04.08.1959
Neðri deild: 9. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 205 í B-deild Alþingistíðinda. (31)
1. mál, stjórnarskipunarlög
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Það er ánægjulegt að fá tækifæri til þess að ræða dálítið við hv. framsóknarmenn hérna í deildinni einmitt um þau stjórnmál, sem þessar umræður eru nú farnar að koma inn á og vissulega ekki að ófyrirsynju.
Ég ætla að þyrja á því, sem hv. þm. A-Húnv. (BP) ræddi um hér áðan. Mér sýndist nú satt að segja rétt eins og búið væri að kippa honum dálítið meira inn á framsóknarlínuna í millibilinu. Það skyldi þó aldrei ætla að fara fyrir honum eins og hefur farið fyrir flestum þeim framsóknarmönnum, sem hafa verið með einhvern uppsteyt, áður en þeir komust inn á þing, að þegar þeir voru komnir hér undir handleiðslu Hermanns og Eysteins, þá var ekki mikið eftir af þeim eftir nokkurn tíma? Það er svo undarlegt með það, að í hvert einasta skipti sem það kemur fyrir, að framsóknarmennirnir hafa, hvort er nú til hægri eða vinstri, einhverjar dálitlar tilhneigingar til þess að vera dálítið sjálfstæðir menn, að ef þeir verða fyrir þeirri ógæfu að lenda inn á þingi, þá er ekki að því að spyrja, að um leið er þessi einræðiskló í Framsfl. búin að hremma þá, búin að stilla þá af, svo að upp frá því taka þeir ekki til máls í þinginu, varla einu sinni á þingflokksfundunum hjá Framsókn, hvað þá að þeir fái nokkurn tíma að fylgjast með eða ráða nokkrum sköpuðum hlut, sem gerist þar. Einu sinni hef ég orðið var við það í þessi rúm 20 ár, sem ég hef setið hérna á þingi, að framsóknarþingmenn hafi haft tilhneigingu til þess að fara að hugsa um málefnin og það var þegar vinstri stjórnin sprakk. Megnið af framsóknarmönnum og þm. Framsóknar líka var hlynnt vinstri stjórninni og vildi vinstri stefnu. Og það kom alveg aftan að þeim, þegar einn góðan veðurdag er Eysteinn Jónsson, hv. 1. þm. S-M, búinn að sprengja stjórnina. Og þeir skildu ekkert í þessu og fóru að hugsa, tóku upp á þessum skramba, fóru bara að hugsa sjálfstætt án þess að spyrja hv. 1. þm. S–M. (Gripið fram i: Á þetta að vera fyndið?) Nei, þetta er því miður bara sannleikur. En mér sýnist, að sú ræða, sem hv. þm. A-Húnv. hélt hér áðan og var tilkynnt alveg sérstaklega úr forsetastóli að mundi verða haldin í kvöld, sem annars er óvenjulegt hér, hafi valdið mönnum mjög miklum vonbrigðum. Menn héldu kannske, að hann mundi fara að segja til syndanna, gefa t.d. lýsinguna á því, þegar Hermann stökk í land af þjóðarskútunni, þegar hún strandaði, með Eystein undir arminum, — þessar skemmtilegu lýsingar, sem urðu landsfrægar og hv. þm. A-Húnv. var að gefa á kosningafundunum. En það kom ekkert af þessu, ósköp meinleysisleg ræða, þar sem verið var að reyna að sýna, að hann ætlaði að vera gott barn.
Hann byrjaði með nokkrar almennar hugleiðingar, sem hv. 1. þm. S-M. líka kom hér inn á, á eftir, — hugleiðingar um gróðann og verðbólguna og gróðann af henni. Og hvorugur þessara hv. þm. Framsóknar kemur að aðalatriðinu í sambandi við þetta. Hvað er verðbólga? Hvers konar pólitískt tæki er verðbólgan í okkar þjóðfélagi? Verðbólgan er svar stóratvinnurekendanna í þjóðfélaginu, auðvaldsins í þjóðfélaginu við launahækkunum verkalýðsins, þegar auðmannastéttinni hefur mistekizt að sigra verkalýðinn í átökunum í verkföllum. Auðmannastéttin hefur ríkisvaldið í sínum höndum. Auðmannastéttin ræður Framsókn og Sjálfstfl., sem lengst af hafa verið í meiri hluta á Íslandi og lengst af hafa farið með ríkisstj. síðustu áratugina. Auðvaldið notar þetta ríkisvald til þess, þegar það ber lægri hlut fyrir verkamönnunum í verkfallsbaráttunni, að stela af þeim með því að beita ríkisvaldinu a.m.k. að mjög miklu leyti því, sem þeir hafa áunnið sér í verkfallsbaráttunni, með því að hækka verð á öllum vörum. Það er farið öfugt að við það, sem sagt var í vísunni forðum: Þú hefnir þess í héraði, sem hallaðist á Alþingi. — Þegar hallast fyrir auðvaldinu úti í lífsbaráttunni utan veggja þessarar stofnunar, þá nota þeir sitt vald hér og sína meirihlutaflokka hér til þess að setja verðbólguna af stað. Verðbólgan er sameiginleg svikamylla Sjálfstfl. og Framsóknar, sem hefur verið rekin hér í 20 ár til þess að ræna af verkalýðnum öllum ávöxtum kaupgjaldsbaráttunnar hjá honum. Það er engum öðrum um verðbólguna að kenna, en þessum herrum.
Þegar rannsóknardómari stendur frammi fyrir því að rannsaka glæp, sem framinn er, þá byrjar hann venjulega með því að spyrja: Hverjum var þetta til góðs? Og eins mun þjóðin gera, þegar hún sér í gegnum þá svikamyllu, sem þarna hefur verið og þá hræsnisblæju, sem yfir hana hefur verið breidd. Hún mun spyrja: Hverjir voru það, sem græddu á þessari verðbólgu?
Hv. þm. S-M. kom hér dálítið inn á það áðan og talaði ekki nema um annan partinn af þeim. Það eru fleiri, sem skulda, en núverandi milljónamæringar, eins og Einar Sigurðsson eða slíkir, þó að þeir hafi sérstaklega gert þessa verðbólgupólitík Sjálfstfl. og Framsóknar að fjáröflunaraðferð fyrir sig. Það eru fleiri, sem skulda. Og Framsfl. hefur ekki hvað sízt lagt upp úr því að veita þeim fyrirtækjum, sem hann þykist sérstaklega bera fyrir brjósti, aðstöðu í bönkunum til að skuld, og það má mikið vera, ef það skiptir ekki hundruðum milljóna, sem þau fyrirtæki, sem Framsfl. sérstaklega ber fyrir brjósti, skulda þar, ekki síður en það, sem milljónamæringarnir í Reykjavík skulda. Það er samvinnan á milli þessara aðila um verðbólgupólitíkina, um þessa svikamyllu til þess að svíkja af verkalýðnum kauphækkanirnar, sem hefur einkennt stjórnmálaástandið á Íslandi í 20 ár.
Við höfum meira að segja farið út í verkföll til þess að reyna að stöðva verðbólguna, til þess að reyna að knýja fram verðlækkanir. Þeir, sem svíkja á krónunni í þessu, það eru þessir herrar, sem þarna hafa ráðið, herrarnir, sem hafa haft helmingaskipti um að græða á verðbólgunni, helmingaskipti um að lána út úr bönkunum á undanförnum 20 árum, lána milljónirnar og milljónatugina og hundruð milljóna til sinna fyrirtækja og lækkað síðan sameiginlega gengið, þegar verðbólgan hefur ekki gengið nógu hratt að þeirra áliti þess á milli. Svo koma þessir menn, eins og jafnvel maður, sem er búinn að vera fjmrh. í 25 ár, og virðist ekki vita þetta. Er von, að þjóðinni sé stjórnað og fjármálum hennar af nokkru viti, á meðan menn, sem eru svona vitlausir, eiga að stjórna, — menn, sem hafa ekki hugmynd um grundvallaratriði í íslenzkri fjárhagsþróun á síðustu áratugum?
Hv. þm. A-Húnv. kom svo með það, að við hefðum unnið stórvirki 1956–58. Jæja, mikið var. Batnandi mönnum er bezt að lifa. Hann hefur batnað þó nokkuð frá því í fyrri ræðunni. Þá sagði hann frá 1953–55, þá hefði allt gengið vel, meðan ekki nokkur skapaður hlutur var gerður til þess að byggja upp úti á landi, á meðan þetta frá 2.500 niður í 15.00 menn voru í hernámsvinnunni.
Þá gekk vel, segir hv. þm. A-Húnv. Þá voru fleiri menn í hernámsliðinu suður á Keflavíkurflugvelli, en nokkru sinni áður. Árið 1952 var því um líkt ekki neitt, 1953, 1954 og 1955 var kraftur í því. Þá gekk vel, sagði hv. þm. A-Húnv. áðan og hv. 1. þm. S-M. hefur líklega áminnt hann, vegna þess að hann var einmitt að halda því hér fram í sinni ræðu, að það hefði verið stefna Framsóknar á þessum tíma að draga úr þessum hernámsframkvæmdum. Þær voru mestar einmitt þennan tíma. Þetta eru árin 1953-55. Þetta eru ár hernámsframkvæmdanna í stórum stíl. Það er fyrst þegar vinstri stjórnin tekur við og eftir ársbyrjun 1957, sem þetta fer niður í 500 menn, sem starfa hjá hernámsliðinu.
Það er gott, að hv. þm. A-Húnv., sem komst á þing í Austur–Húnavatnssýslu, að því er heyrzt hefur með því að segja sjálfstæðismönnum þar, að hann mundi ganga í Sjálfstfl. á eftir, því að auðvitað hefði hann alltaf í hjarta sínu verið sjálfstæðismaður, — það er ákaflega gott, að hann er farinn að átta sig á því, að vinstri stjórnin gerði dálítið af uppbyggingu og þetta gekk satt að segja ekki eins vel, þegar helmingaskiptin voru milli Framsóknar og íhaldsins, eins og hann augsýnilega hélt, eftir að hann kom út úr kosningabaráttunni þar norður frá. En af því að það var einn fræknasti kosningasigurinn, sem Framsókn vann í þessari kosningabaráttu, þá er þetta nokkurn veginn myndin af, með hvers konar aðferðum þessi sigur hefur verið unninn, og það er bezt fyrir hv. 1. þm. S-M. að státa sem minnst af, hvernig sá sigur var unninn og með hvers konar áróðri.
Það sýnir sig, að hv. þm. A-Húnv. er frekar ókunnugur hlutum. Mér heyrðist hann segja hér áðan, að þessi kauplækkun með lögum, sem gerð hafi verið í vetur, hafi verið eitthvað nýtt, — ég held, að það hafi verið rétt tekið eftir hjá mér. Nei, þetta er svo sem ekki nýtt. Þetta er gamalt Framsóknar- og íhaldsráð, sem Framsókn og íhaldið hafa tekið höndum saman um til þess að drepa hverja einustu stjórn, sem einhver verkalýðsflokkur hefur verið í, alveg frá því að fyrsta vinstri stjórnin var drepin 1938 með gerðardómnum þá. Það ætlar að skipa með lögum, — lögum sem Framsókn og Sjálfstfl. setja, hvað verkalýðurinn skuli fá í sinn hlut á Íslandi. Þetta er ekki nýtt. Það er bara nýtt fyrir honum að heyra þetta og sjá. Og þetta var alveg rétt hjá honum, það sem hann sagði, að það er satt að segja nokkuð undarlegt, að verkalýðurinn skuli þurfa að standa í harðvítugum verkföllum og svo skuli vera til svo bíræfnir aðilar á eftir, að þeir skuli bara með lögum hér á Alþingi taka það af honum, sem honum tekst að ávinna sér.
Svo kom hv. þm. A-Húnv. því að, að þetta væri nú þokkalegt með okkur, þessa voðalegu kommúnista, við vildum bara, að þjóðin færi að kaupa togara, samt er tap á togurunum. Það þætti þokkalegur búskapur á stórbúinu, þar sem menn ættu nokkrar kýr, að halda slíku áfram. — Það er ofur lítið annað viðhorfið á þjóðarbúinu íslenzka. Það er sama viðhorfið á þjóðarbúinu íslenzka og hjá fátækum smábónda, sem á eina einustu kú og notar hana til þess að fá mjólk handa börnunum sínum. Hann spyr ekki að því, hvort hann græði á kúnni. Spurningin er ekki um, hvort einhverjir menn, sem eiga togara á Íslandi, græða eða tapa á þeim. Það er alveg sama, svo framarlega sem þjóðarbúið græðir á því, lifir á því. Og það er þetta, sem þarf að skilja, hitt eru bara útreikningar. Svo framarlega sem við eigum flota, sem mjólkar okkur, allt í okkar bú, til þess að kaupa alla þá vöru, sem við flytjum inn til landsins, þá eigum við ekki aðeins að halda mjólkurkúnni við, heldur eigum við jafnvel að leggja okkur fram um að fjölga kúnum, hvernig svo sem búreikningarnir kunna að vera. Og ég held, að í sveitinni, hjá saklausum sveitamönnum, sé það jafnvel til, að menn geri ekki allar afurðirnar upp, allar búnytjarnar, án þess að ég sé nokkuð að drótta sérstaklega slæmu að bændum með slíkt. En minn grunur er sá, að þegar reiknað er út það, sem fiskiflotinn íslenzki gefur í íslenzka þjóðarbúið, þá hafi reikningarnir venjulega verið falsaðir, þannig að verzlunarauðvaldið á Íslandi, sem raunverulega hefur þjóðnýtt afrakstur þessa flota handa sér, hefur tekið til sín drýgsta skerfinn af þessum gróða og skilið tapið eftir handa fiskiflotanum.
Þess vegna er barnalegt að vera að tala um tap og gróða undir slíkum kringumstæðum. Það er rétt hjá hv. þm. A-Húnv., að þessar vitlausu hugmyndir, þetta skilningsleysi Framsfl. á því, hvað togarafloti og fiskifloti þýðir fyrir þjóðina, hefur staðið þjóðinni hvað eftír annað fyrir þrifum. Það er eins og áður, þegar Framsókn var hér í stjórn, sem átti að vera vinstri stjórn og Alþfl. bað um það 1934–38 á hverju einasta þingi að fá að kaupa, þótt ekki væri nema einn togara til landsins og fékk það aldrei. Togaraflotinn fékk að hnigna ár frá ári. Þess vegna var það, sem mönnum fannst það vera skýjaborgir, þegar ég kom með þær hugmyndir að kaupa 30 togara í einu. Menn voru orðnir svo vanir því, að ár eftir ár neitaði þáverandi fjmrh., Eysteinn Jónsson, um, að íslenzka þjóðarbúíð fengi að kaupa svo mikið sem einn einasta togara, vegna þess að framsóknarmenn skildu ekki, að þjóðarbúið er borið uppi af þessum fiskiflota. Spurningin er ekki, hvort togararnir beri sig, hvort fiskiskipin beri sig. Staðreyndin er, að þau bera allt þjóðarbúið, líka allan útflutninginn, sem landbúnaðurinn fær. Ég er nú satt að segja búinn að segja þetta það oft hérna í þinginu, að ég hélt ekki, að ég þyrfti að fara að tyggja þetta í menn einu sinni enn þá. Það er auðséð, að þeir, sem koma utan úr sveitinni og ekkert hafa lesið kannske nema Tímann, hafa aldrei fengið ögn af þessu inn í sig, það hafa aldrei smokkazt þar í gegn einföldustu undirstöðuatriðin í íslenzkri hagfræði.
Svo kom hv. þm. A-Húnv. með það, að okkur, þessum voðalegu Alþb.-mönnum og sérstaklega þessum óttalegu kommúnistum væri illa við heilbrigða umbótastefnu. Það er margt, sem ég þarf að fræða þennan hv. þm. um, ef við eigum að vera hérna lengi saman.
Við höfum nú staðið í því áratug eftir áratug, bæði við og stundum Alþfl. líka, að reyna að fá Framsókn inn á umbótastefnu. Og það er það, sem er svona erfitt. Hún heldur það ekki út. Þegar maður loksins er búinn að fá hana inn í vinstri stjórn og búinn að fá hana til þess að lofa einhverjum ofur litlum umbótum, þá springur hún allt í einu og segir: Nei, nei, nei, nú held ég þetta ekki lengur út, nú verður að skera niður launin um 8% og svipta þar með verkalýðinn öllum þeim umbótum, sem hann var búinn að einhverju leyti að knýja fram, nema því eina, sem hún gat ekki tekið frá honum og það var atvinnan. Við vorum að reyna að fá Framsókn inn á umbætur, umbætur viðvíkjandi hernámsmálunum, með því að láta herinn fara, þær stóru umbætur, sem eru einhverjar þær stórkostlegustu, sem þarf að gera á Íslandi. Við vorum að reyna að fá Framsókn inn á umbætur, sem hún var búin að lofa og undirskrifuðum bréf upp á það, þ.e. umbætur í kjördæmamálinu. Við vorum að reyna að fá Framsókn inn á umbætur í tryggingamálunum. Það var ekki við það komandi að reka heilbrigða umbótastefnu, en e.t.v. meinar hv. þm. A-Húnv., að heilbrigða umbótastefnan felist í því að ákveða með lögum launalækkanir hjá verkalýðnum. Það er þó umbótastefna, sem Framsfl. vildi una við í ríkisstjórn.
Svo kom hv. 7. þm. Reykv. (ÞÞ) hér og vildi nú fara að ræða um nýsköpunina. Það er undarlegur hlutur, að menn skuli ekki einu sinni á 15 árum geta lært eitthvað ofur lítið í íslenzkri sögu og þegar einn hlutur fer að verða eins gamall og nýsköpunarstjórnin er nú, að menn geti ekki, þrátt fyrir það, þótt menn hafi verið andvígir því á sínum tíma, litið á það eins og hverja aðra sögulega staðreynd, sem hér skeður. Af hverju var fyrst og fremst lagt í að kaupa togara, en ekki t.d. raforkuver? Það er vegna þess, að togarar og fiskibátar og fiskiðjuver eru undirstaðan, eru grundvöllurinn að öllu atvinnulífi Íslands, að öllu sjálfstæðu efnahagslífi Íslands, að öllum innflutningi Íslands. Þetta er grundvöllurinn. Meginið af allri okkar raforku er til neyzlu. Það er gott, það er nauðsynlegt, svo og svo mikið af því er líka til iðnaðar og annars slíks, en meginið er til neyzlu. Raforkan er hlutur, sem hvað helminginn af allri hennar framleiðslu, snertir tilheyrir lífskjörunum. Ef við ætlum að geta veitt okkur allt það, sem við þurfum að veita okkur, til þess að við njótum raforkunnar og getum komið henni upp, ef við eigum að geta keypt inn stöðvarnar, keypt inn þræðina og keypt inn staurana, keypt heimilistækin og annað slíkt, þá þurfum við að framleiða fisk, því að fyrir fisk kaupum við allt, sem tilheyrir raforku og raforkuframkvæmdum og raforkuneyzlu. Þess vegna er það jafnsjálfsagt og ef maður ætlar að byggja hús, að maður byrjar á grunninum, en ekki á þakinu eða húsgögnunum á þriðju hæðinni. Og það er þessi einfalda staðreynd í efnahagslífi Íslands, sem Framsfl. er ekki búinn að skilja enn þá. Þess vegna átti að byrja á þessu, þess vegna var það höfuðatriði að byrja á þessu, og þess vegna er það gæfa Íslands, að það var byrjað á þessu og þetta var knúið í gegn, þótt Framsfl. væri svo skammsýnn að vera á móti því.
Annað dæmi um þessa gersamlegu blindu Framsfl., þegar hann talar um efnahagsmál, er áburðarverksmiðjan. Hv. 7. þm. Reykv. sagði hér áðan: Það var búið að útbúa till. um áburðarverksmiðjuna, þegar nýsköpunarstjórnin kom, og hvað gerði þessi voðalega nýsköpunarstjórn? Hún kastaði þessum till., hún notaði þær ekki. Um hvað voru þessar till.? Það voru till. frá manni, sem Framsfl. alveg sérstaklega hefur alltaf treyst á og teflt fram sem aðalfjármálamanni landsins, frá Vilhjálmi Þór. Um hvað voru þær? Þær voru um að byggja áburðarverksmiðju á Akureyri, sem framleiddi 1.200 tonn og ætti að fá rafmagn úr Laxá. Hvað hefði það þýtt, ef Vilhjálm Þór og Framsfl. hefði haldizt sú glópska uppi að byggja þá áhurðarverksmiðju? Það hefði þýtt, að við hefðum fengið áburðarverksmiðju, sem var ekki nema byrði fyrir íslenzkan landbúnað, sem var til þess að framleiða rándýran áburð, áburð, sem hefði verið miklu dýrari en erlendur áburður.
Ég hef deilt við framsóknarmenn um þetta utan þingsalanna eftir þennan tíma. Þeir hafa sagt við mig: Já, en það hefði þó verið betra að geta byrjað með þessu. — Það að byrja með þessu hefði eyðilagt allt málið. Menn hefðu bent á þessa áburðarverksmiðju, 1.200 tonna áburðarverksmiðjuna, og sagt: Sjáið þið, til hvers er verið að koma þessu upp? Skilyrðið fyrir því að koma upp áburðarverksmiðju á Íslandi, sem eitthvert vit er í, var, að það væri stór verksmiðja, vegna þess að eðli þessarar framleiðslu er þannig, að hún heimtar stórrekstur. Það eðlilega hefði verið, að slík áburðarverksmiðja hefði framleitt, við skulum segja 10–15 þúsund tonn, sem hún hefði blandað og gefið yfir 30 þús. tonn af köfnunarefnisáburði, 10–15 þús. tonn af köfnunarefni. Þá hefði verið rekstur miðað við alþjóðlegan mælikvarða.
Hvað gerðum við? Við sáum strax, að þessi deila Framsfl. og Vilhjálms Þórs um 1.200 tonna áburðarverksmiðju á Akureyri með rafmagni úr Laxá, var til þess að eyðileggja þetta mál. Og hvað gerðum við? Við björguðum þessu máli, við sáum til þess, að það var farið að undirbúa þetta af mönnum, sem höfðu vit á því, en ekki af mönnum, sem voru bara að hugsa um einmenningskjördæmasjónarmið. Við sáum um, að þetta væri undirbúið af mönnum, sem voru að hugsa um landshag í sambandi við það, en ekki um að veifa einhverju framan í Akureyringa eða eitthvert einkenningskjördæmi. Nú, hvað kom þá í ljós? Það kom í ljós, að áburðarverksmiðjan þurfti að vera a.m.k. 6–7 sinnum stærri en sú, sem Framsfl. og Vilhjálmur Þór höfðu lagt til. Og samt var hún of lítil, þegar hún var byggð. Við fluttum hér þá í þinginu, Sósfl., brtt. um að hafa hana stærri. Og við fluttum till. líka um annað. Við fluttum till. um að byggja raforkuver í sambandi við hana, virkja Urriðafoss, vegna þess að við vissum, að til þess að framleiða áburð þurfti rafmagn. Það var Framsfl. ekki ljóst. Framsfl. vildi sníða áburðarverksmiðjuna eftir því, hvað afgangs mundi vera af Sogsvirkjuninni, sem verið var að byggja um leið. Svona var stórhugurinn, það átti að miða þetta við það, hvað var afgangs, verksmiðju, sem átti að standa sín hundrað ár, það átti ekki að miða stærð hennar við það, hvort hún bæri sig og annað slíkt og hvað íslenzkur áburður ætti að kosta íslenzka bændur, — það átti að miða þetta við það, hvað yrði afgangs af einni litilli virkjun í einum Sogsfossi á ákveðnu árabili, 1950–53. Svona er framsýnin. Svona er þekkingarleysið, skeytingarleysið, fyrirhyggjuleysið í þessum málum.
Og svo koma þessir menn og fara að reyna að telja sjálfum sér trú um, að þeir hafi verið að gera mjög skynsamlega hluti. Á hverju flýtur áburðarverksmiðjan í dag? Hún flýtur á því, að helmingurinn af allri raforku, sem framleidd er í Sogsvirkjuninni, er látinn þangað fyrir hverfandi lítið verð. Og hvernig fer svo? Svo fer þannig, að öðru hverju verður, eins og núna t.d., að draga það mikið úr raforkunni til áburðarverksmiðjnnnar, að hún verður að minnka sína framleiðslu það mikið, að Ísland verður að flytja inn á s.l. ári fyrir 10 millj. kr. köfnunarefnisáburð, af því að frá upphafi var ekki hugsað um að byggja raforkuver, um leið og þessi áburðarverksmiðja væri byggð. Það er planleysið, það er skilningsleysið, sem einkennir þessar framkvæmdir. Það er hlaupið til út frá því, hverju menn halda að sé hægt að slá sér pólitískt upp á, í staðinn fyrir að hugsa þessi mál út frá þjóðhagslegu sjónarmiði, í staðinn fyrir að undirbyggja þetta af þeirri vísindalegu umhyggju, sem öll stóriðja nútímans heimtar.
Ég veit ekki, hvort ég á að halda áfram að rekja — það mundi taka upp alla nóttina allar vitleysur Framsóknar, bæði þær, sem hún hefur gert og þar sem hún hefur ráðið því, að verr var lagt í hlutina, en vera skyldi.
Hv. 7. þm. Reykv. talaði um, hvað vanrækt hefði verið á nýsköpunartímunum. Hann minntist á landbúnaðinn. Ég held nú, að ein bezta löggjöfin, sem til er viðvíkjandi ræktunarmálunum, sé einmitt frá þeim tíma. Hann talaði um byggingarmálin. Ég held, að bezta löggjöfin., sem sett hefur verið um byggingarmálin á Íslandi, sé frá þeim tíma líka. Hann kom inn á braggana. Hvað var gert af hálfu nýsköpunarstjórnarinnar til þess að reyna að útrýma bröggum? Það var sett sérstök löggjöf um að hjálpa bæjunum á Íslandi til þess að útrýma bröggunum, sérstök löggjöf um útrýmingu heilsuspillandi húsnæðis, löggjöf, þar sem ríkið lagði fram og veitti að láni mjög mikið fé til þess að útrýma einmitt þessum heilsuspillandi íbúðum. Og það var byrjað að vinna samkvæmt þessari löggjöf. Skúlagötuhúsin hérna í Reykjavik, sem voru byggð samkvæmt þeirri löggjöf og menn fluttu úr bröggunum inn í þau, eru dæmin um, hvernig byrjað var að taka á þeim málum. En hvað gerði svo Framsfl., þegar hann komst í ríkisstj. með íhaldinu rétt á eftir, 1947? Hann afnam þessi lög, hann stöðvaði þessar framkvæmdir í því að útrýma heilsuspillandi híbýlum, hann hindraði bæinn í því að afnema þessa bragga með því að kippa efnahagslega grundvellinum undan þeirri starfsemi. Er hv. 7. þm. Reykv. búinn að gleyma þessu, eða vissi hann það ekki? Og þá eiga menn helzt ekki að venja sig á að tala um hluti, sem menn vita ekki um. — Hann kvartaði um, að það hefði verið lítið byggt á þessum árum. Ef ég man rétt, voru byggðar 1946 yfir 600 íbúðir hér í Reykjavík og það voru aldrei byggðar fleiri íbúðir á öllum næsta áratug, á áratug helmingaskipta íhalds og Framsóknar. Hvað komst það niður í, eftir að Framsókn hóf stríðið á móti fjárplógsstarfseminni og féll svo í faðma íhaldsins? Árið 1951 komust íbúðirnar hérna, sem byrjað var á, á einu ári, niður í 240, held ég, eða eitthvað þar í kring. Það hrapaði niður, þegar Framsókn kom nærri því. Það var takmarkað, hvað byggja mátti af íbúðum fyrir almenning í Reykjavík. Og jafnvel almenningur í dreifbýlinu úti um allt land þurfti að sækja um leyfi til Reykjavíkur til þess að reisa sér þak yfir höfuðið. Svona var farið að þá. Það voru settir fjötrar á byggingarstarfsemi fólksins í dreifbýlinu um allt land, þegar Sjálfstfl. og Framsókn tóku við. Þetta var munurinn viðvíkjandi aðbúnaðinum.
Og á ég að rekja þetta áfram? Á ég að taka tryggingalöggjöfina, þá tiltölulega góðu tryggingalöggjöf, sem við knúðum fram í nýsköpunarstjórninni? Hvað var byrjað að gera viðvíkjandi henni? Það var byrjað að eyðileggja hana, skemma hana, draga úr henni. Og Framsfl. átti sinn þátt í því. Ég skal taka það fram, að ég er ekki að bera af Sjálfstfl. þann þátt, sem hann átti, en ég stend núna í uppgjöri við Framsfl. Ég er reiðubúinn til. uppgjörs við Sjálfstfl., hvenær sem er, og hef alltaf verið það, en núna sem stendur er það Framsfl., sem er að tala við okkur, og ég, sem er að tala við hann.
Svo sagði hv. 7. þm. Reykv., að það hefði verið ægileg eyðsla og það hefði verið hverfandi lítið, sem notað hefði verið til nýsköpunar. Það er rétt, að eyðslan var meiri, en hún hefði átt að vera. Við gerðum það, sem við gátum, Sósfl. þá, til þess að draga úr því. Við megnuðum ekki meir. Það, sem við megnuðum þó, var að bjarga því, að hús íslenzku þjóðarinnar fékk grundvöll til að standa á. Við gátum múrað grunninn, við gátum komið upp fiskiskipastólnum, við gátum gerbreytt fiskiðnaðinum og tryggt iðnaðinum og landinu þá gerbyltingu hvað vélar snertir, sem hann gat veitt sér með því að fá eins mikil innflutningsleyfi og hann vildi fyrir nýjum vélum, sem stórfyrirtækin hér á Íslandi, eins og Héðinn og önnur slík, enn þá bera vott um, þau fyrirtæki, sem var gerbylt á nýsköpunartímanum.
En hafði Framsfl., eftir að hann fór að ráða í ríkisstj., vit eða vilja til þess að gera þarna betur? Tók hann við og framkvæmdi það, sem okkur tókst ekki að framkvæma af okkar fimm ára áætlun, t.d. togarakaupin? Við ætluðum að kaupa yfir 50 togara. Við gátum ekki keypt nema 32, fengum ekki meira í gegn. Nokkru var bætt við, meðan Alþfl. var enn þá í stjórn. En eftir að Framsókn og Sjálfstfl, tóku við ein, hjúin bæði, 1950, hvernig gekk þá? Voru þá kannske keyptir þessir togarar, sem eftir voru? Sýndi þá fyrirhyggjan hjá Framsókn sig og framtakið hjá Sjálfstfl.? O-sussu-nei. Þá var ekki einn einasti togari keyptur á þeim 6–7 árum, sem framsókn og sjálfstfl. voru saman í ríkisstj., en 5.000 bílar. Það er fjárfestingin, sem Framsfl. líkar. Hvar er fyrirhyggjan? Það er ekki eyðsla. Nei, íslenzka þjóðin fékk margfalt meira fé en það, sem hún hafði til ráðstöfunar á nýsköpunarárunum, á áratugnum á eftir með gjöfum og lánum og öllu mögulegu, en yfirgnæfandi meiri hlutanum af því fé var varið til eyðslu, þannig að meira að segja þeim fyrirtækjum, sem þá voru sett upp af lítilli fyrirhyggju, en kannske góðum vilja, varð vinstri stjórnin, eftir að hún kom, fyrirtæki eins og sementsverksmiðjunni, enn þá að vera að bjarga hvað fé snerti.
Svo kom hv. þm. inn á fjárfestingarmálin. Það er alveg rétt hjá honum, að það er mjög eðlilegt, að um þau mál verði deila og það er satt að segja hægt í þeim málum og ákaflega auðvelt að afflytja þá stefnu, sem maður er að berjast fyrir, vegna þess að í fjárfestingarmálunum reynir á að að tryggja með fyrirhyggju grundvöll þjóðarbúsins og nauðsynina á því að byggja upp þann grundvöll skilur kannske meginið af fólkinu venjulega ekki. Ég veit ósköp vel, að það voru fleiri, en pólitísku flokkarnir hér, sem kölluðu það skýjaborgir, þegar ég var með 30 togarana og þá skýjaglóparæðu alla saman. Meginið af landsbúum hefur vafalaust verið mjög vantrúað á, að þetta væri hægt. Og það er eingöngu vegna þess, að okkur tókst að mynda ríkisstj. á eftir um að gera þetta og gerðum það, að menn eru á þeirri skoðun í dag, að þetta hafi ekki verið skýjaborgir, heldur raunhæfar, réttar hugmyndir um, hvað þurfti að gera í íslenzku efnahagslífi, Það, sem þarf þess vegna viðvíkjandi fjárfestingu, er að hafa í fyrsta lagi vit á að hugsa um þessi mál og vilja út frá heildarhagsmunum þjóðarinnar og segja þjóðinni og þora að segja henni það, hvað hún þurfi að gera í þessu efni. Ég veit ósköp vel, að það er oft óvinsælt að þurfa að segja henni slíkt. Okkar þjóðartekjur eru það seinasta, sem við höfum skýrslur yfir 4.800–4.900 millj. kr. Af þessum þjóðartekjum verjum við 1.600 millj. kr. í fjárfestingu. Það er um þriðjungurinn af öllum þjóðartekjunum. Hvernig eigum við að verja þessum 1.600 millj. kr., þannig að það komi öllum landsbúum sem bezt að gagni? Ég veit ósköp vel, að það er ekkert hægara, en að fara út til almennings og segja við hann: Hér er einn maður, sem leggur til, að peningarnir séu teknir af þér til þess að kaupa fyrir þá togara, sem ekki bera sig, reisa fiskiðjuver, sem ekki er víst að við getum unnið nokkurn skapaðan hlut í og annað slíkt. Ætlarðu að láta svona skýjaglóp telja þér trú um, að það eigi að nota peningana þína í þetta? Viltu ekki miklu heldur fá þér bíl? Þá geturðu keyrt með þína fjölskyldu á sunnudögum út úr bænum og fjölskyldan þín verður miklu ánægðari yfir, að þú eigir bíl, heldur en yfir því, að þjóðin eigi nokkra togara. — Ég veit ósköp vel, að það eru þessar stefnur, sem togast á. Sú stefna, sem Framsfl. og Sjálfstfl. framkvæma þegar þeir ráða, er að lofa hverjum manni í landinu að kaupa það, sem hann langar til, en vera ekki með neinn áætlunarbúskap, vera ekki með neinar áætlanir um það, hvað þjóðinni sé fyrir beztu. Ég skal viðurkenna, að ég er fulltrúi þeirrar stefnu, að þegar þriðjungurinn af öllu því, sem einn maður vinnur sér inn og meðaltekjur fjölskyldu á Íslandi eru 150 þús. kr., — þegar 50 þús. kr. af þessu eru teknar frá hverri einustu fjölskyldu á Íslandi og notaðar til fjárfestingar, þá er ég á þeirri skoðun, að þessum peningum eigi að verja með hag þjóðarheildarinnar fyrir augum, þannig að það sé búið sem bezt að öllum landsmönnum með því. Og ég skal standa fyrir þessari stefnu, hvar sem er. Ég veit ósköp vel, að það er erfiðara að slást fyrir þessari stefnu og koma fólki í skilning um hana, heldur en að fá menn til þess að trúa því, að það sé miklu praktískara fyrir eina fjölskyldu að eiga bíl eða eitthvað annað þess háttar, þegar þessu er stefnt í mótsetningu hvoru við annað. Hitt hugsa menn svo venjulega ekki út í, þegar menn eru að prédika fyrir mönnum að eignast bílana eða framkvæma þá bílastefnu Framsóknar og Sjálfstfl., að það þarf benzín á bíla, það þarf meira að segja gjaldeyri fyrir bílum og það þarf að borga þessa bíla og þetta benzín með fiski og engu öðru.
Það er þetta, sem þjóðin verður að gera sér ljóst, ef hún ætlar að stjórna sínum fjármálum af viti. Og ef hún ætlar að stjórna sínum fjármálum af viti, þá ætti hvorki Sjálfstfl. né Framsfl. að koma nærri því, sízt af öllu saman. Það sýndu þeir 1950–56, þegar þeir stjórnuðu þessum málum.
1.600 milljónum króna á hverju einasta ári má verja á margvíslegan hátt. Það, sem ég hef lagt til í þessum efnum og lagði til í vinstri stjórninni var, að það væri sett á stofn áætlunarnefnd, sem undirbyggi till. um það, hvernig þessum peningum skyldi varið og sýndi fram á misræmið í því, hvernig þessu hefði verið varið að undanförnu og fyrirhyggjuleysið í sambandi við það og það er þetta, sem Framsfl. síðan alltaf er að deila á. Hann má ekki heyra þetta nefnt, vegna þess að hann vill spekúlera í, rétt eins og Sjálfstfl., fyrirhyggjuleysi fólksins í þessu efni og láta það svo bara standa uppi einn góðan veðurdag togaralaust, fiskiskipalaust, markaðslaust, fátækt og atvinnulaust, en með nóga bíla og kannske meira að segja með sum sveitabýli, þar sem rafmagn og allt er lagt inn og fólkið flutt burt frá.
Nei, spurningin stendur ekki um það, þegar verið er að tala um skynsamlega fjárfestingu, að það eigi að skera niður í dreifbýlinu. Það er vitleysa og það er rangfærsla, vegna þess að Framsfl. getur aldrei hugsað sér neinn þjóðarbúskap á Íslandi, sem væri áætlunarbúskapur.
En það er ekki hægt að vinna upp dreifbýlið á Íslandi og láta fólkinu fjölga þar og fólkið haldast þar og byggðina aukast nema með slíkum áætlunarbúskap, nema með stórum átökum, nema með því að búa þar til arðbær og stór fyrirtæki. Það er hægt að virkja fljót eins og Blöndu, það er hægt að vinna eins og í Suður-Þingeyjarsýslu úr auðlindunum, sem þar eru, það er hægt að skapa stóriðju á þessum stöðum, svo framarlega sem það er hugsað í tíma fyrir því að gera þessa hluti og þjóðarauðnum er einbeitt að þessu og með því að gera slíka hluti, sem framsóknarmenn, þegar ég hef verið að lýsa því undanfarið í greinum, sem ég hef skrifað, bæði meðan vinstri stjórnin var og eftir að hún fór, mundu kalla skýjaborgir, ef þeir lesa þær nokkurn tíma. Það er þannig, sem þarf að undirbyggja dreifbýlið, líf þess, gera það að þéttbýli, skapa bændunum, sem þar búa, líka næga markaði með því að láta bæi vaxa þar upp. Það þarf stórhug í samþandi við þetta, það þarf stórátök í sambandi við þetta og það þarf einbeitingu fjármunanna til þess. Það er þetta, sem Framsfl. aldrei hefur skilið.
Það, sem ég hef lagt til, er, að fjárfestingin sé gerð arðbær og jákvæð, að henni sé einbeitt að atvinnuuppbyggingunni um allt land. Og svo ætla ég ekki að lengja þetta, því að ég held, að ég verði að gefa hv. 7. þm. Reykv. sérprentun af grein, sem ég skrifaði núna seinast um, hvernig ætti að byggja upp í dreifbýlinu. Hann hefur víst ekki haft fyrir að lesa það fyrir kosningarnar, þá hefði hann varla talað eins og hann hefur gert.
M.ö.o.: einbeiting að því að vinna dreifbýlið upp og láta fólkið haldast þar við og fjölga fólkinu þar verður ekki gerð nema með áætlunarbúskap á Íslandi. Haldi Framsókn áfram þeirri stefnu, sem hún hefur rekið á undanförnum áratugum með Sjálfstfl., þá verður þetta ekki gert, fyrr en sósíalisminn kemst á, á Íslandi. En þá skal það líka verða gert, þá skal Framsókn ekki takast að hindra þau stórvirki, sem þarf að framkvæma í öllum okkar landsfjórðungum. Þá mundi henni ekki heldur takast að hindra, eins og henni tókst núna í vinstri stjórninni, að 15 togarar væru keyptir.
Svo kom hv. 7. þm. Reykv. inn á ýmislegt, sem ég hafði verið að rekja til kauplækkunarinnar, kaupbaráttunnar og að öðru slíku. Hann sagðist ekki ætla að fara út í söguna. Það var alveg rétt af honum. Það er auðséð, að hann kann að svara fyrir sig. Svoleiðis er einmitt það hárrétta, menn eiga alls ekki að hætta sér út í að ræða um reynsluna, þegar hún er svona ljót, það á bara að láta þá ljótu sögu eiga sig. Hann var bara ekki búinn að kenna hv. 1. þm. S-M. (EystJ) þetta. Hann endaði nefnilega með því, að Framsfl. ætlaði að reka sömu stefnu og undanfarna áratugi. Hann hefur aldrei lært neitt og getur aldrei lært neitt. En ég sé, að hv. 7. þm. Reykv. er byrjaður að læra undireins, a.m.k. að læra að þegja yfir sögu Framsóknar.
Svo kom hann inn á kauplækkunina, — við hefðum ekki viljað 8% kauplækkun og hvað hefðum við fengið? Jú, við hefðum fengið jafnvel upp í 13% kauplækkun. Ef við hefðum fengið að 3% kauplækkuninni, hvað heldur hann að við hefðum fengið á eftir? Ef Framsfl. hefði komizt að því, að það var hægt að beygja þá, það var hægt að lofa olíuhringunum að halda öllum auðnum, þarna komu þeir þeim niður um 8%, hvað hefði gerzt næst, þegar auðvaldið í Reykjavík þurfti að græða meira? Jú, auðvitað nýjar kröfur. Nei, við skulum alveg gera okkur ljóst, að þessir hlutir verða ekki útkljáðir nema með baráttu, harðvítugri baráttu. Við afstýrðum ekki 13% kauplækkun með því að ganga inn á 8% kauplækkun. Það, sem við gerum, er að fara út í slag út af 8% kauplækkun, út af 13% kauplækkun, og sýna ykkur, að verkalýðurinn þolir hvoruga þeirra. Ef þið viljið reka svona pólitík áfram, þá skuluð þið bara gera það. Við höfum sýnt ykkur það áður, þegar þið stóðuð saman, Framsókn og íhald 1955, að við beygðum ykkur hérna í Reykjavík, og við gerum það alltaf. Meðan eitthvert frelsi er til hér í íslenzku þjóðfélagi og það er ekki búið að svipta verkalýðinn öllu því frelsi, sem Framsókn og Sjálfstfl. hafa reynt að svipta hann, allt frá því að gerðardómslögin hófust, þá mun verkalýðurinn berjast áfram fyrir sínum hagsmunum og sé ekki hægt að fá þann skilning hjá þeim flokkum hér á Alþingi, sem ættu þó ofur lítið að geta lært af sögu Íslands á síðustu 20 árum, að þeir taki tillit til hagsmuna verkalýðsins, þá verðum við að grípa til þess eina ráðs, sem honum er þó eftir skilið og það er baráttan utan Alþingis. Við ætlum að hrinda þessari kauplækkun. Hvenær við gerum það, það er annað mál? Við erum vanir að kunna að velja þann tíma til slíks, þegar fólkið í landinu stendur saman um það og er öruggt með að sigra. Það kann stundum að líða einhver tími, en við höfum hingað til sýnt, að við kunnum að velja réttan tíma. Við erum ekkert á því að gefast upp í þessum efnum. Við vitum, að framtíðin er okkar, framtíðin er verkalýðsins, framtíðin er alþýðunnar í þessu. Þótt einhverjir flokkar, sem með meira eða minna lýðskrumi geta náð meiri hluta hér á Alþingi um tíma, beiti valdi sinu hér til þess að ræna verkalýðinn því, sem hann hefur samið um með frjálsum samningum, þá vitum við, að verkalýðurinn og launþegarnir, 75% Íslendinga, eru það afl, sem ekkert auðvald hér ræður við, ekki einu sinni þótt Framsfl. hjálpi því alveg eins og hægt er.
Svo kom hv. 7. þm. Reykv. inn á það, að við hefðum nána samvinnu við íhaldið og við hefðum ekki gert neitt skilyrði um, að kauplækkunin yrði tekin aftur. Fer þetta ekki að verða fullmikið tal um þessa nánu samvinnu við íhaldið? Vorum við í mjög náinni samvinnu við Framsókn 1949 eftir kosningarnar, þegar kosið var hérna á Alþingi? Máske man hv. 7. þm. Reykv. ekkert eftir, hvað gerðist? Við kusum framsóknarmann fyrir forseta sameinaðs Alþingis, Steingrím Steinþórsson, hann varð seinna, forsrh. upp úr því. Af hverju? Jú, af því að við vildum lofa Framsfl. að sýna það, hann hafði talað svo róttækt, svo langt til vinstri í kosningunum, hvort hann meinti eitthvað með því. Og hann sýndi það líka. Hann var þá í slagnum, stríðinu við fjárplógsstarfsemina og við ætluðum að lofa honum að sýna, hvernig hann færi að því að heyja stríðið. Þið sáuð, hvað gerðist. Nei, við skulum ekki vera að tala um kosningar í sambandi við forseta á Alþingi sem einhverja nána samvinnu þannig. Íhaldið bauð okkur upp á ríkisstj., það veit hv. 7. þm. Reykv. Ef við værum svo ginnkeyptir fyrir að vera í ríkisstj. eins og hv. 1. þm. S-M. og hv. 7. þm. Reykv. eru að reyna að gefa í skyn, þá stóð okkur sannarlega til boða að fara í ríkisstj. upp á greiðsluskilmála, ef við hefðum fengið með því að vera áfram í stjórninni með Framsókn. Framsókn heimtaði 8% kauplækkun, íhaldið bauð 6% kauplækkun. Ef við hefðum verið að hugsa eins og hv. 7. þm. Reykv. var að skjóta að mér hérna áðan: Ja, við skulum nú afstýra 13% kauplækkuninni, sem núverandi ríkisstj. með valdboði Framsóknar og Sjálfstfl. setti á, með því að samþykkja 8% kauplækkun hjá Framsfl., þá lá náttúrlega alveg í augum uppi, að við hefðum átt að hlaupa til og afstýra þessari 8% kauplækkun, sem Framsókn var að reyna að kúska okkur inn á, með því að samþykkja 6% kauplækkun með íhaldinu bara og vera í ríkisstj. þar að auki. En ég held, að það sé nauðsynlegt fyrir þá ungu framsóknarmenn, sem hér eru að koma inn, að þeir læri það. Ég er hræddur um, að uppeldið hjá þeim sé nefnilega ekki rétt gott í því sambandi. Það er ekki allt fengið með að vera í ríkisstj., þó að Framsfl. áliti sig helzt ekki geta lifað án þess. Við erum jafnreiðubúnir til að vera utan ríkisstj., móti ríkisstj. á Íslandi, þótt við stöndum aleinir allra flokka á móti ríkisstj., — við höfum staðið það lengst af, — eins og að vera í ríkisstj. Spurningin fyrir okkur er aðeins ein: hvernig getum við þjónað hagsmunum þess fólks, sem við erum fulltrúar fyrir? Ef við getum þjónað því bezt með því að vera utan ríkisstj. og berjast utan þeirrar ríkisstj. og skipuleggja lífsbaráttu fólksins utan þeirrar ríkisstj. og á móti þeirri ríkisstj., þá gerum við það. Ef við getum það með því að vera í ríkisstj., með því að tryggja fólkinu atvinnutæki, með því að tryggja því tryggingalöggjöf, með því að tryggja því ýmsar félagslegar umbætur, með því að tryggja því örugga atvinnu og stórvirk tæki til þess að vinna með, — ef við getum þetta, þá værum við gjarnan í ríkisstj. En ef það á að setja okkur eitthvert skilyrði, að við verðum að bregðast fólki, sem við erum með, að við verðum. þegar við vitum, að auðvaldið í landinu græðir og svo og svo mikið af fé fer í vitleysu, — ef það er heimtað þá um leið, að launin hjá manninum, sem á að lifa af 5.000 kr. á mánuði, séu lækkuð, þá segjum við nei og við förum út úr ríkisstj. Okkur er ekki fyrst og fremst keppikefli að vera í ríkisstj., heldur að tryggja þeirri stefnu, sem við erum að berjast fyrir, framgang í ríkisstj. eða utan hennar annars, að heyja baráttuna fyrir lífshagsmunum fólksins og bregðast því ekki.
Og það er þetta, sem Framsókn getur ekki skilið, vegna þess að Framsfl. er skuldbundinn, ég held helzt Sambandinu, að vera í ríkisstj., hvað sem það kostar. Það er galdurinn, sem gerir það að verkum, að hv. 1. þm. S-M. getur aldrei hugsað eða talað hér öðruvísi en spurningin standi: Ætla þeir að vera í ríkisstj.? Með hverjum ætla þeir að vera í ríkisstj.? Eru þeir meira með að vera í ríkisstj. með Framsókn, eða eru þeir meira með að vera í ríkisstj. með íhaldinu? Þetta er misskilningurinn. Mér og okkur flestum, held ég að mér sé óhætt að segja, er það ekki spurning, með hverjum við erum í ríkisstj., heldur um hvað við erum í ríkisstj., hvaða stefnu við erum að reka í ríkisstj. Af hverju höfum við haft sérstaklega trú á ríkisstj. með Framsfl.? Af því að Framsfl. hefur talið sig vinstri flokk, og því er þess vegna búizt við vinstri stefnu af honum, og við viljum gefa honum tækifæri til að framkvæma þá vinstri stefnu og verðum fyrir vonbrigðum, þegar hann gerir það ekki og reynum að kenna honum.
Við erum alltaf reiðubúnir til þess að mynda stjórn með Framsfl. um vinstri stefnu. Það gæti vel verið, að við værum til í, alveg eins og á nýsköpunartímanum, að mynda stjórn með Sjálfstfl., en ég er ekki til í að mynda stjórn með Sjálfstfl. um 6% launalækkun eða annað slíkt — eða það, sem hér hefur verið reynt að dylgja með, að ég hafi sérstaklega verið að beita mér fyrir slíku. Það vil ég alveg greinilega taka fram. Ég hef enga fordóma móti neinum flokki á Íslandi hvað það snertir að mynda ríkisstj. með honum. Við höfum verið í ríkisstj. með Alþfl., Framsfl., Sjálfstfl. og ég hef aldrei og þeir flokkar, sem ég hef verið hér fulltrúi fyrir, bæði Alþb. og Sósfl., þeir hafa aldrei lýst því yfir, að þeir mundu aldrei vinna með neinum öðrum stjórnmálaflokki. Meira að segja fyrsta spurningin, sem við hv. 1. landsk. (HV) vorum spurðir að, þegar við komum á fund Alþfl. og Framsfl. í júli 1956 var, hvort við vildum lýsa því yfir, að við vildum aldrei mynda stjórn eða alls ekki mynda stjórn með Sjálfstfl. Við sögðum báðir nei. Við gefum ekki svoleiðis yfirlýsingar. Til þess erum við kosnir hér á þing að reyna að koma ákveðnum málum fram, sem þjóðinni ríður mikið á að sé komið fram. Við erum reiðubúnir til að vinna með hvaða öðrum Íslendingum sem er, að því að gera slíkt, en við vinnum ekki að því að gera þveröfugt við það, sem við lofuðum. Okkur þykir hart að þurfa að búa undir því, ef við höfum átt von á, að viss loforð, sem okkur voru gefin, væru efnd, hvort heldur það voru loforð um afléttingu hernámsins eða leiðréttingu um kjördæmaskipulagið, en þegar, eftir að búið er að svíkja allt slíkt, þar að auki er heimtað af okkur, að við göngum inn á að lækka launin við launþegana á Íslandi, sem við erum fulltrúar fyrir, þá segjum við nei. Það er stefnan, sem þarna er barizt um, en ekki það, með hverjum maður er í stjórn. Og það er Framsfl. til skammar, af því að hann er að kalla sig vinstri flokk og hefur stundum verið það, að hann skuli láta það spyrjast um sig að hafa sprengt vinstri stjórnina á því að heimta 8% launalækkun af verkalýðnum á Íslandi og láta svo Sjálfstfl. koma á eftir og bjóða 6%, aðalflokk auðmannastéttarinnar í Reykjavík. Það sýnir bezt blinduna, sem forustumenn Framsfl. eru slegnir, og það væri nær að reyna að lækna þá af þessari blindu, heldur en vera að reyna að blinda fólkið til fylgis við þessa blindni. Svo kom hv. 7. þm. Reykv. inn á það, að það væri sönn vinstri stefna í þessum málum, en þar fórum við aftur að nálgast.
Það er alveg rétt að taka einmitt þessi mál efnahagslega eins og hann gerði. Grundvöllurinn fyrir raunverulegri vinstri stefnu er vald þess vinnandi manns yfir hans eigin lífsskilyrðum, yfir hans eigin atvinnutækjum. Þetta er grundvöllurinn. Þetta var grundvöllurinn hjá sjálfseignarbændunum íslenzku í þjóðveldinu og ég er honum alveg sammála um og þakka honum fyrir það gott, sem hann sagði um mínar hugleiðingar í því sambandi. Þetta var grundvöllurinn. Þessi grundvöllur var einkaeign sjálfseignarbóndans á sinni jörð, á þeim tækjum, sem hann vann með og jafnframt þessu var svo sameign, sérstaklega á frumstiginu, á afréttunum og þeim sameiginlegu auðlindum, sameign, sem við höfum enn þá meira að segja leifar af í okkar löggjöf, í sambandi við ítöluna og annað slíkt. Það var rík sameign samfara þessari sjálfseign, vegna þess að þetta þjóðfélag var komið upp úr því gamla sameignarþjóðfélagi, sem áður hafði verið, meðan sameign var á jörðinni. Og í hverju fólst, eins og hv. 7. þm. Reykv. sagði réttilega, bardagaaðferð bóndans og bændastéttarinnar, sjálfseignarbændastéttarinnar, hinnar frjálsu bændastéttar á þessum tíma? Hún fólst í því að reyna að halda því rísandi höfðingjavaldi í skefjum, reyna að brjóta það niður, reyna að hindra þá þróun, sem varð úti í Evrópu, — þróun .„individúalismans“.
Hvernig er samsvarandi viðhorf hjá okkur nú? Tækin, sem við unnum með fyrir nokkrum áratugum, jafnvel öld, voru smátæki. Tveir menn reru máske á sinum bát, stundum fleiri, allt upp í 10 og smiðurinn vann með sín verkfæri í lítilli smiðju og bóndinn á sinni litlu jörð. En hver hefur þróun þjóðfélagsins verið, eftir að auðvaldsskipulagið kemur til sögunnar og eftir að vélbyltingin á sér stað? Þróunin hefur verið sú, að stórar afkastamiklar vélar taka við af þessum litlu vélum, sem einn maður réð við. Það taka við verksmiðjur, þar sem hundruð og erlendis þúsundir manna vinna saman, jafnvel kannske 50 þúsundir manna og fleiri í einni einustu verksmiðju að því að framleiða hluti og með því að framleiða þetta svona með samvinnu í verksmiðjunni, samstarfi allra, þá framleiða þeir þessa hluti margfalt ódýrar, en hægt hefði verið af einstaklingum að framleiða þá. M.ö.o.: samvinnan í framleiðslu, sem rekin er í stórum stíl, er búin að ryðja sér til rúms í nútímaþjóðfélagi og útrýma að mestu þessum einkarekstri. Þar sem þessi einkarekstur enn þá er til, þar á hann að halda áfram og við eigum að búa að honum og sjá um, að sá maður, sem hann hefur, geti verið sjálfstæður og átt þetta sjálfur. En þar sem vélbylting nútímans hefur komið á samvinnu þúsundanna í verksmiðjunum, þar er engin önnur lausn til þess, að vinnandi mennirnir, sem vinna þetta, sem skapa þetta, sem framleiða þessar afurðir, geti ráðið þessu, en sameign þeirra á verksmiðjunum, sósíalismi, — ekkert annað.
Af stóriðju kapítalismans getur ekkert annað tekið við en sósíalismi, þjóðnýting. Það, sem sjálfseignin og þar með frelsið er bóndanum sem einyrkja, það er sameignin, sósialisminn, verkalýð nútímans, sem sameiginlega verður að valda því að eiga og ráða verksmiðjum, þar sem þúsundir manna vinna saman, þar sem vélarnar renna eftir færibandi og þar sem enginn einn getur svo að segja sagt: Þennan bíl t.d. framleiddi ég, þennan traktor framleiddi ég. — Öll vélþróun nútímans knýr fram þessa sameign fyrr eða seinna. En það þýðir, að einyrkjarnir, sem enn þá framleiða í krafti sinnar einkaeignar á sínu litla atvinnutæki eða sinni jörð, og verkamennirnir, sem framleiða saman í stórum stíl og berjast fyrir þjóðnýtingu á þessum samvinnandi framleiðslutækjum, þeir eiga að standa saman og berjast saman á móti því auðvaldi, þeim auðhöfðingjum, sem þarna eru að rísa upp í þjóðfélaginu og einoka fyrir sig þessar verksmiðjur, skapa sér volduga hringa, ryðja því höfðingjavaldi braut, sem drap okkur á Sturlungaöldinni og glataði okkar frelsi.
Þess vegna eru okkar tillögur um þjóðnýtingu, okkar barátta fyrir þjóðnýtingu þessara tækja baráttan fyrir því sama sem þeir bændur, sem það vel sáu í okkar þjóðveldi, að þeir vildu viðhalda sjálfseigninni á móti jarðeignavaldi höfðingjanna, það er sama barátta, barátta vinnandi stétta fyrir að ráða grundvelli sinnar framleiðslu, lífsskilyrðin sjálf. Og hvernig stendur Framsfl. í þessari baráttu verkalýðshreyfingarinnar á Íslandi fyrir þessari þjóðnýtingu, — þjóðnýtingu jafnt verzlunar– sem stóriðjufyrirtækja? Hvernig stendur Framsfl. viðvíkjandi olíueinkasölu, þar sem harðvitugustu auðhringar nútímans eru að verki? Framsfl. stendur með þessum olíuhringum, á móti alþýðunni. Ég tala ekki um það, sjálfsagt, að Sjálfstfl. geri það. Það ætlast enginn til annars af aðalflokki auðvaldsins, en menn hefðu ætlazt til annars af flokki, sem telur sig flokk eins og Framsfl.
Hvað gerir Framsfl. viðvíkjandi hlutum eins og áburðarverksmiðjunni, þar sem þjóðnýtingin lá svo í augum uppi, að það var aldrei hugsað um áburðarverksmiðjuna öðruvísi, en sem þjóðnýtt fyrirtæki? Framsfl. fellst á það og breytir lagafrv. hér á Alþ. þannig með Sjálfstfl., að þetta sé gert að rekstrarhlutafélagi. Og það var máske ekki verst, ef þeir hefðu haldið sér við lagabókstafinn. Ráðherrar Framsóknar lýsa því síðan yfir á eftir, að þeir skoði þetta fyrirtæki þjóðarinnar sem eign hluthafanna og í krafti þeirrar yfirlýsingar framsóknarráðherranna fer matið fram í sambandi við stóreignaskattinn á hlutabréfunum í áburðarverksmiðjunni, þannig að þá er búið að marg-tugfalda það litla hlutafé, sem nokkrir auðmenn í Reykjavík og spekúlantar hafa lagt í þetta að undirlagi Framsóknar og Sjálfstfl. til þess að reyna svo með tímanum að ræna af þjóðinni tugum milljóna á þessu fyrirtæki.
Svona fara Framsfl. og Sjálfstfl. að. Ég hef á hverju einasta þingi að heita má reynt að kippa þessu aftur í liðinn. Framsfl. hefur staðið harðvítugast á móti því. Sjálfstfl. hefur verið jafnvel stundum til viðtals um það.
Nei, höfðingjavaldið, sem drap okkur á Sturlungaöld, er að risa upp núna og Framsfl. hagar sér eins og hann væri ein höfðingjaættin, sem væri að berjast við hinar höfðingjaættirnar. Helmingaskiptin eru eins og þegar var verið að reyna að bræða saman höfðingjaættirnar hér á Sturlungaöld á móti bændunum, þær höfðingjaættir, sem voru búnar að sölsa undir sig mest allar jarðeignir bændanna.
Við erum fulltrúar þeirrar alþýðu, sem ekki vill láta taka þessa eign af sér. Framsfl. og Sjálfstfl. hafa haft helmingaskipti um að ræna því, sem samsvarar jarðeignum frjálsra bænda á Íslandi á 12. og 13. öld. Það er það hættulega í þróuninni og þessi hætta er nær því að flytja aftur ógæfu yfir okkar þjóð, en flestir gera sér ljóst. Höfðingjar Sturlungaaldarinnar enduðu með því í innbyrðis deilunum hjá sér að kalla á erlent vald til þess að taka við völdunum í þessu landi og brjóta það, sem eftir er af íslenzkri bændastétt, á bak aftur. Hvað er það, sem höfðingjaflokkar nútímans, — og kann ég satt að segja hálfilla við að nota orðið höfðingjar í samþandi við það, það eimir það mikið eftir af góðri merkingu í því frá fyrstu árum þjóðveldisins, — hvað er það, sem þessir fésýsluflokkar nútímans hér á Íslandi, Framsókn og Sjálfstfl., ætla sér í þeim efnum í þeirra harðvítugu baráttu um að ná sem mestum tökum hér á Íslandi? Báðir þessir flokkar eru með fyrirætlanir um að kalla útlent vald hér inn í landið. Þeir hafa þegar kallað á útlent hervald inn í landið. En þeir eru líka með fyrirætlanir um að kalla á útlent auðvald inn í landið. Framsfl. og hans aðalforustumenn hafa þegar fyrirætlanir, sem ég get birt nánar, ef þess er óskað, um að selja einhverjar mestu auðlindir Íslands, gjöfulustu fossana, sama sem á leigu til erlendra auðfélaga á þann hátt að leyfa þeim að koma upp verksmiðjum hér, sem erlendir auðhringar eigi og séu í þeirra eigu a.m.k. 20 eða 25 ár og starfræki hér í krafti íslenzkra auðlinda, íslenzks rafmagns. Og Sjálfstfl., vissir menn í honum, mun vera með svipaðar fyrirætlanir og í blöðum Sjálfstfl. hefur óspart verið undir þetta tekið og undirstrikað af einum af efnahagslegum forustumönnum þess flokks, Birgi Kjaran, á síðasta flokksþingi flokksins, að þetta þyrfti að gera. Um þetta eru þessir tveir flokkar sammála, þeir sömu flokkar sem hafa viðhaldið helmingaskiptunum á milli auðmannanna á Íslandi á undanförnum áratugum, þeir eru líka sammála um að kalla það stórauðvald hér inn í landið, það útlenda, ameríska auðvald hér inn í landið, sem gerði það að verkum, að við Íslendingar réðum ekki nokkurn skapaðan hlut við það, það auðvald, sem á 20 eða 25 árum mundi leggja íslenzkt stjórnarfar alveg undir sig.
Hættan af, að sorgarsaga Sturlungaaldarinnar endurtaki sig, er mikil og þegar ég á árum kalda stríðsins fór einmitt að reyna að grafast fyrir um glæsileik okkar þjóðveldis og þær þjóðfélagslegu undirrætur þess og sorgarleikinn, sem batt enda á glæsilegt tímabil, þá hafði ég alltaf í huga það, sem er að gerast nú og loka kaflinn í bókinni fjallaði um það og aðvörun í því efni. Hættulegt er bandaríska hervaldið hér á Íslandi núna og spillingin, sem af því stafar. En amerískt auðvald, stóriðjuvald amerísku hringanna, alúminíumhringanna eða annarra, sem hér væri komið inn í landið, yrði margfalt hættulegra, og skal ég hvorugu mæla bót.
Ég vildi beina því til hæstv. forseta, hvort það mundi vera rétt af okkur að halda öllu lengur áfram í kvöld. Ég sé, að ég á enn þá það mikið eftir að svara hv. 1. þm. S-M., að það mun vart endast til þess, sem mundi vera eftir af sæmilegum fundartíma, svo að ég vildi beina þeirri ósk til hæstv. forseta, að hann leyfði mér að gera hlé á minni ræðu nú og frestaði umræðunum. –[ Frh.]