna mest og bezt — vil ég segja — undirstrikað á þeim tímum, sem þeir hafa farið með stjórn fjármála ríkisins, þannig að ég tel þessar upphæðir vera komnar upp í það, að það þurfi að sjá fótum sínum forráð um það, hvernig þeirra er aflað.

Hv. þm. Hafnf. fór hér út í allt annað mál, sem ekki liggur hér fyrir nú, en kannske má þó segja, að nokkur skyldleiki sé á milli. Það, sem er hér um að ræða, er kaup á ákveðnum bor til þeirra staða, þar sem sá stóri bor, sem hann talaði helzt um, er ekki flytjanlegur eða talið óheppilegt að flytja hann til. Ég geri ráð fyrir því, að framkvæmd mála með þennan stóra bor, sem ríkið nú á og rekur, verði sú, að hann verði fyrst og fremst notaður á þeim stóru jarðhitasvæðum, sem vænta má mikils teknísks árangurs af, bæði til efnavinnslu, eins og hann sagði, til upphitunar í stórum stíl og annars þess háttar. En þeim bor, sem hér um ræðir og spurt er um af hv. þm. S-Þ., er ekki ætlað annað verkefni en það, sem hinn, sá stóri, er ekki talinn heppilegur til.

Ég er hv. þm. Hafnf. mjög sammála um, að það er mjög eðlilegt og nauðsynlegt að rannsaka jarðhitasvæðin. Ég tel, að með tilkomu hins nýja bors og alveg sérstaklega með tilkomu hinna nýju tækja, sem fengin voru til þessa bors nú í vor, hafi verið sköpuð skilyrði til þess að gera þessar rannsóknir miklu ýtarlegri, en áður var, því að með sérstakri fjárveitingu, sem veitt var á síðustu fjárlögum, var ákveðið að panta til hans tæki eða áhöld, sem gera honum kleift að bora niður í 2.000 m dýpi, í staðinn fyrir að áður gat hann ekki borað nema 600–700 m. Þetta er stór framför og á að gera honum kleift að gera þessar rannsóknir miklu örugglegar og betur, en hann gerði áður. Það er rétt, að ég hef léð máls á því við bæjarstjórann í Hafnarfirði, að þegar tími Reykjavíkur til afnotanna, sem hún á rétt á að nota borinn á, er liðinn, þá verði hann fluttur suður til Hafnarfjarðar eða suður til Krýsuvíkur og verði þá þetta, sem hann kallaði eitt stærsta jarðhitasvæði landsins — og er það, tekið til rannsóknar með þessum stóra bor, sem nú þegar er fyrir hendi. En það er út af fyrir síg allt annað mál og kemur ekkert því við, sem hér er verið að ræða.