12.08.1959
Sameinað þing: 10. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 558 í B-deild Alþingistíðinda. (279)

14. mál, skattur á stóreignir

Matthías Á. Mathiesen:

Herra forseti. Ég vil aðeins þakka hæstv. forsrh. fyrir svör hans hér. Ég gat um það í minni aths., að þetta fælist að sjálfsögðu ekki í þeirri fsp., sem hér lá fyrir, en þar sem ég ætlaði kunnugleika hæstv. forsrh. slíkan á þessum málum, þá taldi ég rétt, ef hann vildi svo vera láta, að hann upplýsti Alþingi um það, hvenær Hafnfirðingar ættu von á jarðbor ríkisins og Reykjavíkurbæjar. Hann hefur upplýst, að það yrði að loknum þeim tíma, sem Reykjavíkurbær réði yfir honum núna og ég þakka honum fyrir hans svör.